Verkefnastjórn þarf að undirrita trúnaðaryfirlýsingu

For­sæt­is­ráð­herra skip­aði þriggja manna nefnd til að end­ur­skoða pen­inga­stefnu Seðla­bank­ans. Í hana voru skip­aðir fyrr­ver­andi ráð­herra og tveir hag­fræð­ingar með tengsl við fjár­mála­fyr­ir­tæki. Hópurinn verður lát­inn und­ir­rita trún­að­ar­yf­ir­lýs­ingu.

Bjarni Benediktsson forsætisráðherra skipaði verkefnastjórnina.
Bjarni Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra skip­aði verk­efna­stjórn­ina. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Verk­efna­stjórn um end­ur­mat á pen­inga­stefnu, sem skipuð var fyrr í mán­uð­inum, mun und­ir­rita trún­að­ar­yf­ir­lýs­ingu á fyrsta fundi sínum. Hún getur þó unnið að end­ur­skoðun pen­inga­stefnu Seðla­banka Íslands án þess að hafa aðgang að trún­að­ar­upp­lýs­ingum en fái nefndin slíkar upp­lýs­ingar um reglur um með­ferð inn­herj­a­upp­lýs­inga og við­skipta inn­herja gilda. Þetta kemur fram í svari for­sæt­is­ráðu­neytis við fyr­ir­spurn Kjarnans um málið.

[links]Bjarni Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra skip­aði verk­efna­stjórn um end­ur­mat á pen­inga­stefnu. Í henni sitja Illugi Gunn­ars­son, hag­fræð­ingur, fyrr­ver­andi mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra og þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins um ára­bil, og hag­fræð­ing­arnir Ásgeir Jónsson, efna­hags­ráð­gjafi Virð­ingar og dós­ent, og Ásdís Krist­jáns­dóttir, sem starfar hjá Samtökum atvinnu­lífs­ins. For­sæt­is­ráðu­neytið segir alla sem í hópnum sitja vera með „menntun, reynslu og þekk­ingu á pen­inga­stefnu­málum sem nýt­ast mun í starfi verk­efn­is­stjórar.“

Þurftu að undirrita drengskaparheit

Þetta er alls ekki fyrst hópur utan­að­kom­andi sér­fræð­inga sem ríkið hefur skipað til að móta stefnu í mik­il­vægum málum á und­an­förnum árum. Í ágúst 2013 skip­aði Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, tvo sér­fræði­hópa. Annar hóp­ur­inn átti að skila til­lögum um höf­uð­stólslækkun verð­tryggðra hús­næð­is­lána. Formaður þess hóps var Sigurður Hann­es­son, þá fram­kvæmda­stjóri eigna­stýr­ingar hjá MP banka, sem í dag heitir Kvika.

Í hinum sér­fræði­hópnum, sem áti að vinna að afnámi verð­trygg­ingar á neyt­enda­lánum, sat Valdimar Ármann, þá sjóðs­stjóri hjá GAMMA, Þar sat líka Iða Brá Bene­dikts­dóttir, þá for­stöðu­maður einka­banka­þjón­ustu Arion banka. Öll þrjú ofan­greint stýrðu því starf­semi þar sem fjár­fest var í skulda­bréfum. Á þeim tíma voru margir leik­endur á mark­aði, og starfs­menn ann­arra fjár­mála­fyr­ir­tækja, ósáttir með þessa stöðu. Þeim þótti það skjóta skökku við að starfs­menn ákveð­inna fjár­mála­fyr­ir­tækja hefðu aðgang að inn­herj­a­upp­lýs­ingum um skulda­bréfa­markað í vinnu sinni. Þótt ekki væri til­efni til að ætla að umræddir aðilar myndu nýta upp­lýs­ing­arnar til að hjálpa fyr­ir­tækjum sínum að hagn­ast þá sköp­uðu þessar aðstæður van­traust á mark­aði sem leiddi til þess að við­skipti voru tor­tryggð.

For­sæt­is­ráðu­neytið fór ekki fram á að sér­fræð­ing­arnir sem sátu í hóp­unum myndu víkja úr störfum sínum á meðan að þeir sinntu sér­fræð­inga­hóp­unum. Meðlimir hópanna voru hins vegar látnir und­ir­rita dreng­skap­ar­heit við upp­haf starfs síns þar sem kveðið var á um þagn­ar­skyldu um atriði sem þeir kynnu að hafa upp­lýs­ingar um. Í svari ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarnans um málið á sínum tíma sagði enn fremur: „Einnig er sér­stak­lega áréttað í yfir­lýs­ing­unni að við­kom­andi sé kunn­ugt um að með­limir hóps­ins kunni í starfi sínu að fá vit­neskju um inn­herj­a­upp­lýs­ingar og telj­ist þar með inn­herjar.“

Haftahópurinn undirritaði trúnaðaryfirlýsingu

Á árinu 2014 var skipuð fram­kvæmda­stjórn til að taka þátt í vinnu við losun fjár­magns­hafta. Breyt­ingar voru gerðar á fram­kvæmda­stjórn­inni í jan­úar 2015. Þá fór Freyr Her­manns­son, for­stöðu­maður fjár­stýr­ingar Seðla­bank­ans, út úr hópnum og Sig­urður Hann­es­son, þá fram­kvæmda­stjóri eigna­stýr­ingar hjá MP banka, tók sæti í hon­um. Seðla­banki Íslands til­nefndi líka tvo starfs­menn bank­ans til að starfa í fram­kvæmda­hópn­um: Ingi­björgu Guð­bjarts­dótt­ur, fram­kvæmda­stjóra gjald­eyr­is­eft­ir­lits Seðla­bank­ans,og Jón Þ. Sig­ur­geirs­son, fram­kvæmda­stjóra alþjóða­sam­skipta og skrif­stofu banka­stjóra. Auk þeirra voru í hópnum Glenn Victor Kim, Benedikt Gíslason og Ásgeir Helgi Reykj­fjörð Gylfa­son, yfir­lög­fræð­ingur MP banka, sem tók sæti í hópnum í byrjun árs 2015.

Ljóst var að þeir sem störf­uðu að áætl­un­ar­gerð um losun hafta bjuggu yfir mjög verð­mætum upp­lýs­ingum sem gætu nýst á mark­aði til að hagn­ast veru­lega. Í trún­að­ar­yf­ir­lýs­ingu sem allir sem vinna með hafta­los­un­ar­hópnum eru látnir skrifa undir kom fram hversu við­kvæmar upp­lýs­ing­arnar væru og hversu mik­il­vægt það væri fyrir sér­fræð­ing­anna að halda trúnað um þær.

Hefðu þeir brotið gegn þeim trún­aði eða mis­notað upp­lýs­ing­arnar með ein­hverjum hætti gæti það verið talið sak­næmt athæfi, og við­kom­andi efði getað verið ákærður fyrir vik­ið.

Endurskoða peningastefnuna

Þann 12. mars síð­ast­lið­inn skip­aði Bjarni Bene­dikts­son verk­efn­is­stjórn um end­ur­mat á ramma pen­inga­stefnu Seðla­banka Íslands. Tilkynnt var um skipan nefnd­ar­innar sama dag og boðað var til frétta­manna­fundar til að upp­lýsa um stór skref í átt að losun fjár­magns­hafta. Þrír voru skip­aðir í nefnd­ina: Dr. Ásgeir Jónsson hag­fræð­ingur, Ásdís Krist­jáns­dóttir hag­fræð­ingur og Illugi Gunn­ars­son hag­fræð­ingur og fyrr­ver­andi ráð­herra.

Enn og aftur hefur skipan nefnd­ar­innar valdið ólgu innan fjár­nála­geirans, þar sem Ásgeir starfar sem efna­hags­ráð­gjafi Virð­ingar og Ásdís er gift Agnari Tómasi Möller, ann­ars stofn­anda GAMMA og fram­kvæmda­stjóra sjóða hjá fyr­ir­tæk­inu. Upp­lýs­ingar um breyt­ingar á pen­inga­stefnu gætu nýst á mark­aði.

Kjarninn beindi fyr­ir­spurn til for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins og spurði hvort verk­efna­stjórnin yrði bundin af reglum um með­ferð inn­herj­a­upp­lýs­inga og við­skipti starfs­manna með fjár­mála­gern­inga? Þá var einnig spurt hvort verk­efna­stjórnin hefði verið látin und­ir­rita trún­að­ar­yfirýs­ingu gagn­vart þeim upp­lýs­ingum sem hún mun hafa undir höndum á meðan að á vinnu hennar stendur?

Í svari ráðu­neyt­is­ins segir að unnt sé að vinna að end­ur­skoðun á pen­inga­stefnu án þess að hafa aðgang að trún­að­ar­upp­lýs­ingum „Fái verk­efn­is­stjórn um pen­inga­stefnu trún­að­ar­upp­lýs­ingar í starfi sínu gilda um það almenn lög og reglur líkt og um aðra hópa sem skip­aðir eru af stjórn­völdum, þar með talið lög um verð­bréfa­við­skipti nr. 108/2007 og reglur um með­ferð inn­herj­a­upp­lýs­inga og við­skipti inn­herja nr. 1050/2012. Til að hnykkja betur á þessum laga­á­kvæðum og reglum mun verk­efn­is­stjórn und­ir­rita trún­að­ar­yf­ir­lýs­ingu á fyrsta fundi sínum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár