Segir búið að leysa bráðavanda barna með fíkn sem komast ekki í meðferð

Ásmundur Einar Daðason, félags- og jafn­rétt­is­mála, segir að það þurfi ekki lengur að vista börn í fanga­klefum sem hafa lent í því að hafa ekki aðgang að úrræði vegna fíknar sinnar.

„Við erum, vil ég meina, búin að leysa hann með þeim aðgerðum sem við erum að ráð­ast í á Stuðlum á síð­ustu vikum þannig að það á ekki að þurfa að vísa börnum frá sem koma inn í kerfið.“ Þetta segir Ásmundur Einar Daðason, félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra, um bráða­vanda ungra ein­stak­linga sem glíma við fíkni­vanda.

Í við­tali Þórðar Snæs Júl­í­us­son­ar, rit­stjóra Kjarn­ans, við Ásmund Einar í sjón­varps­þætt­inum 21 á Hring­braut sem frum­sýndur var á mið­viku­dags­kvöld ræðir hann um stig­vax­andi fíkni­vanda sem íslenskt sam­fé­lag glímir við og skort á með­ferð­ar­úr­ræðum til að takast á við þann vanda. Ein birt­ing­ar­mynd þeirrar stöðu er að yfir 600 manns bíða nú eftir því að kom­ast í með­ferð vegna fíknar. Hægt er að horfa á stiklu úr þætt­inum hér að neðan.

Stjórn­völd hafa legið undir gagn­rýni vegna skorts á með­ferð­ar­úr­ræðum, sér­stak­lega sér­hægðum úrræðum fyrir ungt fólk. Vegna þessa stendur nú yfir und­ir­skrifta­söfnun til að þrýsta á stjórn­völd að auka þegar í stað árleg fram­lög til sjúkra­húss­ins á Vogi um 200 millj­ónir króna til að útrýma biðlistum eftir áfengis- og vímu­efna­með­gerð, en þar eru ein­ungis 138 pláss í boði. Það er sama magn og var í boð fyrir slíka með­ferð árið 1976.

Þeir sem standa að þessu þjóð­ar­átaki til varnar sjúkra­hús­inu Vogi munu svo halda tón­leika í kvöld klukkan 20. Þegar þetta er skrifað hafa 11.491 skrifað undir und­ir­skrift­ar­list­ann.

[adspot]Ásmundur Einar segir að hann muni mæta á þá tón­leika og hlusta eftir því sem verið er að segja. Aðspurður um hvernig hann vilji bregð­ast við yfir­stand­andi bráða­vanda segir hann að málið sé tví­þætt, ann­ars vegar sé um félags­legt mál og hins vegar heil­brigð­is­mál. „Það sem snýr að börnum og þeim sem eru ekki lög­ráða snýr meira að félags­mála­ráðu­neyt­inu. Við höfum verið að setja mik­inn kraft í þetta. Það eru nýir fjár­munir á næsta ári í þessi mál fyrir börnin. Við erum núna búin að vera í vinnu, og ráðu­neytið og póli­tíkin hafa verið að reyna að aðstoða við það að flýta þess­ari lóð undir þetta heim­ili sem þarf að byggja. Fram að þeim þeim tíma höfum við verið að gera breyt­ingar síð­ustu vik­urnar á Stuðlum sem miða að því að það þurfi aldrei að vista börn í fanga­klefum sem hafa verið að lenda í því að það er ekki úrræði til staðar. Ástæðan að það er ekki úrræði til staðar er sú að heil­brigð­is­hlut­inn og félags­hlut­inn hafa ekki verið að tala nægi­lega vel saman vegna þess að fyrstu klukku­tím­arnir og dag­arnir af þess­ari með­ferð er eig­in­lega heil­brigðisúr­ræði. Þannig að við höfum verið að brjóta niður múr­anna þarna á milli og láta menn tala saman.“

Hægt er að horfa á við­talið við Ásmund Einar í heild sinni hér að neðan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár