Velskur héri og franskar með öllu

Ævin­týra­ferð um enska mat­ar­gerð­ar­list. Djúp­steikt allt og Snickers sem áður hét Marathon.

Hádegisverður plægingarmannsins
Hádeg­is­verður plæg­ing­ar­manns­ins Valur Gunn­ars­son plægir sig í gegnum breska mat­ar­menn­ingu. Mynd: Valur Gunnarsson

„Ég borða ekki franskar,“ til­kynni ég bekkj­ar­fé­lögum mínum þegar sá óhjá­kvæmi­legi tími kemur að allir vilja fara að fá sér fisk og franskar.

„En … en … hvað borðar þú þá?“ spyr ein stúlkan for­viða. Þegar stórt er spurt, og ég á eig­in­lega hálf erfitt með að svara. Ef til vill leið fyrstu græn­metisæt­unum eins þegar þeir reyndu að útskýra kjöt­lausan lífs­stíl sinn fyrir venju­legu fólki.

Eins og flestir vita kalla Bretar franskar kart­öflur „chips“ en Banda­ríkja­menn nota það orð um kart­öflu­flögur. Bretar kalla hið síð­ar­nefnda „crisps,“ helsti fram­leið­and­inn nefn­ist Walkers og er fyr­ir­tækið 70 ára um þessar mundir, en vin­sældir flög­unnar má rekja til seinni heims­styrj­aldar þegar kjöt var af skornum skammti. „Crisp sandwich“ sam­anstendur síðan af fransk­brauð­sneið með poka af kart­öflu­flögum ofan á og síðan annarri brauð­sneið efst.

Franskar með ölluFranskar eru bornar fram með nálega öllu í Bret­landi, það er …
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár