„Ekki drifnir áfram af kynhvöt heldur löngun til að valda sársauka og þjáningu“

„Ég var komin fjóra mán­uði á leið. Ég veit ekki hvort þeir átt­uðu sig á því að ég væri ólétt. Ég veit ekki hvort þeir átt­uðu sig á því að ég væri mann­eskja,“ sagði tví­tug kona sem lifði af hópnauðgun her­manna.

Líkamar kvenna voru víg­völlur stríð­andi fylk­inga í borg­ara­styrj­öld­inni í Eþíópíu sem lauk árið 2022. Í átök­unum beittu stríðs­menn kerf­is­bundnu kyn­ferð­is­legu ofbeldi, nauð­ung­ar­þung­unum og réð­ust að lík­ömum kvenna í því skyni að koma í veg fyrir að þær gætu orðið þung­aðar. Ofbeldið var kerf­is­bundið og hefur nú verið skil­greint sem stríðs­glæpir og glæpir gegn mann­kyni af Mann­rétt­inda­sam­tökum í Afríku. 

Í norð­ur­hluta Eþíópíu er Tígrey-hérað þar sem skelfi­legt stríð var háð frá árinu 2020 til 2022. Sam­bands­her Eþíópíu, sem studdur var af erlendum her­sveitum frá Eretríu og vopn­uðum sveitum frá nær­liggj­andi hér­uðum, barð­ist gegn stjórn­mála­flokknum Tigray People's Liberation Front. Alls lét­ust um 600.000 manns í átök­unum og stríð­andi öfl voru öll sökuð um voða­verk.

Meðvitað og kerfisbundið ofbeldi

Á fimmtu­dag birtu Mann­rétt­inda­sam­tökin Organization for Justice and Accountability in the Horn of Africa (OJAH) og Physicians for Human Rights (PHR) skýrslu, þar sem fram kom að við­töl við 500 heil­brigð­is­starfs­menn …

Kjósa
27
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • SIB
    Sigurður I Björnsson skrifaði
    Við erum ógeðslegasta villidýrið á þessari plánetu og það er ekki erfitt að sýna fram á það. Sannanirnar liggja allstaðar.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár