„Undir liggur velferð þjóðarinnar“

Ásmundur Einar Daðason segir að íslensku sam­fé­lagi hafi ekki tek­ist að halda fast­eigna­verði lægra en verð­lagi. Nú þurfi að byggja nægj­an­lega mikið til að snúa þeirri þróun við.

Ásmundur Einar Daðason, félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra, segir að það þurfi að byggja um tvö þús­und íbúðir á ári hér­lendis næstu tíu árin.

[links]Tryggja þurfi að 20 til 25 pró­sent af þeim verði félags­legar íbúðir, íbúðir fyrir náms­menn eða tekju­lága. Hann seg­ist trúa því að hægt verði að ná sam­komu­lagi um slíkt við sveit­ar­fé­lögin á Stór-Reykja­vík­ur­svæð­inu og að allir verði „til­búnir til þess að leggja sitt að mörkum til að ná þessu sam­eig­in­lega mark­miði. Vegna þess að undir liggur vel­ferð þjóð­ar­innar, hús­næð­is­mark­að­ur­inn og þessir kjara­samn­ingar sem eru framundan.“

Þetta er meðal þess sem fram kemur í við­tali Þórðar Snæs Júl­í­us­sonar, rit­stjórna Kjarnans, við Ásmund Einar í sjón­varps­þætt­inum 21 á Hring­braut sem frum­sýndur verður í kvöld. Þar ræðir hann ítar­lega um það hvernig hið opin­bera geti komið að því að liðka fyrir gerð kjara­samn­inga með mögu­legum breyt­ingum á skatt­kerfi, bóta­kerfum og með aðkomu að sátt um upp­bygg­ingu hús­næðis. Hægt er að sjá stiklu úr þætti kvölds­ins hér að neðan.

Fyrir liggur að mjög mikil mis­mun­andi er hversu mik­inn þátt sveit­ar­fé­lög á höf­uð­borg­ar­svæð­inu taka þátt í upp­bygg­ingu félags­legs hús­næðis.

Kjarninn greindi til að mynda frá því í morgun að 76 pró­sent slíks á svæð­inu sé í Reykja­vík. Dagur B. Egg­erts­son, borg­ar­stjóri í Reykja­vík, kall­aði eftir því í 21 í síð­ustu viku að sett yrðu lög sem skikk­uðu önnur sveit­ar­fé­lög til að sinna þessum hluta og láta ákveðið hlut­fall lóða sinna undir upp­bygg­ingu félags­legs hús­næðis.

[adspot]Ásmundur Einar von­ast til þess að til slíkrar laga­setn­ingar þurfi ekki að koma, heldur sé hægt að leysa málið í samn­inga­við­ræðum við sveit­ar­fé­lög í námunda við Reykja­vík. Það sam­tal sé þegar hafið. „Það sem við erum að und­ir­búa núna er miklu þétt­ara sam­tal við sveit­ar­fé­lögin, ekki bara hér á höf­uð­borg­ar­svæð­inu heldur á Stór-Reykja­vík­ur­svæð­inu.[...]Okkur hefur ekki tek­ist sem sam­fé­lagi að halda fast­eigna­verð­inu þannig niðri að það hefur á und­an­förnum árum verið að hækka meira en annað verð­lag í land­inu. Þar af leið­andi hefur það verið að éta upp kjara­bætur sem hafa komið. Núna verðum við sem sam­fé­lag að geta náð utan um það að við séum að byggja nægj­an­lega mikið til þess að fast­eigna­verð á næstu árum hætti að hækka svona mikið umfram verð­lag.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár