Strembnum þingvetri lauk með átökum um vímuefnamál

Ýmis þing­mál runnu í gegn á síð­asta þing­fundi fyrir sum­ar­frí. Sum í góðri sátt, en önnur ekki. Sam­keppn­is­lögum var breytt, Borg­ar­lína fær­ist nær og stjórn­ar­flokkar lögð­ust gegn breyt­ingum á vímu­efna­lög­gjöf sem þó er fjallað um í stjórn­ar­sátt­mál­anum.

Þing­fundi var frestað á þriðja tím­anum í nótt, eftir atkvæða­greiðslur um hin ýmsu mál sem hafa verið til umræðu í þing­inu síð­ustu vikur. Fjöldi frum­varpa urðu að lögum, en önnur ekki, eins og gengur voru sum felld og önnur þurfa að bíða. Næsti þing­fundur er áætl­aður í lok ágúst.

Ef til vill hefur mesta athygli vakið að tutt­ugu og átta þing­menn stjórn­ar­flokk­anna og Mið­flokks­ins sögðu nei við því að sam­þykkja þing­manna­frum­varp um að hætta að refsa fólki fyrir að vera með í fórum sínum neyslu­skammta af vímu­efnum. Halldóra Mogensen þing­maður Pírata var fyrsti flutn­ings­maður þess.

Þrátt fyrir það virð­ist í grunn­inn meiri­hluta­stuðn­ingur á Alþingi við efni og inn­tak frum­varps­ins og í stjórn­ar­sátt­mála rík­is­stjórn­ar­innar segir að snúa þurfi af braut harðra refs­inga fyrir neyslu fíkni­efna. Svipaðar áherslur má finna í stefnu­skrám bæði Vinstri grænna og Sjálf­stæð­is­flokks­ins, eins og fjallað var um í frétta­skýr­ingu á Vísi í dag.

Níu þing­menn þess­ara tveggja flokka sátu hjá við afgreiðslu máls­ins, þeirra á meðal þrír ráð­herrar. Einn þeirra sem sátu hjá var meira að segja á meðal flutn­ings­manna frum­varps­ins í vel­ferð­ar­nefnd, Ólafur Þór Gunn­ars­son þing­maður Vinstri grænna.

Andrés Ingi Jónsson þing­maður utan flokka benti á það á Twitter að svo virð­ist sem fjöldi þeirra sem sátu hjá hafi verið eins hár og mögu­legt var, en þar sem 55 þing­menn voru í salnum þegar atkvæði voru greidd þurfti akkúrat 28 nei til þess að fella málið.

Samband ungra sjálf­stæð­is­manna harmar aðgerða­leysi þing­manna flokks­ins í tengslum við frum­varpið. „Frum­varpið sem fellt var í gær var ekki full­komið, en er samt sem áður skref í rétta átt. Við hvetjum ráðherra Sjálfstæð­is­flokks­ins til að nýta sum­ar­fríið vel og leggja fram frum­varp um afglæpa­væð­ingu fíkni­efna sem ríkis­stjórnar­frum­varp á haust­þingi, til sam­ræmis við stjórnarsáttmála ríkis­stjórnar­innar,“ sagði í færslu ung­lið­anna á Facebook. Ung vinstri græn hafa sömu­leiðis birt áskorun til þing­manna flokks­ins um að „leiðrétta stöðu mála í takt við sam­þykkta stefnu hreyf­ing­ar­innar.“

Málið hefur vakið upp heitar til­finn­ingar hjá ýmsum í sam­fé­lag­inu. Í dag greindi þing­maður Vinstri grænna Kolbeinn Óttarson Proppé frá því á Facebook að hvítu dufti í litlum pokum hefði verið laumað inn um bréfalúg­una hjá honum. Virtist þing­mað­ur­inn gefa í skyn í færslu sinni að hann teldi send­ing­una póli­tíska og tengj­ast mál­inu og á mbl.is var haft eftir honum að hann teldi það furðu­lega til­viljun, ef svo væri ekki.

Samkeppnislögum breytt

Ýmis frum­vörp voru sam­þykkt, sum með góðum sam­hljómi meiri­hluta og minni­hluta þings en um önnur náð­ist ekki sam­staða. Eitt þeirra var frum­varp Þórdísar Kol­brúnar R. Gylfa­dóttur ráð­herra um sam­keppn­is­mál, sem Kjarninn fjall­aði nýlega um. Breyt­ing­arnar sem fel­ast í frum­varp­inu verið gagn­rýndar af bæði Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu sjálfu, þing­mönnum minni­hlut­ans, auk ann­arra en frum­varpið tók þónokkrum breyt­ingum í með­förum þing­nefndar.

Málið var sam­þykkt með 31 einu atkvæði meiri­hlut­ans gegn 15 atkvæðum Sam­fylk­ingar og Pírata en 9 þing­menn Mið­flokks­ins og Við­reisnar greiddu ekki atkvæði.

Borgarlína og samvinnuverkefni um vegaframkvæmdir

Mikill tími hefur farið í það und­an­farnar vikur að ræða ýmis þing­mál tengd sam­göngum á þjóð­þing­inu og hafa þing­menn Mið­flokks­ins leitt þá umræðu með mál­þófi og aðal­lega fundið fyr­ir­hug­aðri Borg­ar­línu allt til for­áttu.

Í gær­kvöldi voru þó sam­þykkt þing­mál sem færa Borg­ar­línu nær því að verða að veru­leika, en 46 þing­menn allra flokka nema Mið­flokks­ins og Flokk fólks­ins sam­þykktu lög sem heim­ila stofnun opin­bers hluta­fé­lags um upp­bygg­ingu sam­göngu­inn­viða á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sem verður í sam­eign rík­is­ins og sveit­ar­fé­lag­anna á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Einnig voru sam­göngu­á­ætl­anir til fimm og og fimmtán ára sam­þykktar, auk frum­varps Sigurðar Inga Jóhanns­sonar sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra um sam­vinnu­verk­efni um vega­fram­kvæmdir, sem gerir Vega­gerð­inni heim­ilt að leita samn­inga við einka­að­ila til þess að ráð­ast í nokkrar stórar sam­göngu­fram­kvæmdir, raunar sex tals­ins.

Um er að ræða hring­veg norð­austan við Selfoss og brú á Ölfusá, hring­veg um Horna­fjarð­ar­fljót, Axarveg, tvö­földun Hval­fjarð­ar­ganga, hring­veg um Mýrdal og jarð­göng í Reyn­is­fjalli og Sunda­braut.

Borgarlínuverkefnið færðist nær því að verða að veruleika með afgreiðslu Alþingis á samgönguáætlunum og fleiri málum.
Borg­ar­línu­verk­efnið færð­ist nær því að verða að veru­leika með afgreiðslu Alþingis á sam­göngu­á­ætl­unum og fleiri málum.

Málið hefur verið nokkuð umdeilt, sér­stak­lega þar sem heim­ilt verður að inn­heimta veggjöld eins og í „Hval­fjarð­ar­ganga­mód­el­inu“ þegar fólk fer síðan að aka þessa nýju vegi.

Margir þing­menn minni­hlut­ans sátu hjá við afgreiðslu máls­ins, en þing­menn Við­reisnar studdu það þó ásamt stjórn­ar­liðum. Oddný G. Harð­ar­dóttir þing­maður Sam­fylk­ingar var eini þing­mað­ur­inn sem ýtti á rauða hnapp­inn og lagð­ist gegn sam­þykkt frum­varps­ins.

Mikil sátt um að færa sálfræðiþjónustu undir Sjúkratryggingar

Allir við­staddir þing­menn, 54 tals­ins, sam­þykktu frum­varp um að nauð­syn­legar sál­fræði­með­ferðir og aðrar gagn­reyndar við­tals­með­ferðir yrðu felldar undir greiðslu­þátt­töku­kerfi Sjúkra­trygg­inga Íslands. Fjöl­margir þing­menn þvert á þing­flokka standa að frum­varp­inu og segir í nefnd­ar­á­lit­inu að í því felist skýr vilji „til að sýna það í verki að þingið getur staðið saman að mik­il­vægum úrbótum og afgreitt góð mál á mál­efna­legan og fag­legan hátt.“

Ekki er ljóst hver árlegur kostn­aður rík­is­ins yrði vegna nið­ur­greiddrar sál­fræði­þjón­ustu en vel­ferð­ar­nefnd leit svo á að breyt­ing­arnar myndu spara rík­is­sjóði háar fjár­hæðir til lengri tíma.

„Árið 2019 eru áætluð heild­ar­fram­lög rík­is­ins til bóta vegna and­legrar örorku um 19 millj­arðar kr. og talið að þau geti meira en tvö­fald­ast á næsta ára­tug. Þótt það nýja fyr­ir­komu­lag sem að er stefnt með frum­varp­inu kæmi aðeins í veg fyrir lítið hlut­fall nýgengis örorku spar­ast háar fjár­hæðir. Þar að auki má ætla að það dragi úr áhrifum and­legra veik­inda á atvinnu­tæki­færi fólks, fram­legð þess í starfi verði meiri, fjöldi veik­inda­daga færri o.s.frv.,“ sagði nefndin.

Fjármálaráðherra segir peninga skorta

Ekki er þó útséð með hvernig fram­hald máls­ins verður. Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra sagði í við­tali á Bítinu á Bylgj­unni í morgun að skrefið væri tíma­bært, en að ríkið ætti ekki fyrir þessum auknu útgjöldum til nið­ur­greiðslu sál­fræði­þjón­ustu.

„Vandi okkar í augna­blik­inu er að við mættum hafa fleiri krónur í kass­anum,“ sagði Bjarni í við­tal­inu í morgun.

Sál­fræð­inga­fé­lag Íslands fagnar laga­breyt­ing­unum þrátt fyrir þessi orð ráð­herra og telur að verið sé að stíga mik­il­vægt skref í að auka aðgengi almenn­ings, óháð efna­hag, að við­eig­andi geð­heil­brigð­is­þjón­ustu. Öryrkja­banda­lag Íslands fagnar nið­ur­stöð­unni einnig og hvetur fjár­mála­ráð­herra til að útvega það fjár­magn sem þarf til Sjúkra­trygg­inga.

„Þjóðin hefur kallað eftir þessu árum saman og við treystum því að fjár­mála­ráð­herra láti nú lang­tíma­hags­muni þjóð­ar­innar, og þar með rík­is­ins ráða, og standi ekki í vegi fyrir að Sjúkra­trygg­ingar fái fjár­magn til þessa. Fyrst og fremst mun þetta stuðla að auknu geð­heil­brigði fjöl­margra sem er for­senda fyrir því að ein­stak­lingar geti tekið þátt í sam­fé­lag­inu. Það er árang­ur­inn sem ráð­herr­ann á að fagna, og ekki síður að til lengri tíma mun ríkið spara sér háar fjár­hæðir,“ sagði Þuríður Harpa Sig­urð­ar­dóttir for­maður banda­lags­ins, í til­kynn­ingu frá ÖBÍ.

Hlutdeildarlánin bíða

Frumvarp Ásmundar Einars Daða­sonar félags- og barna­mála­ráð­herra um hlut­deild­ar­lánin svoköll­uðu var ekki afgreitt áður en þingi var frestað, en það var lagt fram skömmu fyrir þing­lok. Um stórt mál er að ræða, sem verka­lýðs­hreyf­ingin hefur lagt mikla áherslu á að verði afgreitt, enda málið eitt af þeim atriðum sem stjórn­völd sögð­ust ætla að koma í fram­kvæmd eftir að skrifað var undir lífs­kjara­samn­ing­ana.

Engin sátt er þó um málið í þeirri mynd sem það var lagt fram og hafa bæði Óli Björn Kárason þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks og Lilja Rafney Magn­ús­dóttir þing­maður Vinstri grænna, sem bæði leiða þing­nefndir, gagn­rýnt málið fremur harð­lega í ræðu­stóli Alþingis.

Hlut­deild­ar­lánin eru því ekki orðin að veru­leika, þrátt fyrir að haft hafi verið eftir Ásmundi Einari í frétta­til­kynn­ingu þegar frum­varpið var kynnt fyrir örfáum vikum að það væri „virki­lega ánægju­legt að hlut­deild­ar­lánin séu orðin að veru­leika.“

Refsiákvæði bætt við lög um lán til ferðaskrifstofa

Nokkur mál sem varða efna­hags­leg við­brögð við kór­ónu­veiru­far­aldr­inum voru sam­þykkt í gær, en eitt þeirra sner­ist um stofnun nýs Ferða­á­byrgð­ar­sjóðs, sem ríkið mun nota til þess að lána ferða­skipu­leggj­endum eða smá­sölum fyrir end­ur­greiðslum til neyt­enda sem höfðu keypt pakka­ferðir sem þurfti eða þarf að aflýsa frá 12. mars - 31. júlí.

Alls verður 4,5 millj­örðum veitt í að lána ferða­skrif­stof­unum til þess að end­ur­greiða neyt­endum og síðan hafa þær allt að sex ár til að greiða upp­hæð­ina til baka til rík­is­ins. Kröfur eiga að hafa borist Ferða­mála­stofu, sem hefur umsjón með sjóðnum, fyrir 1. sept­em­ber.

Í með­förum atvinnu­vega­nefndar bætt­ist við frum­varpið refsi­á­kvæði, sem felur í sér að ein­tak­lingar eða fyr­ir­tæki sem brjóti gegn notk­unum og mis­noti lán úr sjóðnum með ein­hverjum hætti, til dæmis með því að veita rangar að mis­vísandi upp­lýs­ingar eða nýta láns­fjár­hæð á ólög­mætan hátt, skuli sæta sektum sektum eða fang­elsi allt að sex árum, nema brotið telj­ist minni­háttar.

Þingforseti bað fólk vel að lifa

Stein­grímur J. Sig­fús­son for­seti Alþingis flutti venju sam­kvæmt ávarp við þing­frestun og fór yfir lið­inn vetur. Hann sagði ekki nokkurn hafa órað fyrir því síð­asta haust, sem vet­ur­inn bar svo í skauti sér.

„Vonsku­veður í des­em­ber með til­heyr­andi raf­magns­leysi og eigna­tjóni gaf tón­inn og í kjöl­farið sigldu snjó­flóð í byggð á Vest­fjörðum, land reis og jörð skalf á Reykja­nesi og kór­ónu­veiran stakk sér niður á Íslandi í febr­ú­ar­lok. Þegar far­ald­ur­inn hafði rénað að mestu, a.m.k. í fyrstu umferð, tók sig upp hörð jarð­skjálfta­hrina fyrir norðan land,“ sagði þing­for­set­inn.

Steingrímur J. Sigfússon forseti Alþingis.
Stein­grímur J. Sig­fús­son for­seti Alþingis.

Hann þakk­aði þrí­eyk­inu Víði, Þórólfi og Ölmu fyrir sín störf í yfir­stand­andi kór­ónu­veiru­far­aldri, sem hefur mjög litað þing­störfin und­an­farna mán­uði.

„Það tókst að halda Alþingi starf­hæfu gegnum far­ald­ur­inn sem var ekki sjálf­gefið. Og það reynd­ist gríð­ar­lega mik­il­vægt, sam­an­ber þá tugi þing­mála sem við í dag­legu tali hér höfum nefnt COVID-mál, og náðum að afgreiða, þar á meðal þrenn fjár­auka­lög,“ sagði Stein­grímur, sem hrós­aði þing­mönnum fyrir störf sín að und­an­förnu og öllu starfs­fólki þings­ins sömu­leiðis.

„Margt er um Alþingi skrifað og skrafað eins og eðli­legt er og stundum erum við þing­menn býsna hörð í dómum um okkur sjálf. Það er sjaldnar sem Alþingi er hrósað en það skal nú gert og eins þótt það sé for­seti Alþingis sjálfur sem það gerir. Ég tel að Alþingi hafi stað­ist með ágætum erfitt próf, reyndar mörg próf sem fyrir okkur hafa verið lögð á þessum sér­stæða, strembna þing­vetri sem nú er að baki og verður vænt­an­lega eft­ir­minni­legur öllum þeim sem hlut áttu að máli,“ sagði Stein­grímur.

Þing kemur ekki saman á ný fyrr en 27. ágúst, sem áður segir, og heldur þá 150. lög­gjaf­ar­þing áfram, en setn­ing 151. lög­gjaf­ar­þings verður ekki fyrr en 1. októ­ber.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

ferðamál

Mest lesið undanfarið ár