Virði Valitor komið niður í 11,7 milljarða – Hefur lækkað um fjóra milljarða á árinu

Rekstur Valitor heldur áfram að vera erf­iður. Fyr­ir­tækið tap­aði fjórum millj­örðum á fyrstu níu mán­uðum árs­ins 2019 og tekjur dróg­ust saman um fjórð­ung milli ára. Fyr­ir­tækið er til sölu en verð­mið­inn heldur sífellt áfram að lækka.

Viðar Þorkelsson er forstjóri Valitor, sem byggir starfsemi sína á grunni VISA Ísland, sem stofnað var 1983. Hann hefur stýrt fyrirtækinu frá árinu 2010.
Viðar Þor­kels­son er for­stjóri Valitor, sem byggir starf­semi sína á grunni VISA Ísland, sem stofnað var 1983. Hann hefur stýrt fyr­ir­tæk­inu frá árinu 2010. Mynd: Aðsend

Valitor Holding, dótt­ur­fé­lag Arion banka sem á greiðslu­miðl­un­ar­fyr­ir­tækið Valitor, er nú metið þá 11,7 millj­arða króna í bókum bank­ans. Það er 4,1 millj­arði króna lægri verð­miði en var á fyr­ir­tæk­inu um síð­ustu ára­mót. Þetta kemur fram í upp­gjöri Arion banka fyrir þriðja árs­fjórð­ung árs­ins 2019 sem var birt eftir lokun mark­aða í gær.

[adspot]Valitor hefur verið flokkað sem eign til sölu frá því á síð­asta árs­fjórð­ungi 2018.

Tekjur Valitor hafa dreg­ist saman um 1.240 millj­ónir króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins 2019 þegar miðað er við sama tíma­bil í fyrra, og voru tæp­lega 3,6 millj­arðar króna nú. Það er sam­dráttur í tekjum um rúman fjórð­ung á einu ári. Munar þar mestu um að þjón­ustu­tekjur dróg­ust saman um 1,2 millj­arða króna.

Á sama tíma hefur rekstr­ar­kostn­aður auk­ist úr 5,9 millj­örðum króna í tæp­leg 7,8 millj­arða króna, eða um 31 pró­sent.

Sex milljarða tap frá byrjun síðasta árs

Tap Valitor á þessu ári kemur í fram­haldi af 1,9 millj­arða króna tapi í fyrra. Sam­an­lagt tap fyr­ir­tæk­is­ins frá byrjun árs 20189 nemur því sex millj­örðum króna. Árið 2017 skil­aði Valitor 940 milljón króna hagn­aði.

Benedikt Gíslason, banka­stjóri Arion banka, sagði í til­kynn­ingu til Kaup­hallar Íslands í gær, þar sem fjallað er um umtals­verðar nið­ur­færslur á virði eigna sem eru til sölu, að í til­felli Valitor sé ástæðan vegna fjár­fest­ingar í alþjóð­legri starf­semi og „gjald­færsla kostn­aðar vegna skipu­lags­breyt­inga.“

[adspot]En ein helsta ástæðan fyrir tap­inu er þó sú að einn stærsti við­­skipta­vinur Valitor, Stripe, hætti færslu­hirð­ing­­ar­við­­skiptum sínum við Valitor um mitt ár 2018, líkt og Kjarn­inn greindi frá í mars í fyrra að stæði til. Þessi ákvörðun Stripe leiddi til þess, sam­­kvæmt afkomutil­kynn­ingu frá Valitor sem send var út fyrr á þessu ári, að velta fyr­ir­tæk­is­ins flutt­ist frá Valitor sem „hafði tals­verð áhrif á vöxt tekna og við­­skipta Valitor á árin­u.“

Greiddu háar skaðabætur

Hluti af tap­inu í ár er til­komið vegna þess að Valitor samdi um að greiða atacell og Sunshine Press Productions, félagi tengt Wikileaks, 1,2 millj­arða króna fyrr á þessu ári í skaða­bæt­ur.

Lands­bank­inn, sem er í eigu íslenska rík­is­ins, greiddi alls 426 millj­ónir króna af af þeim bót­um. Ástæða þess að Lands­bank­inn greiddi hluta skaða­bót­anna er sú að bank­inn átti 38,62 pró­sent í Valitor þegar broti var gegn ofan­greindum félög­um. Þegar Lands­bank­inn seldi Arion banka hlut sinn í Valitor í des­em­ber 2014 var kveðið á um það í kaup­samn­ingi að hann myndi halda Arion banka skað­lausum í mál­inu í hlut­falli við seldan eign­ar­hlut. Því greiddi Lands­bank­inn Arion banka 426 millj­ónir króna þegar sátt lá fyrir í mál­inu, í sam­ræmi við það sam­komu­lag. Valitor, dótt­ur­fé­lag Arion banka, greiddi svo bæt­urn­ar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár