Kerling í aðalhlutverki

Í bókinni Drag plóg þinn yfir bein hinna dauðu eftir nóbels­verðlauna­skáldið Olgu Tokarczuk er spurningum eins og: hvaða líkamar eru rétt­dræpir? og: hverjir hafa völd til að ákveða það? velt upp. Bókin olli miklum usla þegar hún kom út í heima­landi höfundar Póllandi, í landi þar sem stjórn­völd hafa tekið til dæmis ákvarðana­rétt yfir líkömum kvenna í sínar hendur.

Bók

Drag plóg þinn yfir bein hinna dauðu

Höfundur Olga Tokarczuk
Bjartur
279 blaðsíður
Gefðu umsögn

„Drag plóg þinn yfir bein hinna dauðu er bókmenntaleg glæpasaga og ævintýri …“ segir á baksíðu íslenskrar þýðingar á bók eftir pólska nóbels­verðlauna­skáldið Olgu Tokarczuk.

Bókin kom fyrst út í Póllandi fyrir þrettán árum síðan og olli usla. Það tók verkið tæpan áratug að ferðast til Bretlands en hún kom fyrst út á ensku árið 2018. Ári seinna hlaut Olga Nóbels­verðlaunin í bókmenntum. Olga er einn þekktasti rithöfundur Póllands, óhrædd við að gagnrýna stjórn­völd þar – sem fikra sig sífellt lengra á hægri væng stjórn­málanna. Á þessu ári kom verkið út á íslensku.

Olga TokarczukNóbels­verð­launa­skáldið Olga Tokarczuk er einn þekkt­asti rit­höf­undur og hug­s­uður Póllands

Íslenska kápan er stílhrein, svört og hvít fyrir utan blóð­slettur, ásýndin eins og blanda af heim­spekiriti og glæpasögu. Það sem brýtur helst upp stíl­hreina kápuna er mynd af dádýri sem starir í …

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár