Björgólfur Thor aftur kominn á lista Forbes yfir ríkasta fólk í heimi

Björgólfur Thor Björg­ólfs­son er kom­inn aftur á lista Forbes yfir þá sem eiga meira en einn millj­arð dali, yfir 133 millj­arða króna, í eignum. Fimm ár eru síðan að Björgólfur Thor komst síð­ast á list­ann. Í frétt á vef Forbes um málið er ekki til­greint í hvaða sæti Björgólfur Thor er á lista tíma­rits­ins. Það þarf varla að taka það fram að Björgólfur Thor er eini Íslend­ing­ur­inn á list­anum, og reyndar eini Íslend­ing­ur­inn sem hefur nokkru sinni kom­ist á hann. Eignir Björg­ólfs Thors eru metnar á um 1,3 millj­arða dala, um 173 millj­arða króna. Hann situr í 1.415 sæti á list­anum.

Bill Gates, stofn­andi Microsoft, er enn og aftur rík­asti maður heims. Þetta er í 16 sinn á síð­ustu 21 árum sem hann vermir topp­sætið. Heild­ar­eignir hans eru metnar á 79,2 millj­arða dala, eða um 10.500 millj­arða króna. Carlos Slim Helu, fjar­skipta­kóng­ur­inn frá Mexíkó, er í öðru sæti og fjár­festa­goð­sögnin Warren Buffett, véfréttin frá Omaha, er í þriðja sæt­inu.

Alls eru 1.826 millj­arða­mær­ingar á list­anum. Þeir hafa aldrei verið fleiri. 138 manns detta af list­anum á milli ára. Á meðal þeirra eru Petro Poros­henko, for­seti Úkraínu og Aliko Dangote frá Nígeriu, en hann er „tap­ari árs­ins 2014“. Auður hans fór úr 25 millj­örðum dala niður í 14,7 millj­arði dala, eða tæp­lega tvö þús­und millj­arða króna. Dangote er því ekki að fara að líða neinn skort þrátt fyrir að vera hand­hafi þessa vafa­sama heið­urs.

[caption id="attachment_19550" align="alignnone" width="1024"] Bill Gates er, enn og aftur, rík­asti maður heims.[/caption]

Var einu sinni í 249. sæti


Í águst 2014 var til­kynnt að skulda­upp­gjöri Björg­ólfs Thors Björg­ólfs­sonar væri lokið og að hann hefði greitt kröfu­höfum sínum, að mestu stórum alþjóð­legum bönkum, sam­tals um 1.200 millj­arða króna. Þessi upp­gjör tryggði honum ævin­týra­legan auð þar sem hann fékk að halda góðum eign­ar­hluta í Actavis að því loknu. Sá eign­ar­hluti hefur gert Björgólf Thor ævin­týra­lega ríkan á ný.

Árið 2007 var Björgólfur Thor Björg­ólfs­son í 249. sæti yfir rík­ustu menn ver­aldar á lista tíma­rits­ins Forbes. Ári síðar, eftir hrun fjár­mála­kerf­is­ins, stóð hann frammi fyrir tveimur kostum. Annað hvort að verða per­sónu­lega gjald­þrota og láta það verk­efni í hendur kröfu­hafa sinna að vinna sem mest verð­mæti úr eignum hans. Eða að vinna með þeim, leggja allar eignir sínar á borðið, bæði per­sónu­legar eignir og eignir félaga í hans eigu, og reyna að ná sam­komu­lagi sem kæmi í veg fyrir hans per­sónu­lega gjald­þrot. Eftir hrunið lá fyrir að Björgólfur Thor var í per­sónu­legum ábyrgðum vegna skulda sem námu minnst 40 millj­örðum króna.

Skömmu eftir hrun hófust við­ræður milli Björg­ólfs Thors og trún­að­ar­manna hans, og síðar full­trúa lán­ar­drottna sem áttu kröfu á Björgólf Thor og félög hans.

Á end­anum var lagt upp með að reyna að sam­eina Actavis öðru stóru sam­heita­lyfja­fyr­ir­tæki og svo gengið frá und­ir­rit­uðu sam­komu­lagi milli Björg­ólfs Thors og Novators og allra lán­ar­drottna og þeirra sem áttu kröfu á hann.

[caption id="attachment_7803" align="alignnone" width="730"] Björgólfur Thor var einu sinni í 249. sæti list­ans. Nú er hann tölu­vert neðar.[/caption]

Tilkynnt um skuldauppgjör


Um þetta til­kynnti Björgólfur Thor með frétta­til­kynn­ingu 21. júlí 2010. Í henni sagði meðal ann­ars: „Samkvæmt sam­komu­lag­inu [við kröfu­hafa] munu skuldir verða gerðar upp að fullu og ekki gefnar eftir. Allar eignir Björg­ólfs Thors og Novators liggja til grund­vallar upp­gjör­inu, en á þeim var gerð ítar­leg úttekt og mat af hálfu alþjóð­legs ráð­gjaf­ar­fyr­ir­tækis. Björgólfur Thor verður áfram hlut­hafi í félögum á borð við Actavis, Play, CCP og Verne Holding. Arðurinn af þessum eign­ar­hlutum og verð­mæti, komi til sölu þeirra, mun ganga til upp­gjörs skuld­anna, ásamt ýmsum per­sónu­legum eigum hans. Þar á meðal eru hús­eign í Reykja­vík og sum­ar­hús við Þing­velli. Samhliða þessu skulda­upp­gjöri hefur náðst sam­komu­lag um fjár­hags­lega end­ur­skipu­lagn­ingu lyfja­fyr­ir­tæk­is­ins Actavis. Við gerð sam­komu­lags­ins nutu Björgólfur Thor og Novator lið­sinnis tveggja alþjóð­legra fyr­ir­tækja, hinnar virtu lög­manns­stofu Linkla­ters og ráð­gjaf­ar­fyr­ir­tæk­is­ins Alix­Partners, sem er eitt þekktasta fyr­ir­tæki heims á sviði fjár­hags­legrar end­ur­skipu­lagn­ingar“.

Eftir að sam­komu­lagi hafði verið náð þar sem allir sem áttu hags­muna að gæta komu að borð­inu var vinnu haldið áfram. Í sam­komu­lag­inu fólst meðal ann­ars að Deutsche Bank, stærsti kröfu­hafi Björg­ólfs Thors, réði ferð­inni þegar kom að Actavis en skuld­batt sig til að vinna úr stöðu mála með Björgólfi Thor og Novator. Með sam­komu­lag­inu varð form­lega ljóst að Björgólfur Thor yrði ekki gerður per­sónu­lega gjald­þrota.

Björgólfur verður ævintýralega ríkur…aftur


Í apríl 2012 dró til tíð­inda. Þá var til­kynnt um yfir­töku lyfja­fyr­ir­tæk­is­ins Watson á Actavis. Samtals voru greiddar um 700 millj­arðar króna fyrir félagið en til við­bótar áttu að koma greiðslur sem tóku mið af því hvernig rekstur Actavis var árið 2012 sam­kvæmt upp­gjöri. Hagur Björg­ólfs Thors og Novator vænk­að­ist við þetta en í þeirra hlut komu fimm millj­ónir hluta í hinu nýja félagi á grund­velli samn­ings við Deutsche Bank sem gerður var sam­hliða kaupum Watson. Eftir að til­kynnt var um kaup Watson á Actavis, og þar með sam­ein­ingu þess­ara félaga, hefur mark­aðsvirði þess hækkað hratt. Það er skráð á markað undir nafni Actavis og hækk­aði gengi bréfa á hlut úr tæp­lega 60 dölum frá því til­kynnt var um kaupin í 127,2 dali þann 22. maí 2013, ríf­lega ári síðar. Þetta þýddi að hlutur Björg­ólfs í Actavis í gegnum Novator var á milli 70 og 80 millj­arða króna virði á þeim tíma.

[quote font="0" align="right"]Það er skráð á markað undir nafni Actavis og hækk­aði gengi bréfa á hlut úr tæp­lega 60 dölum frá því til­kynnt var um kaupin í 127,2 dali þann 22. maí 2013, ríf­lega ári síðar. Þetta þýddi að hlutur Björg­ólfs í Actavis í gegnum Novator var á milli 70 og 80 millj­arða króna virði á þeim tíma.[/quote]

Um miðjan maí 2013 var síðan til­kynnt um enn meiri stækkun á efna­hags­reikn­ingi Actavis þegar greint var frá kaupum félags­ins á írska lyfja­fram­leiðslu­fyr­ir­tæk­inu Warner Chilcott. Samkvæmt fyrstu fréttum AFP-frétta­veit­unnar var kaup­verðið áætlað um 8,5 millj­arða dala, sem jafn­gilti um 1.100 millj­örðum króna, miðað við gengi krónu gagn­vart Banda­ríkja­dal dag­inn sem til­kynnt var um við­skiptin.

Í dag er gengi bréfa í Actavis 291,36 dalir, eða fimm sinnum hætta en það var við kaup Watson á Actavis.

Allt var undir, líka einkaþotan og snekkjan


Allt eigna­safn Björg­ólfs Thors og félaga sem hann tengd­ist var sett að veði fyrir því að honum tæk­ist að greiða skuldir sínar til baka. Steingrá einka­þota hans af Challenger-gerð, sem merkt var Novator, var þar á meðal. Hún var oft í kast­ljósi fjöl­miðla þegar allt var í blóma í íslensku við­skipta­lífi. Fyrr­ver­andi leið­togi Sov­ét­ríkj­anna, Mikhail Gor­bat­sjov, fékk meðal ann­ars far með henni þegar hann kom hingað til lands 11. októ­ber 2006 til að halda fyr­ir­lestur í Háskóla­bíói. Hún var að lokum seld. Það sama átti við um snekkj­una Element sem var bátur af dýr­ari gerð­inni, svo ekki sé fastar að orði kveðið.

Upp­haf­lega var gert ráð fyrir því að nið­ur­staðan úr upp­gjöri Björg­ólfs Thors og Novator við kröfu­hafa myndi ekki liggja fyrir fyrr en fjar­skipta­fyr­ir­tækið Play í Póllandi yrði selt. Það er á meðal stærstu far­síma­fyr­ir­tækja Póllands en við­skipta­vinir þess voru á vor­mán­uðum 2013 ríf­lega 9,1 milljón tals­ins. Í til­kynn­ingu Björg­ólfs Thors frá því í sumar segir um Play: „Á upp­gjörs­tím­anum hefur fjar­skipta­fyr­ir­tækið Play í Póllandi vaxið hröðum skrefum og sá vöxtur á sinn þátt í að upp­gjöri lauk á aðeins fjórum árum. Trú fjár­festa á fyr­ir­tæk­inu var stað­fest í febr­úar sl. þegar eft­ir­spurn eftir skulda­bréfum fyr­ir­tæk­is­ins fór fram úr björt­ustu vonum“.

Björgólfur Thor gaf í fyrra út bók um fall sitt og end­ur­komu. Kjarninn birti umfjöllun um bók­ina skömmu eftir að hún kom út.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár