Svona átti Ísland að verða 2015 samkvæmt áætlun Viðskiptaráðs

Árið 2006 héldu Íslend­ingar að þeir væru að sigra heim­inn. Að það væri eitt­hvað í genum okkar sem gerði þjóð­ina fær­ari til að ná árangri í alþjóða­væddum heimi. Kjarninn í þess­ari útrás var banka­starf­semi. Við­skipta­bank­arnir þrír uxu stór­kost­lega ár frá ári og umsvif þeirra úti í hinum stóra heimi, útrásin, juk­ust á ógn­væn­legum hraða. Með fylgdu allskyns fylgi­hnettir sem byggðu starf­semi sína fyrst og síð­ast á ótæm­andi aðgangi að láns­fjár­magni frá bönk­unum.

Opinbera skýr­ingin á þess­ari vel­gengni var sú að Íslend­ing­arnir væru að nýta sér­kenni sín sem stolt og harð­gerð örþjóð til að ná for­skoti á aðrar sem höfðu þó stundað fjár­mála­starf­semi öldum saman, á meðan að Íslend­ingar höfðu haft frjálst og opið banka­kerfi í um fjögur ár á þessum tíma. Kjarkur, þor, áhættu­sækni og stuttar boð­leiðir voru kost­irnir sem áttu að hafa veitt Íslend­ing­unum sam­keppn­is­for­skotið og þar af leið­andi vel­gengn­ina. Raun­veru­leik­inn var hins vegar sá, sem við vitum auð­vitað núna, að ástæða þess að pen­ingar streymdu inn í íslensku bank­anna, og út úr þeim aftur til mis­gáfu­legra við­skipta­jöfra, voru háir vextir. Þ.e. fjár­festar gátu tekið lán í lág­vaxt­ar­myntum eins og frönkum og jenum og keypt íslensk skulda­bréf þar sem vextir, og þar af leið­andi ávöxtun, voru miklu hærri. Vegna þessa varð gríð­ar­leg eft­ir­spurn eftir skulda­bréfum útgefnum í íslenskum krónum. Þúsundir millj­arða króna streymdu til lands­ins og bank­arnir lögðu þeim pen­inga­stafla víðs­vegar um þjóð­fé­lagið.

Síðan kom auð­vitað að skulda­dögum haustið 2008 og ljóst var að eina snilli útrás­ar­vík­ing­anna lá í því að tryggja sér yfir­ráð og/eða áhrif yfir bönkum sem lán­uðu þeim ótrú­legar upp­hæðir til að kaupa eignir út um allan heim á yfir­verði.

Framtíðarhópur skipaður forystumönnum úr viðskiptalífinu


En sá veru­leiki hafði ekki runnið upp árið 2006. Þá var partýið í fullum gangi og „stemmn­ing“ fyrir þeirri menn­ingu sem síðar fór nærri með að setja landið á haus­inn enn gríð­ar­lega mikil. Í því tómi lét Við­skipta­ráð Íslands gera skýrslu um hvernig Ísland ætti að vera árið 2015, eða í ár.

Skýrslan byggði á afrakstri funda sem fram­tíð­ar­hópur Við­skipta­ráðs Íslands hafði setið og fóru fram undir for­ystu Þórs Sig­fús­sonar, þáver­andi for­stjóra Sjóvá, og Guðfinnu Bjarna­dóttur, þáver­andi rektor Háskól­ans í Reykja­vík.

[caption id="attachment_10477" align="alignnone" width="1024"] Hreiðar Már Sig­urðs­son, á for­stjóri stærsta banka lands­ins, sat í fram­tíð­ar­hópnum.[/caption]

Hreiðar Már Sigurðsson, á forstjóri stærsta banka landsins, sat í framtíðarhópnum.
Hreiðar Már Sig­urðs­son, á for­stjóri stærsta banka lands­ins, sat í fram­tíð­ar­hópnum.

Í fram­tíð­ar­hópnum sátu fjöl­margir þáver­andi for­ystu­menn úr íslensku við­skipta­lífi. Á meðal þeirra voru Ágúst Guð­munds­son (kenndur við Bakkavör og Exista), Baldur Guðnason (þá for­stjóri Eim­skipa­fé­lags Íslands), Bjarni Ármanns­son (þá for­stjóri Glitnis/Íslands­banka), Brynjólfur Bjarna­son (þá for­stjóri Símans), Erlendur Hjalta­son (þá for­stjóri Exista), Finnur Ing­ólfs­son (fyrrum ráð­herra Fram­sókn­ar­flokks­ins og þá for­stjóri VÍS), Gunnar Páll Pálsson (þá stjórn­ar­maður í Kaup­þingi og for­maður VR), Kristín Jóhann­es­dóttir (þá for­stjóri Gaums), Róbert Wessman (þá for­stjóri Actavis Group), Magnús Scheving (kenndur við Latabæ), Hörður Arnarson (þá for­stjóri Marel hf.), Þórður Már Jóhann­es­son (þá for­stjóri Straums-Burðarás fjár­fest­inga­banka) og Hreiðar Már Sig­urðs­son (þá for­stjóri Kaup­þings). Einnig voru full­trúar lista­manna og fleiri full­trúar háskóla­sam­fé­lags­ins í hópnum.

Í kynn­ingu á skýrsl­unni stendur að henni sé „engan veg­inn ætlað að vera tæm­andi um það hvernig þjóð­fé­lagið á að vera. Fyrst og fremst er ætl­unin að tæpa á þeim sviðum sem mik­il­væg­ust eru við­skipta­líf­inu“.

Það er því mjög áhuga­vert í dag, þegar árið 2015 er loks runnið upp, að máta þessa fram­tíð­ar­sýn Við­skipta­ráðs við raun­veru­lega stöðu árið 2015.

Hættum að bera okkur saman við Norðurlönd, við erum betri


„Íslensku fyr­ir­tækin sem leitt hafa útrás­ina á und­an­förnum árum byggja öll meira eða minna á þeim kostum og ein­kennum sem við teljum okkur hafa sem þjóð í augum útlend­inga. Við erum lítil, vel tengd inn­byrðis, erum fljót að átta okkur á stöðu mála, erum hug­mynda­rík, tökum ákvarð­anir strax og lærum fljótt og örugg­lega af reynsl­unni.“ Svona er kom­ist að orði í fyrsta kafla skýrsl­unnar, en sá kafli ber heitið „Hvernig á Ísland að vera 2015?“

Í lok kafl­ans er lögð fram aðgerð­ar­á­ætlun til árs­ins 2015 sem hefur það mark­mið að gera Ísland að sam­keppn­is­hæf­asta landi í heimi. Skýrslu­höf­undar leggja til að íþyngj­andi reglu­verki sem hvíldi á við­skipta­líf­inu ætti að létta og að Íslend­ingar ættu að "láta vinda við­skipta­frelsis leika um sem flest svip hag­kerf­is­ins“. Því meira frelsi sem væri því meira svig­rúm hefði við­skipta­lífið til að vaxa og dafna.

Þá hafna skýrslu­höf­undar sam­an­burði við hin Norð­ur­löndin þegar gæði landa eru borin saman. Þeir segja að slíkur sam­an­burður sé oftar en ekki dreg­inn upp þegar „til stendur að færa rök fyrir frek­ari rík­is­af­skiptum, meiri rík­is­út­gjöldum eða hærri sköttum. Skattar á Norð­ur­lönd­unum er miklu hærri en hér og þeir búa við ofvaxin vel­ferð­ar­kerfi sem fram­leiða bók­staf­lega vanda­mál á ýmsum sviðum.“

[caption id="attachment_16343" align="alignnone" width="1024"] Skýrslu­höf­undar vildu að Íslend­ingar hættu að bera sig saman við hinar Norð­ur­landa­þjóð­irnar. Við værum betri en þær. Hér sést mið­borg Kaup­manna­hafnar.[/caption]

Skýrsluhöfundar vildu að Íslendingar hættu að bera sig saman við hinar Norðurlandaþjóðirnar. Við værum betri en þær. Hér sést miðborg Kaupmannahafnar.
Skýrslu­höf­undar vildu að Íslend­ingar hættu að bera sig saman við hinar Norð­ur­landa­þjóð­irnar. Við værum betri en þær. Hér sést mið­borg Kaup­manna­hafnar.

Því sé oft ekki um gæfu­legan sam­an­burð eða háleit við­mið að ræða. „Við­skipta­ráð leggur til að Ísland hætti að bera sig saman við Norð­ur­löndin enda stöndum við þeim framar á flestum sviðum. Ísland ætti þess í stað að bera sig saman við þau ríki sem standa hvað fremst á hverju sviði fyrir sig.“

Þess má geta að Danmörk, Svíþjóð, Noregur og Finnland eru oftar en ekki á meðal þeirra landa sem raða sér í mörg af efstu sæt­unum í sam­an­tektum um þau lönd sem best er að búa í í heim­inum, að teknu til­liti til ýmissa mis­mun­andi þátta.

Þess í stað ætti að nýta þann mikla með­byr sem væri til staðar gagn­vart íslensku við­skipta­lífi „og leita allra leiða til að mark­aðs­setja Ísland sem alþjóð­lega mið­stöð fjár­mála og þjón­ustu“. Samhliða ætti að leyfa útlend­ingum að kaupa í íslenskum sjáv­ar­út­vegs- og orku­fyr­ir­tækjum. Næstu skref íslenskrar útrásar yrðu ekki tekin fyrr en að opnar yrði fyrir það. „Ástæðan er sú að útrás fyr­ir­tækja gengur ekki aðeins út á að íslensk fyr­ir­tæki kaupi erlend, heldur þurfa útlend­ingar að geta orðið hlut­hafar í íslenskum fyr­ir­tækjum í gegnum sam­runa.“

Í aðgerð­ar­á­ætlun sem lögð var fram til að ná þessum háleitu mark­miðum Við­skipta­ráðs árið 2015 var auk ofan­greinds m.a. lagt til að:

— Stórauka ensku­kennslu á fyrstu skóla­árum svo Íslend­ingar verði jafn­vígir á bæði málin.

— Styrkja í sessi gott sið­ferði í við­skipta­líf­inu.

— Gera hag­kerfið skap­andi.

— Fjölga tví­skött­un­ar­samn­ingum, fjár­fest­inga­samn­ingum og loft­ferða­samn­ingum.

— Leggjast á eitt að gera Ísland ein­fald­ara.

— Ganga aldrei skemur en sam­keppn­is­þjóð­irnar í umbótum á skatt­kerf­inu.

Ríkið átti að hætta samkeppni, í öllu


Það voru ekki bara umbætur á við­skipta­líf­inu, efna­hags­líf­inu og skatt­kerf­inu sem Við­skipta­ráð vildi sjá að yrðu orðnar að veru­leika árið 2015. Það vildi einnig taka vel til í skóla­málum, meðal ann­ars með því að minnka mið­stýr­ingu í skóla­kerf­inu, auka eina kostn­að­ar­þátt­töku for­eldra og nem­enda og tryggja rekstr­ar­grund­völl „sjálf­stæðra“ grunn­skóla, sem væru þá einka­reknir, með upp­töku svo­kall­aðs ávís­un­ar­kerfis þar sem það fjár­magn sem ríkið greiðir vegna hvers nem­anda fylgir honum til skóla að eigin vali.

Í atvinnu­málum vildi Við­skipta­ráð fjölga þeim sem sækja sér menntun erlendis og að gefa starfs­fólki meuiri kost á sveigj­an­legri vinnu­stað, vinnu­tíma og starfs­lokum þannig að vinnu­lag Íslend­inga hent­aði betur þeim alþjóða­heimi fjár­mála sem landið átti að vera mið­punkt­ur­inn í árið 2015.

[caption id="attachment_13912" align="alignnone" width="624"] Lagt var til að ríkið drægi saman seglin á nán­ast öllum sviðum og leyfði einka­fram­tak­inu að sjá um sam­keppn­is­rekstur, líka í heil­brigð­is­málum, mennta­málum og sam­göngu­málum.[/caption]

Lagt var til að ríkið drægi saman seglin á nánast öllum sviðum og leyfði einkaframtakinu að sjá um samkeppnisrekstur, líka í heilbrigðismálum, menntamálum og samgöngumálum.
Lagt var til að ríkið drægi saman seglin á nán­ast öllum sviðum og leyfði einka­fram­tak­inu að sjá um sam­keppn­is­rekstur, líka í heil­brigð­is­málum, mennta­málum og sam­göngu­málum.

Við­skipta­ráð hafði síðan sterkar skoð­anir á því hvert hlut­verk rík­is­ins ætti að vera í íslensku fjár­mála­mið­stöð­inni. Lagt var til að Íbúða­lána­sjóður hætti að lána í sam­keppni við banka, að ríkið léti einka­að­ila fjár­magna, byggja og reka allar nýjar heil­brigð­is­stofn­anir (meðal ann­ars hátækni­sjúkra­hús), að einka­að­ilar myndu taka við fleiri þáttum almanna­trygg­inga­kerf­is­ins, að einka­að­ilar myndu byggja, fjár­magna og reka fleiri sam­göngumarn­n­virki, að tollar á land­bún­að­ar­vörur yrðu afnumdir og styrkir til þá sem stunda þá atvinnu­grein lagðir af. Þá átti líka að fækka ráðu­neyt­unum og stofn­unum.

Sam­an­dregið átti ríkið að draga mjög úr umfangi sínu, leyfa frels­is­vind­unum að blása um sem flest svið sam­fé­lags­ins og hætta allri sam­keppni við einka­að­ila, sama á hvaða sviði það væri.

Átti að rugga bátnum, sem valt næstum því fyrir vikið


Í nið­ur­lagi skýrsl­unnar kemur fram að til­gangur hennar sé að rugga bátnum og hvetja til umræðu. Þar segir að meg­in­verk­efni Við­skipta­ráðs sé að starfa sem þankatankur í íslensku sam­fé­lagi og láta ekk­ert afskipt. „Góðar hug­myndir hljóta þannig braut­ar­gengi hvaðan sem þær koma enda skiptir engu máli hvaðan gott kemur. Við stöndum til reiðu að rugga bátnum. Við hvetjum aðra til að gera slíkt hið sama.“

Í dag, þegar árið 2015 er loks runnið upp, og síð­ustu ár þró­uð­ust á allt annan veg en Við­skipta­ráð gerði ráð fyrir, er áhuga­vert að lesa til­lög­urnar. Margt af því sem Við­skipta­ráð fór fram á varð nefni­lega að veru­leika á þeim tveimur árum sem liðu frá útkomu skýrsl­unnar og þar til að íslenskt efna­hags­líf hrundi haustið 2008. Frelsið sem við­skipta­líf­inu var gefið var til að mynda gjör­nýtt, með þeim afleið­ingum að Kaupþing, Lands­banki og Glitnir hrundu á þremur dögum með gjald­þrota­hvelli sem var einn sá hæsti sem heyrst hefur í heims­sög­unni. Sumir nýttu frelsið og eft­ir­lits­leysið til að fremja stór­tæk efna­hags­brot, og sitja fyrir vikið í ára­löngu fang­elsi. Aðrir fóru bara ævin­týra­lega skarpt á haus­inn með fyr­ir­tækin sem þeir stýrðu þegar kom að því að greiða upp öll him­in­háu lánin sem þeir höfðu tekið. Þá voru ekki til neinir pen­ingar til að borga þau. Fyrir vikið töp­uðu erlendir kröfu­hafar íslenskra fjár­mála­fyr­ir­tækja og útrás­ar­fé­laga um sjö þús­und millj­örðum króna á Íslands­að­komu sinni, þótt eitt­hvað fáist til baka við upp­gjör slita­búa bank­anna sem framundan eru. Það má segja að bátnum hafi sann­ar­lega verið ruggað. Raunar svo mikið að honum nærri hvolfdi.

Sýn fram­tíð­ar­hóps Við­skipta­ráðs á það hvernig Ísland ætti að verða hefur ekki orðið að veru­leika. Þess í stað upp­lifði Íslands efna­hags­hrun, alls­herjar end­ur­skipu­lagn­ingu efna­hags­kerf­is­ins, fjár­magns­höft, mikil sam­fé­lags­leg átök um það hvernig land við ættum að vera og ýmis­legt fleira sem blasti ekki við árið 2006. Það ber heldur ekki mikið á mörgum þeirra sem skip­uðu fram­tíð­ar­hóp­inn þessi dægrin. Þetta þá áhrifa­mesta fólk sam­fé­lags­ins lætur flest allt mun minna fyrir sér fara nú en þá.

En eftir situr spurn­ing sem vert er að velta fyrir sér. Ef allar for­sendur Við­skipta­ráðs hefðu gengið upp, og sam­fé­lagið tekið ráð­legg­ingum fram­tíð­ar­hóps­ins, væri Ísland þá betra land árið 2015 en það er í dag?

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár