Fólk sums staðar látið vinna „bara eins og það sé þrælar“

Barátta gegn því að fólk komi hingað í stórum stíl til að starfa launa­laust eða með laun langt undir lág­marks­launum var ofar­lega í huga margra við­mæl­enda í nýrri skýrslu Rann­sókna­mið­stöðvar ferða­mála.

„Það sem við höfum nátt­úru­lega miklar áhyggjur af er hversu mikið af ferða­þjón­ust­unni er bara undir borð­inu. Þetta eru sjálf­boða­liðar og það eru nemar að koma sem við höldum að séu á ein­hverjum mjög fölskum for­sendum. Við erum að rekast á fólk sem kemur til okkar með papp­íra um að þeir séu starfs­þjálf­un­ar­nemar og séu þar af leið­andi ekki á launum og við teljum að það sé í raun og veru bara ódýrt vinnu­afl. Þeir eru á stöðum sem hafa í raun ekki neina fag­mennsku til að taka nema. Þetta þarf að laga.“

Þetta kemur fram hjá einum við­mæl­anda í skýrslu Rann­sókna­mið­stöðvar ferða­mála um aðstæður erlends starfs­fólks í ferða­þjón­ustu. Höf­undar skýrsl­unnar tóku við­töl við starfs­fólk stétt­ar­fé­laga utan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins og einnig við erlent starfs­fólk í ferða­þjón­ustu víða um land­ið.

Á Vest­ur­landi var mikið rætt um fjölgun „starfs­þjálf­un­ar­nema“ í ferða­þjón­ustu, á stöðum sem hefðu ekki menntað fag­fólk til að leið­beina þeim. Tekið var dæmi um hótel á svæð­inu sem var búið „að rúlla 13 þjónum í gegn“ án þess að vera með lærðan þjón á staðnum. Að þeirra mati var þetta enn ein leið til að ná í „ódýrt vinnu­afl“.

Vaxandi ógn

Barátta gegn því að fólk komi hingað í stórum stíl til að starfa launa­laust eða með laun langt undir lág­marks­launum, var ofar­lega í huga margra við­mæl­end­anna. Litið var á þessa þróun sem vax­andi ógn, sem hefði auk­ist í takt við vöxt ferða­þjón­ustu um land allt og auknar vin­sældir lands­ins meðal ferða­manna. Birt­ing­ar­mynd þess­arar þró­unar eru sjálf­boða­liðar, sem mest voru tengdir við hesta­leigur og minni gisti­staði, og starfs­nemar á hót­elum. Einnig var minnst á söfn og rætt um til­raunir sveit­ar­fé­laga til að taka upp þetta fyr­ir­komu­lag, að því er fram kemur í skýrsl­unni.

[links]Áhyggj­urnar beindust að því að verið væri að grafa undan leik­reglum á íslenskum vinnu­mark­aði og eðli­legri sam­keppni milli fyr­ir­tækja, en ekki síður að við­kvæmri stöðu fólks sem væri að vinna án trygg­inga og ann­arra rétt­inda. Einnig væru dæmi um að fólk væri látið vinna mjög mikið án launa. Ef fólk er án trygg­inga getur það verið í vondum málum ef það lendi í vinnu­slysum:

„Mesta ógnin sem mér finnst hafa verið núna undanfarið, það er sjálfboðaliðastörfin. Það er verið að auglýsa þetta á allskonar síðum. Það þýðir að fólk er hérna jafnvel án trygginga og það eru dæmi um vinnuslys.“

Annar við­mæl­andi taldi að fólk væri oft sett í mun meiri vinnu en talað hefði verið um í aug­lýs­ingu eftir sjálf­boða­liða.

„Ég held það sé líka í þessu sjálfboðaliðaumhverfi að fólk kemur og gerir ráð fyrir að vinna nokkrar klukkustundir á viku en svo vinnur það bara tugi klukkustunda, bara eins og það sé þrælar.“

Margir þó sáttir

Í skýrsl­unni segir að það virð­ist þó vera að margir sem eru að vinna sem sjálf­boða­liðar séu sáttir með að fá að dvelja frítt á Íslandi og fáir sjálf­boða­liðar og nemar kvarta til stétt­ar­fé­lag­anna. Frekar að þeir bregð­ist illa við afskiptum þeirra. Sjálf­boða­lið­arnir líti á þetta sem tæki­færi til að dvelja ódýrt í nálægð við dýr og nátt­úru og slá þessu saman við ferða­lag um landið. Það sé helst ef að vinnan verður of mikil eða öðru­vísi en um var samið, sem fólk yfir­gefur gest­gjafa eða vinnu­veit­anda.

Dæmi var tekið um konu á fimm­tugs­aldri sem sætti sig ekki við vera „í ferða­þjón­ustu að búa um rúm“ eftir að hafa ráðið sig til að hugsa um dýr á sveitabæ. Hún lét ekki bjóða sér það og fór, en „henni var alveg sama þó hún fengi bara 50 þús­und krónur á mán­uði“ fyrir að hugsa um dýrin.

Sumir kjósa að horfa í hina áttina

Verka­lýðs­hreyf­ingin hefur barist fyrir því að fá samn­inga og álit sem styðja við sjón­ar­mið hennar um að það séu engin óljós mörk á milli ferða­manna, náms­manna og starfs­manna. Ein setn­ing skýri þetta: „Það er ólög­legt að nota sjálf­boða­liða í efna­hags­legri starf­semi.“

„Við höfum fengið staðfest álit ríkisskattstjóra um hvað sé launalaus vinna og hvað ekki. Við höfum sameiginlegt álit við Samtök atvinnulífsins um hvað sé eðlilegt í þessu og hvað ekki. Við höfum líka sameiginlegt álit með Bændasamtökunum um hvað sé eðlilegt og hvað ekki. Svona heilt yfir þá skilja þetta allir. Það vita það allir að vinna á Íslandi er almennt launuð, en einstakir atvinnurekendur þeir kjósa að horfa svolítið fram hjá þessu.“

Fram kom í við­töl­unum að kjara­samn­ingar hér­lendis næðu til flest allra starfa á Íslandi. Stétt­ar­fé­lögin settu sig hins vegar ekki upp á móti sjálf­boða­liðum t.d. stíga­gerð í þjóð­görðum og köku­sölu kven­fé­laga.

Vantraust til stéttarfélaga

Fram kemur hjá skýrslu­höf­unum að rauður þráður í við­tölum við starfs­fólk stétt­ar­fé­laga hafi verið að erlent starfs­fólk í ferða­þjón­ustu væri hrætt við að sækja kröfur um leið­rétt­ingu á launum á meðan það væri í vinnu á við­kom­andi stað.

Samkvæmt því sem fram kemur í skýrsl­unni „þora þau ekki“ eða eru „hrædd við“ að fá aðstoð hjá stétt­ar­fé­lög­unum, vegna ótta um að missa starfið eða vegna van­trausts á stétt­ar­fé­lögum. Byggir það van­traust oft­ast á orð­spori stétt­ar­fé­laga í heima­löndum þeirra. Var ýmist talað um þau sem „mafíu sam­tök“ eða að vinnu­veit­endur hefðu stétt­ar­fé­lög „í vas­anum“. Oft er van­traust hjá fólki sem kemur frá Austur-Evrópu, en fjallað verður nánar um mun eftir upp­runa­löndum í næsta und­ir­kafla.

„Það er vantraust til okkar. Margt, af þessu fólki sem kemur frá Austur Evrópu, það er eiginlega sannfært um að við séum bara hluti af mafíunni heima og telur að við getum ekki lagað neitt.“

Flestir sem eru að koma til stétt­ar­fé­lag­anna er fólk „sem er að hætta, fara heim til sín eða skipta um vinnu“. Þá fyrst er fólk e.t.v. að kanna hvort að það hafi fengið borgað sam­kvæmt kjara­samn­ingum og áunnin rétt­indi hafi verið gerð upp við þau. Stundum er verið að biðja stétt­ar­fé­lögin að reikna nokkur ár aftur í tím­ann, en oft þarf að hafna gömlum málum vegna skorts á gögnum „[…] þau eru jafn­vel að fara tvö þrjú ár aftur í tím­ann og senda fjöl­póst á gamla vinnu­fé­laga og við eigum að fara að reikna út eld­gömul mál. Þetta er eitt­hvað sem við höfum verið að reyna að sporna við“ (Suð­ur­land-1). Þó að fólk hafi verið sátt á vinnu­stað, þá sé það búið að átta sig á að það getur fengið meiri laun, en er ekki til­búið að fara fram á það við atvinnu­rek­and­ann á meðan það er í vinnu. Stétt­ar­fé­lögin þurfa að leggja kröfur fram í nafni ákveð­inna ein­stak­linga og mörgum finnst það erfitt. Þar sem fólk er gjarnan að hafa sam­band rétt áður en það fer úr landi nær það jafn­vel ekki að ganga frá þessu umboði fyrir brott­för: „… af því að fólk er svo hrætt og það er líka hrætt við okkur. Það vill helst vera komið úr landi.“

Ekki ástæðulaus ótti

Óttinn við að missa starf ef kvartað er eða settar fram form­legar kröfur var ekki tal­inn ástæðu­laus, því að það væri auð­velt að reka fólk úr starfi á Íslandi:

„Gerist alveg miskunnarlaust að Íslendingarnir, fyrirtækið, þeir nýta sér það að reka fólk án ástæðu […] Því er bara sagt upp vegna skipulagsbreytinga eða vegna samdráttar, þó að það sé jafnvel raunveruleg deila um launakjör eða aðbúnað.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Útlendingamál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár