Það er 57 prósent dýrara að búa í miðborginni en í Breiðholtinu

Það er orðið dýr­ara að búa í Foss­vog­inum en í Vest­ur­bænum og fast­eign­ar­eig­endur í Húsa­hverfi geta glaðst vegna ávöxt­unar á fast­eignum sínum á síð­asta ári. Nýtt hverfi í Hafn­ar­firði vermir nú sætið yfir þar sem ódýr­ast er að búa á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Það er dýr­ast á Íslandi að búa í fjöl­býli í mið­borg Reykja­víkur, miðað við með­al­fer­metra­verð. Í fyrra var það þar um 423 þús­und krónur og er mið­borgin eina hverfi höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins þar sem fer­metra­verð fór yfir 400 þús­und krónur að með­al­tali. Ódýrasta hús­næðið í fjöl­býli á höf­uð­borg­ar­svæð­inu er í Vöngunum í Hafn­ar­firði þar sem með­al­fer­metri kostar um 250 þús­und krónur. Það er því 70 pró­sent dýr­ara að búa í mið­borg Reykja­víkur en í Vöngunum i í Hafn­ar­firði. Það er líka 57 pró­sent dýr­ara að búa þar en í t.d. Breið­holti, sem er hverfi í Reykja­vík sem sótt hefur mikið í sig veðrið á und­an­förnum árum. Þetta kemur fram í nýbirtum tölum Þjóð­skrár um þróun íbúða­verðs eftir hverfum og árum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Þau tíð­indi verða á milli ára að fer­metra­verð í Löndunum við Fossvog var orðið hærra í fyrra en á Melum og Högum í Vesturbæ Reykja­víkur. Nú er því næst­dýr­ast að búa í Foss­vogs­hverf­inu á eftir mið­borg­inni.

Og það verður sífellt dýr­ara að búa í mið­borg­inni. Árið 2014 var það átta pró­sent dýr­ara en að búa í næst­dýrasta hverfi höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins. Munurinn um síð­ustu ára­mót var kom­inn í ell­efu pró­sent. Alls hefur fer­metra­verð í fjöl­býli í mið­borg Reykja­víkur hækkað um 25 pró­sent frá lokum árs 2013.

Munurinn á dýrasta og ódýr­ustu hverf­unum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu fer þó minnk­andi. Hann var 75 pró­sent í lok árs 2014 en var, líkt og áður sagði, um 70 pró­sent í lok síð­asta árs.

65 prósent hækkun í miðborginni á fimm árum

Fast­eigna­verð hefur hækkað gríð­ar­lega á höf­uð­borg­ar­svæð­inu á und­an­förnum árum. Frá lokum árs­ins 2010 hefur fer­metra­verð í mið­borg Reykja­víkur, sem afmarkast af Hring­braut og Snorra­braut, farið úr 256.696 krónur í 422.556 krónur. Það er hækkun upp á 65 pró­sent á fimm árum. Fer­metra­verðið þar hækk­aði um tólf pró­sent á síð­asta ári.

Það er meiri hækkun en átti sér stað í Vest­ur­bænum (9,4 pró­sent), á Granda (8,9 pró­sent), Hlíðunum (10,8 pró­sent), Háa­leit­is­braut (5,6 pró­sent), Voga­hverf­inu (4,1 pró­sent) og Heimunum (10,3 pró­sent). Þau hverfi sem til­heyra „gömlu Reykja­vík“ sem hækk­uðu meira en fast­eignir í mið­borg­inni eru fast­eignir í Löndunum (16 pró­sent) og í Laug­ar­nes­hverf­inu (13,7 pró­sent).

Fast­eigna­verð í Breið­holti án Selja­hverfis hækk­aði einnig mynd­ar­lega í fyrra, eða um tólf pró­sent. Fer­metra­verð í Breið­holt­inu er þó enn langt frá því að vera jafn hátt og í flestum hverfum „gömlu Reykja­víkur“. Það munar til að mynda 57 pró­sent á fer­metra­verði í Breið­holt­inu og verð­inu í mið­borg Reykja­víkur.

Samhliða því að eft­ir­spurn eftir stærri eignum hefur auk­ist, líkt og sést meðal ann­ars á miklum hækk­unum í Löndunum, þá hefur verð á fast­eignum í Selja­hverfi einnig hækkað skarpt. Það fór upp um 13,5 pró­sent í fyrra.

Húsahverfið hástökkvari ársins

Mesta hækk­unin á síð­asta ári varð þó í Húsa­hverf­inu í Graf­ar­vogi. Þar fór fer­metra­verðið upp um heil 25,4 pró­sent á milli ára eftir að hafa hald­ist frekar lágt um ára­bil þar á undan. Fer­metra­verð í hverf­inu fór úr 239.887 krónum árið 2014 í 300.856 krónur í fyrra.

Hækkanir á fast­eigna­verði í Kópavogi eru nokkuð stabílar milli ára og í takt við með­al­tals­hækk­anir. Dýrasta hverfi sveit­ar­fé­lags­ins er sem áður Sala­hverfið, þar sem fer­metra­verðið var 327.560 krónur í lok síð­asta árs.

Fjórða dýrasta hverfi höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins, á eftir mið­borg Reykja­víkur, Löndunum og Vest­ur­bænum, er Sjá­lands­hverfið í Garðabæ. Fer­metra­verðið þar er 375.808 krónur og hækk­aði um 8,5 pró­sent í fyrra.

Ódýrasta hverfi höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins er hins­vegar Vanga­hverfið í Hafn­ar­firði. Þar er með­al­fer­metra­verð 249.607 krónur eða 69,2 pró­sent lægra en í mið­borg Reykja­víkur. Vang­arnir taka botns­ætið af Álfa­skeiði í Hafn­ar­firði sem vermdi það árið áður. Sú stað­reynd að hafa verið ódýrasta hverfi höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins virð­ist hafa aukið eft­ir­spurn í Álfa­skeiði mikið því verð á með­al­fer­metra hækk­aði um heil 22 pró­sent í fyrra og er nú 262.291 krónur. Svipuð hækkun átti sér stað á fast­eignum í Hraun­unum í Hafn­ar­firði þar sem með­al­verð á fer­metra hækk­aði um 22,4 pró­sent. Í Bergunum þar í bæ hækk­aði verðið síðan um 16,4 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár