„Í dag er komið eitt ár frá því elskulegi drengurinn okkar tók þá ákvörðun að kveðja okkur“

Vil­hjálmur Birg­is­son minnir á mik­il­vægi þess fyrir allar fjöl­skyldur að huga vel að sínum nán­ustu. Með því að ræða opin­skátt um son­ar­miss­inn hefur hann opnað á umræðu um sjálfs­víg, sem er alvar­legt sam­fé­lags­mein.

„Í dag 11. apríl er komið eitt ár frá því elsku­legi dreng­ur­inn okkar tók þá ákvörðun að kveðja okkur,“ skrifar Vil­hjálmur Birg­is­son, verka­lýðs­leið­togi á Akranesi, „og það skal alveg við­ur­kenn­ast að þetta ár hefur verið erfitt og tekið á . Því verður t.d. ekki lýst í fáum orðum hversu sárt við söknum hans og það er t.d. svo sorg­legt fyrir börnin hans tvö að hafa ekki pabba sinn hjá sér, því þau elsk­uðu hann og dáðu.

Því miður er lífið svona og það getur verið mis­kunn­ar­laust, en höfum hug­fast að engin fjöl­skylda mun kom­ast í gegnum lífið án þess að sorgin banki ekki ein­hvern tím­ann uppá. Munum að lífið er ekki sjálf­gefið.

Það er því mik­il­vægt fyrir allar fjöl­skyldur að huga vel að sínum nán­ustu, því eng­inn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur og einnig veit eng­inn hvað morg­un­dag­ur­inn ber í skauti sér.“

Pabbar geta grátið

Færsluna birti Vil­hjálmur á Facebook. Vil­hjálmur hefur rætt opin­skátt um son­ar­miss­inn, en aðeins tveimur dögum eftir frá­fall son­ar­ins skrif­aði hann hjart­næmt bréf til hans og birti á vefnum. Þar sagð­ist hann sitja á skrif­stof­unni og hugsa um lagið sem Helgi Björns­son söng, Geta pabbar ekki grátið? „Jú, pabbar geta svo sann­ar­lega grátið því tárin streyma niður í hvert sinn sem ég slæ á lykla­borðið, en þetta hjálpar mér og það er gott.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár