Páfinn segir efasemdamönnum til syndanna

Maðurinn er heimskur án þekk­ingar, segir Frans páfi.

Frans páfi hefur látið til sín taka í loftslagsmálum og hvatt ráðamenn ríkja heims til þess að bregðast við vandanum sem steðjar að mannkyninu.
Frans páfi hefur látið til sín taka í lofts­lags­málum og hvatt ráða­menn ríkja heims til þess að bregð­ast við vand­anum sem steðjar að mann­kyn­inu. Mynd: EPA

Frans páfi hefur gagn­rýnt þá sem telja lofts­lags­breyt­ingar ekki eiga sér stað. Páfi segir að sagan muni dæma þá sem grípa ekki í taumana til þess að stemma stigu við hlýnun jarðar og útblæstri gróð­ur­húsa­loft­teg­unda.

Frá þessu er greint á vef AP frétta­stof­unnar.

Páfi var spurður út í afstöðu sína til lofts­lags­breyt­inga í tengslum við felli­bylj­ina sem lagt hafa borgir og bæi við Mexík­óflóa í rúst á und­an­förnum vikum. Frans páfi var á ferð frá Kólumbíu í Suður-Ameríku á sunnu­dag og átti eftir að fljúga yfir þau svæði sem verst hafa orðið úti.

„Þeir sem hafna þessu verða að fara til vís­inda­manna og ræða við þá. Vís­inda­menn­irnir tala mjög skýrt,“ sagði Frans páfi og bætti við að vís­inda­menn hafi þegar útli­stað hvað það er sem þurfi að ger­ast svo hægt sé að tempra áhrif lofts­lags­breyt­inga. Ein­stak­lingar og stjórn­mála­menn hafa, að sögn páfa, „sið­ferð­is­lega skyldu“ um að leggja sitt af mörkum.

[adspot]

„Þetta eru ekki skoð­anir sem gripnar eru úr lausu lofti. Þær eru mjög skýrar. Leið­togar ríkja munu ákveða hvað verður gert og sagan mun dæma þær ákvarð­anir,“ sagði Páfi.

Frans páfi hefur áður látið til sín taka í tengslum við lofts­lags­mál og nátt­úru­vernd. Hann hefur skrifað heilt umburð­ar­bréf um það hvernig fátækir líði mest fyrir breyt­ingum í lofts­lagi jarðar og auk­inni sókn í auð­lindir jarðar.

„Óskyn­ugur er hvör sá maður án þekk­ingar,“ sagði Frans páfi og vitn­aði í Gamla testa­mentið. Hann beindi orðum sínum að til þeirra sem efast um lofts­lags­breyt­ingar eða frestað við­bragði við þeim.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár