Þrýst á Vinstri græn að hafna íhaldsstjórn með því að kveikja í baklandinu

Sam­fylk­ingin sagði nei við því að koma að fjór­flokka­stjórn í vik­unni. Sam­fylk­ing, Píratar og Viðreisn reyna að skapa þrýst­ing á Vinstri græn um að neita að fara í íhalds­stjórn með Sjálf­stæð­is­flokki og Framsókn en áhrifa­fólk innan VG telur það skást.

Viðreisn, Sam­fylk­ing og Píratar vinna nú að því hörðum höndum að búa til skýran val­kost til stjórn­ar­mynd­unar fyrir Vinstri græn og Fram­sókn­ar­flokk­inn sem inni­haldi ekki Sjálf­stæð­is­flokk. Þar er mikil áhersla lögð á að um stjórn yrði að ræða þar sem konur yrðu í aðal­hlut­verki. Helm­ingur þing­manna slíkrar fimm flokka stjórnar yrðu konur og meiri­hluti ráð­herra sömu­leiðis. Auk þess gætu konur setið í öllum stærstu ráðu­neyt­unum sam­kvæmt upp­skrift­inni sem unnið er eftir. Katrín Jak­obs­dóttir yrði for­sæt­is­ráð­herra, Lilja Alfreðs­dóttir gæti orðið fjár­mála­ráð­herra og kona yrði sömu­leiðis utan­rík­is­ráð­herra.

Þá er mikil áhersla lögð á að slík stjórn muni bjóða upp á skýrar aðgerðir varð­andi átak gegn kyn­bundnu ofbeldi og í umhverf­is­málum, hvort tveggja mála­flokkar sem Vinstri græn skil­greina sig út frá. Þau skila­boð eru líka til þess gerð að minna á ástæðu þess að síð­asta rík­is­stjórn sprakk og þá leynd­ar­hyggju sem ríkti yfir afgreiðslu á málum sem tengd­ust upp­reist æru.

Skýrasta útspil Við­reisnar, Sam­fylk­ingar og Pírata var í morgun þegar Logi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, birti mynd af sér, Píröt­unum Þórhildi Sunnu Ævars­dóttur og Helga Hrafni Gunn­ars­syni, og Við­reisn­ar­fólk­inu Þorgerði Katrínu Gunn­ars­dóttur og Þor­steini Víglunds­syni, þar sem þau fund­uðu um helstu mál sem flokk­arnir þrír gætu unnið saman að, annað hvort innan rík­is­stjórnar eða í stjórn­ar­and­stöðu.

Til­gang­ur­inn var fyrst og síð­ast þá að setja þrýst­ing á Vinstri græn um að fara ekki í íhalds­stjórn með Sjálf­stæð­is­flokki og Fram­sókn­ar­flokki.

Sér­stak­lega er reynt að hreyfa við bak­land­inu innan Vinstri grænna og kjós­enda flokks­ins, sem margir hverjir eru ekki á meðal mestu aðdá­enda Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Raunar sýndi könnun, sem birt var 20. sept­em­ber, að ein­ungis þrjú pró­sent þeirra sem skil­greindu sig sem kjós­endur Vinstri grænna vildu sjá Sjálf­stæð­is­flokk­inn í rík­is­stjórn.

Ánægja með kyrrstöðu gagnvart kerfunum

Það er þó enn lang lík­leg­asta nið­ur­staðan. Þ.e. að slík stjórn, undir for­sæti Katrínar Jak­obs­dóttur, verði mynduð. Innan Vinstri grænna er áhrifa­fólk sem er mjög áfram um að það tak­ist. Og jafn­vel búist við því að fal­ast verði eftir stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boði frá for­seta Íslands í dag.

Björn Valur Gíslason, sem var vara­for­maður Vinstri grænna þar til í síð­asta mán­uði, er einn þeirra sem lýst hefur ánægju sinni með slíka stjórn opin­ber­lega. Í færslu á heima­síðu sinni í gær sagði hann að „rík­is­stjórn þess­ara þriggja flokka myndi ekki ráð­ast í miklar eða umdeildar kerf­is­breyt­ingar hvort sem um væri að ræða í stjórn­ar­skrár­mál­inu, í sjáv­ar­út­vegi eða land­bún­að­ar­málum svo dæmi séu tek­in. Hún myndi þess í stað ein­beita sér að minna umdeildum málum og að treysta frekar heil­brigð­is- og vel­ferð­ar­kerf­ið.“

Þetta eru áherslur sem bæði Sjálf­stæð­is­flokkur og Fram­sókn­ar­flokkur geta vel sætt sig við. Þessir tveir flokkar hafa stjórnað Ísland, annað hvort saman eða í sitt­hvoru lagi, frá því að þeir voru stofn­aðir. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefur setið í rík­is­stjórn í þrjú af hverjum fjórum árum sem hann hefur verið til og Framsókn í tvö af hverjum þremur. Saman hafa þeir búið til þau kerfi sem ekki yrði hróflað við gegn því að auknu fjár­magni yrði beint í heil­brigðis- og mennta­mál og inn­viða­upp­bygg­ingu, sér­stak­lega á lands­byggð­inni.

Samfylkingin sagði nei við fjórflokkastjórn

Vinstri græn hafa mikið reynt að fá Sam­fylk­ing­una með í fjór­flokka­rík­is­stjórn. Heim­ildir Kjarnans herma að slík til­boð hafi síð­ast borist til Loga Ein­ars­sonar á allra síð­ustu dögum. Frá Sam­fylk­ing­unni hafi hins vegar borist skýrt nei­kvætt svar við aðkomu að slíkri rík­is­stjórn. Það sé ein­fald­lega ekki áhugi á því.

Rík­is­stjórn Vinstri grænna, Sjálf­stæð­is­flokks og Sam­fylk­ingar er ekki val­kostur sem hefur nokkru sinni raun­hæft verið á borð­inu, þótt hún hafi verið rædd, meðal ann­ars innan þing­flokks Sam­fylk­ingar. Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, og Logi hafa aldrei rætt saman að neinni alvöru um neins konar sam­starf og lít­ill sem eng­inn vilji er innan beggja flokka fyrir slíku sam­starfi.

Leiðtogar þriggja flokka hittust í morgun til að ræða samstarf. Tilgangurinn var meðal annars sá að sýna Framsókn og sérstaklega Vinstri grænum að annar valkostur væri í stöðunni en samstarf við Sjálfstæðisflokkinn.
Leið­togar þriggja flokka hitt­ust í morgun til að ræða sam­starf. Til­gang­ur­inn var meðal ann­ars sá að sýna Framsókn og sér­stak­lega Vinstri grænum að annar val­kostur væri í stöð­unni en sam­starf við Sjálf­stæð­is­flokk­inn.

Hótunin um að mynda rík­is­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks, Fram­sókn­ar­flokks, Mið­flokks og Flokks fólks­ins er ekk­ert annað en það, hótun. Sigurður Ingi sagði það margoft við við­mæl­endur sína í stjórn­ar­and­stöðu­flokka­við­ræð­unum um síð­ustu helgi að þetta væri ekki raun­hæfur val­kostur. Þess utan liggur fyrir að eng­inn þeirra stjórn­málafor­ingja sem eiga raun­veru­legan mögu­leika á því að kom­ast í rík­is­stjórn hefur rætt við Flokk fólks­ins á und­an­förnum dögum. Það sýnir skýrt að verið sé að stilla upp tveimur skýrum val­kostum: ann­ars vegar íhalds­stjórn um kyrr­stöðu kerfa sem skipuð yrði Vinstri grænum, Sjálf­stæð­is­flokki og Fram­sókn­ar­flokki eða rík­is­stjórn frá vinstri og yfir miðju, frá íhalds­semi í átt að frjáls­lyndi, skipuð núver­andi stjórn­ar­and­stöðu­flokkum og Viðreisn.

Hvor ræður?

Báðir rík­is­stjórn­irnar yrðu undir for­sæti Katrínar Jak­obs­dóttur. Hún, og annað áhrifa­fólk innan Vinstri grænna, hafa verið óhrædd við að segja það upp­hátt að flokk­ur­inn ætli sér í rík­is­stjórn nú. Og það er ófrá­víkj­an­leg krafa um að Katrín verði for­sæt­is­ráð­herra.

Þeir flokkar sem setja nú pressu um að við­ræður verði teknar aftur upp milli stjórn­ar­and­stöðu­flokk­anna og nú með Viðreisn segja að næsta rík­is­stjórn velti ein­fald­lega á ákvörðun Katrínar. Hún ráði þessu. Innan þessa hóps hefur verið reynt að teygja sig til Lilju Alfreðs­dóttur, vara­for­manns Fram­sókn­ar­flokks, í von um að konu­stjórnin muni höfða meira til hennar.

Innan Vinstri grænna er orð­ræðan hins vegar sú að Framsókn sé með pálmann í hönd­unum. Sigurður Ingi Jóhanns­son hafi slitið síð­ustu við­ræðum og að hann ráði því hver næsta rík­is­stjórn verði. Ekki sé hægt að neyða hann til að vinna með flokkum sem hann vilji ekki vinna með.

Hvað verði ofan á mun að öllum lík­indum ráð­ast á næstu dögum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2017

Mest lesið undanfarið ár