Meirihluti andvígur veggjöldum

Einn af hverjum fjórum Íslend­ingum eru fylgj­andi veggjöldum, en karlar eru frekar and­vígir slíkum gjöldum en konur. Fólk á lands­byggð­inni er lík­legra til að vera á móti veggjöldum.

56% Íslendinga eru á móti því að veggjöld verði innheimt af þeim sem ferðast um þjóðvegi landsins, ef marka má könnun MMR.
56% Íslend­inga eru á móti því að veggjöld verði inn­heimt af þeim sem ferð­ast um þjóð­vegi lands­ins, ef marka má könnun MMR. Mynd: Birgir Þór

Meiri­hluti Íslend­inga er mót­fall­inn upp­töku veggjalda til að standa straum af rekstri þjóð­vega á Íslandi, sam­kvæmt nýrri könnun frá MMR. 56 pró­sent svar­enda sögð­ust á móti veggjöldum, en þar af voru 39 pró­sent mjög and­víg og 16,6 pró­sent frekar and­víg.

Tæplega nítján pró­sent aðspurðra voru hvorki fylgj­andi né and­víg gjöld­unum. 18,5 pró­sent eru frekar fylgj­andi og 6,9 pró­sent mjög fylgj­andi veggjöldum.

Karlar eru lík­legri en konur til þess að vera á móti veggjöldum, 60 pró­sent karla eru and­vígir veg­tollum en 50 pró­sent konur.

Fólk á aldr­inum 18 til 29 ára var óákveðn­ara í afstöðu sinni til veggjalda en aðrir ald­urs­hópar, en 32 pró­sent voru hvorki fylgj­andi né and­víg. Stuðn­ingur við upp­töku veggjalda eykst með hækk­andi aldri, og 29 pró­sent fólks á aldr­inum 68 ára og eldri eru fylgj­andi veggjöldum.

Íslend­ingar á lands­byggð­inni eru frekar and­vígir inn­heimtu veggjalda en íbúar höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins, 63 pró­sent á móti 52 pró­sentum.

Stuðn­ings­fólk Pírata og Sam­fylk­ing­ar­innar eru tölu­vert lík­legri en stuðn­ings­fólk ann­arra flokka til að vera mjög and­víg inn­heimtu veggjalda, 57% og 50% and­víg. Aftur á móti er stuðn­ings­fólk Við­reisnar mun lík­legra en stuðn­ings­fólk ann­arra flokka til að vera frekar eða mjög hlynnt veggjöldum. 45 pró­sent þeirra eru hlynnt veggjöldum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár