Þrír flokkar myndu tapa fylgi í öllum kjördæmum ef kosið yrði í dag

Tveir stjórn­ar­flokkar og Mið­flokk­ur­inn mæl­ast nú með minna fylgi í öllum kjör­dæmum lands­ins en í kosn­ing­unum í októ­ber 2017. Tveir stjórn­ar­and­stöðu­flokkar bæta hins vegar við sig fylgi í öllum kjör­dæmum.

Mið­flokk­ur­inn, Vinstri græn og Sjálf­stæð­is­flokkur myndu tapa fylgi frá síð­ustu kosn­ingum í öllum kjör­dæmum ef kosið yrði í dag. Mestur yrði skell­ur­inn fyrir Mið­flokk­inn í kjör­dæmi for­manns flokks­ins, Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar, þar sem nán­ast tveir af hverjum þremur kjós­endum hafa yfir­gefið flokk­inn.

Sam­fylk­ingin og Píratar bæta hins vegar við sig fylgi í öllum kjör­dæm­unum sex og Viðreisn eykur fylgi sitt í fimm þeirra. Þótt Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn mælist nú með meira fylgi í fjórum kjör­dæmum en flokk­ur­inn fékk í kosn­ing­unum fyrir 14 mán­uðum þá myndi hann samt sem áður fá einum færri þing­menn kjörna. Sá þing­maður yrði Lilja Alfreðs­dóttir, vara­for­maður flokks­ins, en Framsókn hefur misst 40 pró­sent kjós­enda í kjör­dæmi hennar, Reykja­vík suður. Það er eina kjör­dæmið þar sem Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn hefur mark­tækt tapað fylgi.

Þetta er meðal þess sem mál lesa út úr nið­ur­broti á fylgi íslensku stjórn­mála­flokk­anna eftir kjör­dæmum sam­kvæmt nýjasta Þjóð­ar­púlsi Gallup sem birt var á vef RÚV í lok síð­ustu viku.

Miðflokkurinn helmingast og ríkisstjórnin héldi ekki velli

Nið­ur­staða hans var meðal ann­ars sú að fylgi Mið­flokks­ins nán­ast helm­ing­ast frá kosn­ingum og mælist nú 5,7 pró­sent. Áhrif Klaust­urs­máls­ins á Flokk fólks­ins voru ekki jafn alvar­leg en fylgi hans fer úr 6,9 pró­sent í 5,3 pró­sent.

Vinstri græn hafa tapað umtals­verðu fylgi frá kosn­ing­unum, en alls kusu 16,9 pró­sent lands­manna flokk­inn þá. Nú mælist fylgið 11,6 pró­sent. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn myndi fá 22,7 pró­sent fylgi í dag sem er 2,5 pró­sentu­stigum undir kjör­fylgi hans og Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn myndi bæta lít­il­lega við sig frá síð­ustu kosn­ingum og fá 11,4 pró­sent atkvæða. Sam­an­lagt hefur staða stjórn­ar­flokk­anna því versnað umtals­vert á fyrstu 14 mán­uðum kjör­tíma­bils­ins og rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur héldi ekki velli ef kosið yrði nú.

Þeir þrír stjórn­ar­and­stöðu­flokkar sem áttu ekki full­trúa á Klaust­ur­bar þann 20. nóv­em­ber í fyrra bæta við sig umtals­verðu fylgi frá kosn­ingum. Sam­fylk­ingin mest, en fylgi hennar hefur vaxið úr 12,1 pró­sent í 18,4 pró­sent á 14 mán­uðum. Viðreisn hefur einnig bætt vel við sig og myndi nú fá 10,5 pró­sent atkvæða, en fékk 6,7 pró­sent í októ­ber 2017. Viðbót Pírata er hóf­legri. Þeir fengu 9,2 pró­sent þegar talið var upp úr kjör­köss­unum haustið 2017 en mæl­ast nú með 10,5 pró­sent fylgi.

Þetta allt þýðir að ef kosið yrði nú myndi Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn tapa einum þing­manni og fá 15, Vinstri græn myndi tapa þremur og fá átta og Framsókn myndi tapa einum og fá sjö. Sam­an­lagt væri stjórn­ar­flokk­arnir þrír því með 30 þing­menn, eða fimm færri en nú.

Mið­flokk­ur­inn myndi tapa fjórum þing­mönnum og fengi þrjá líkt og Flokkur fólks­ins sem myndi þá tapa einum.

Sam­fylk­ingin myndi bæta flestum þing­mönnum við sig, færi úr sjö í 13, og þing­flokkur Við­reisnar mydni vaxa úr fjórum í sjö. Píratar myndu bæta einum þing­manni við sína þing­sveit og fá sjö slíka. Sam­an­lagt myndi þessir þrír stjórn­ar­and­stöðu­flokkar því bæta við sig tíu þing­mönnum ef kosið yði í dag.

Norðausturkjördæmi

Mið­flokk­ur­inn fékk 18,6 pró­sent atkvæða í Norð­aust­ur­kjör­dæmi í síð­ustu kosn­ingum. Nú mælist fylgi hans þar 7,2 pró­sent. Sam­fylk­ingin og Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn eru þeir flokkar sem bæta mestu við sig í því kjör­dæmi. Sam­fylk­ingin fékk 13,9 pró­sent atkvæða í Norð­aust­ur­kjör­dæmi, sem er kjör­dæmi for­manns­ins Loga Ein­ars­sonar, 2017 en mælist nú með með 24,2 pró­sent fylgi. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn hefur vaxið úr 14,3 pró­sentum í 21 pró­sent. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn, sem var stærsti flokk­ur­inn í kjör­dæm­inu 2017, mælist nú sá þriðji stærsti með 17 pró­sent fylgi. Vinstri græn hrynja einnig niður í fylgi í Norð­aust­ur­kjör­dæmi, sem hefur sögu­lega verið eitt sterkasta vígi flokks­ins, enda kjör­dæmi fyrr­ver­andi for­manns­ins Stein­gríms J. Sig­fús­sonar. Nú mælist fylgi flokks­ins þar 13,9 pró­sent en hann fékk 19,9 pró­sent í kosn­ing­unum fyrir rúmu ári.

Ef kosið yrði í dag myndi sam­setn­ing þeirra níu kjör­dæma­kjörnu þing­manna sem koma úr Norð­austri breyt­ast umtals­vert. Þannig myndi Mið­flokk­ur­inn, sem fékk tvo kjör­dæma­kjörna þing­menn í kosn­ing­unum 2017, ekki fá neinn þing­mann nú, sem þýðir að Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður flokks­ins, myndi að öllum lík­indum falla af þingi. Sam­fylk­ingin myndi hins vegar fá þrjá kjör­dæma­kjörna þing­menn eftir að hafa ein­ungis haft einn slíkan eftir síð­ustu kosn­ingar, en Vinstri græn ein­ungis einn. Þá myndi Píratar einnig ná inn manni.

Norðvesturkjördæmi

Í Norð­vest­ur­kjör­dæmi er uppi sama sagan: Mið­flokk­ur­inn bíður afhroð. Flokk­ur­inn fékk 14,2 pró­sent atkvæða þar í kosn­ing­unum 2017 en fengi nú 4,9 pró­sent. Bergþór Ólason, einn þing­manna Mið­flokks­ins sem hafði sig mest frammi á Klaustri, leiddi fyrir flokk­inn í kjör­dæm­inu í síð­ustu kosn­ingum.

Mest af fylg­inu sem Mið­flokk­ur­inn tapar fer yfir á Sam­fylk­ing­una, sem nær tvö­faldar stuðn­ing sinn í kjör­dæm­inu. Flokk­ur­inn fékk 9,7 pró­sent atkvæða í októ­ber 2017 en fengi nú 17 pró­sent.

Vinstri græn myndu vinna varn­ar­sigur í kjör­dæm­inu þar sem Lilja Rafney Magn­ús­dóttir leiðir lista flokks­ins. Hún þykir vera sá þing­maður flokks­ins sem sé næstur Sjálf­stæð­is­flokki og Fram­sókn­ar­flokki í póli­tískum áherslum. Vinstri græn fengu 17,8 pró­sent í Norð­vest­ur­kjör­dæmi fyrir rúmum 14 mán­uðum síðan en myndu nú fá 16,3 pró­sent. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn, sem sögu­lega hefur alltaf verið sterkur í kjör­dæm­inu, myndi bæta við sig fylgi og fá 20,3 pró­sent atkvæða. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn myndi hins vegar tapa 2,8 pró­sentu­stigum frá síð­ustu kosn­ingum og fá 21,7 pró­sent atkvæða, sem dygði þó til þess að flokk­ur­inn yrði áfram stærstur í kjör­dæm­inu. Þá myndu Píratar bæta lít­il­lega við sig fylgi en bæði Viðreisn og og Flokkur fólks­ins yrðu á svip­uðum slóðum og í kosn­ing­unum 2017.

Reykjavík norður og suður

Í Reykja­vík­ur­kjör­dæm­unum tveimur eru það Vinstri græn sem eru að upp­lifa mesta fylgis­tapið. Í kosn­ing­unum fyrir rúmu ári síðan voru þetta sterk­ustu vígi flokks­ins. Í Reykja­vík norður, þar sem Katrín Jak­obs­dóttir, nú for­sæt­is­ráð­herra, leiddi lista Vinstri grænna fengu þau 21,5 pró­sent fylgi. Í Reykja­vík suður var það fylgi 18,9 pró­sent.

Í könnun Gallup blasir önnur mynd við. Í norðri mælist fylgið 12,6 pró­sent, sem þýðir að 41 pró­sent þeirra kjós­enda kjör­dæm­is­ins sem kusu Vinstri græn síð­ast myndu ekki gera það í dag. Í suðr­inu er staðan sam­bæri­leg, fylgið mælist 10,6 pró­sent og fylgis­tapið því um 44 pró­sent.

Allir stjórn­ar­flokk­arnir þrír tapa umtals­verðu í höf­uð­borg­inni. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn myndir fá 18,9 pró­sent(suður) og 17,3 pró­sent (norður) ef kosið yrði í dag sem myndi þýða að flokk­ur­inn yrði ekki lengur stærsti stjórn­mála­flokk­ur­inn í Reykja­vík. Í kosn­ing­unum í októ­ber fékk Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn 22,8 og 22,6 pró­sent atkvæða í kjör­dæm­unum tveimur.

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn myndi líka tapa umtals­verðu fylgi og Lilja Alfreðs­dóttir, vara­for­maður flokks­ins og ein helsta von­ar­stjarna, næði ekki inn sem kjör­dæma­kjör­inn þing­maður ef kosið yrði nú. Í októ­ber 2017 fékk Framsókn 8,1 pró­sent atkvæða í kjör­dæmi hennar, Reykja­vík suður. Nú fengi flokk­ur­inn hins vegar 4,9 pró­sent. Í hinu höf­uð­borg­ar­kjör­dæm­inu fer fylgið úr 5,8 í 5,3 pró­sent.

Þeir flokkar sem sækja mest á í Reykja­vík eru Sam­fylk­ingin og Viðreisn. Sam­fylk­ingin yrði stærsti stjórn­mála­flokk­ur­inn í báðum Reykja­vík­ur­kjör­dæm­unum ef kosið yrði í dag. Alls segj­ast 21,2 pró­sent kjós­enda í suð­ur­hluta borg­ar­innar að þeir myndu kjósa flokk­inn og 20,6 pró­sent í norð­ur­hlut­anum. Það er rúm­lega 60 pró­sent fleiri en gerðu slíkt fyrir rúmu ári síðan.

Viðreisn rúm­lega tvö­faldar fylgi sitt í Reykja­vík suður. Í síð­ustu kosn­ingum fékk flokk­ur­inn 8,5 pró­sent atkvæða þar en myndi nú fá 18,2 pró­sent, sem myndi gera hann að þriðja stærsta flokki kjör­dæm­is­ins. Viðreisn bætir líka við sig í hinu höf­uð­borg­ar­kjör­dæm­inu og fengi nú 10,5 pró­sent atkvæða í stað 8,4 pró­sent. Píratar, sem eiga sam­leið með Sam­fylk­ingu og Viðreisn í mörgum málum, bæta einnig við sig umtals­verðu fylgi í Reykja­vík, sér­stak­lega í norð­ur­hlut­anum þar sem flokk­ur­inn myndi fá 17 pró­sent greiddra atkvæða ef kosið yrði í dag.

Bæði Mið­flokk­ur­inn og Flokkur fólks­ins tapa fylgi í höf­uð­borg­inni frá kosn­ingum og hvor­ugur næði inn kjör­dæma­kjörnum þing­manni.

Suðvesturkjördæmi

Í Suð­vest­ur­kjör­dæmi virð­ast litlar breyt­ingar á yfir­burðum Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sem mælist með 28,8 pró­sent fylgi í kjör­dæmi for­manns­ins Bjarna Bene­dikts­sonar. Sterk staða flokks­ins í nágranna­sveit­ar­fé­lögum Reykja­víkur end­ur­spegl­ast einnig í því að hann heldur um stjórn­ar­taumana í öllum sveit­ar­fé­lög­unum sem mynda Kragann. Fylgið hefur þó dalað smá­vægi­lega frá síð­ustu kosn­ingum og er nú komið undir 30 pró­sent.

Sam­fylk­ingin yrði næst stærsti flokk­ur­inn í Kraganum með 16,1 pró­sent atkvæða sem yrði bæt­ing um fjögur pró­sentu­stig frá því síð­ast. Viðreisn bætir sömu­leiðis við sig, fengi 14 pró­sent í stað 9,5 pró­senta og yrði þriðji stærsti flokkur kjör­dæm­is­ins, þar sem flokks­for­mað­ur­inn Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir leiðir list­ann. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn bætir einnig lít­il­lega við sig og fengi 9,6 pró­sent fylgi. Píratar eru á mjög svip­uðum slóðum og þegar talið var upp úr kjör­köss­unum í októ­ber 2017.

Vinstri græn tapa í Kraganum eins og ann­ars staðar og myndu fá 11,4 pró­sent atkvæða eftir að hafa fengið 13,6 pró­sent haustið 217. Klaust­ur­flokk­arnir tveir, Mið­flokk­ur­inn og Flokkur fólks­ins, tapa einnig miklu. Mið­flokk­ur­inn fer úr 9,5 pró­sent fylgi í 4,9 pró­sent og Flokkur fólks­ins úr 6,5 í 3,8 pró­sent.

Suðurkjördæmi

Suð­ur­kjör­dæmi sker sig út úr örðum hvað varðar þróun á fylgi frá kosn­ingum. Það er eina kjör­dæmið þar sem Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mælist nú með meira fylgi en hann fékk þegar talið var upp úr kjör­köss­unum, í októ­ber 2017. Fylgi flokks­ins mælist nú 27,6 pró­sent en var 25,2 pró­sent fyrir 14 mán­uðum síðan. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er langstærsti flokkur kjör­dæm­is­ins.

Þótt Mið­flokk­ur­inn tapi fylgi í Suð­ur­kjör­dæmi – hann fékk 14,3 pró­sent þar í síð­ustu kosn­ingum – þá er kjör­dæmið þó það sem fylgi hans mælist lang­mest í, eða 9,2 pró­sent.

Annað er nokkurn veg­inn eftir bók­inni. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn heldur sínum styrk í kjör­dæmi for­manns­ins Sigurðar Inga Jóhanns­sonar og fengi 18 pró­sent atkvæða ef kosið yrði í dag, sem er innan skekkju­marka minna en flokk­ur­inn fékk í síð­ustu kosn­ingum. Sam­fylk­ingin bætir við sig fylgi og Vinstri græn tapa umtals­verðu. Viðreisn myndi tvö­falda fylgi sitt frá síð­ustu kosn­ingum og fá 6,2 pró­sent á meðan að Flokkur fólks­ins myndi tapa og ekki ná inn kjör­dæma­kjörnum þing­manni.

Þjóð­ar­púls Gallup var gerður dag­ana 3. des­em­ber 2018 til 1. jan­úar 2019, eða eftir að hið svo­kall­aða Klaust­ur­mál kom upp. Heild­ar­úr­taks­stærð var 4.899 og þátt­töku­hlut­fall var 58,0 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár