Ríkið græddi 286 milljarða króna á bankahruninu

Fall við­skipta­bank­anna haustið 2008 kost­aði íslenska ríkið mörg hund­ruð millj­arða króna. Ný skýrsla metur hreinan ábata rík­is­ins af banka­hrun­inu á 286 millj­arða á verð­lagi hvers árs en 76 millj­arða á verð­lagi árs­ins 2015.

Geir H. Haarde, þáverandi forsætisráðherra, bað guð að blessa Ísland í sjónvarpsávarpi 6. október 2008. Það ávarp markaði upphaf bankahrunsins.
Geir H. Haarde, þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, bað guð að blessa Ísland í sjón­varps­ávarpi 6. októ­ber 2008. Það ávarp mark­aði upp­haf banka­hruns­ins. Mynd: Skjáskot

Rík­is­sjóður hefur ekki aðeins end­ur­heimt allan beinan kostnað vegna veð­lána­við­skipta Seðla­banka Íslands, verð­bréfa­lána rík­is­sjóðs, rík­is­á­byrgða, neyð­ar­láns Seðla­bank­ans til Kaup­þings og falls spari­sjóð­anna heldur haft hreinan ábata umfram það sem nemur 286 millj­örðum króna á verð­lagi hvers árs. Þar sem kostn­að­ur­inn féll að mestu til á árunum 2008 til 2012 en end­ur­heimt­irnar að mestu á árunum 2013-2015 þá er þessi ábati rík­is­sjóðs nokk­urð lægri á verð­lagi árs­ins 2015, eða 76 millj­arðar króna. Í þessum tölum er ekki tekið til­lit mögu­legs ábata Seðla­bank­ans vegna fyr­ir­hug­aðs gjald­eyr­is­út­boðs á aflandskrónum í júní 2016. Sá ábati gæti orðið umtals­verður í krónum talið enda stendur til að selja aflandskrónu­eig­endum evrur á geng­inu 190-220 krónur á hverja evru. Gengi Seðla­bank­ans er hins vegar 139 krónur fyrir hverja evru.

Þetta er nið­ur­staða skýrslu sem dr. Ásgeir Jónsson og dr. Hersir Sig­ur­geirs­son unnu fyrir fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið þar sem lagt er mat á hreinan kostnað rík­is­sjóðs af falli við­skipta­bank­anna haustið 2008.

Fjármögnun viðskiptabanka arðbær

Þar segir að stærsti hluti þess kostn­aðar sem féll til vegna falls við­skipta­bank­anna hafi verið vegna veð­lána­við­skipta Seðla­banka Íslands við þá fyrir hrun. Hann hafi numið 198 millj­örðum króna en auk þess var kostn­aður vegna verð­bréfa­lána rík­is­sjóðs um 56 millj­arðar króna. Sam­an­lagt kost­uðu veð­lána­við­skipti við við­skipta­bank­ana því rík­is­sjóð um 254 millj­arða króna á verð­lagi hvers árs. Lán Seðla­bank­ans til Kaup­þings kost­aði ríkið 39 millj­arða króna, fall spari­sjóð­anna 22 millj­arða króna og rík­is­á­byrgðir vegna falls bank­anna 39 millj­arðar króna. Því kost­aði fall við­skipta­bank­anna ríkið 343 millj­arða króna á verð­lagi hvers árs og 547 millj­arða króna á verð­lagi árs­ins 2015.

Stöð­ug­leika­fram­lög bank­anna skil­uðu mestu til baka á verð­lagi hvers árs, eða 386 millj­örðum króna. Mikilvæg for­senda í mat­inu er að unnt verði að selja eign­ar­hluti rík­is­ins í við­skipta­bönk­unum á næst­unni á gengi sem svarar til 100 pró­sent af bók­færðu virði eigin fjár þeirra.

Fjár­mögnun við­skipta­bank­anna reynd­ist líka arð­bær aðgerð hjá rík­is­stjórn Jóhönnu Sig­urð­ar­dóttur því hún skil­aði rík­inu 138 millj­örðum króna í ábata. Ríkið greiddi hluta­fjár­fram­lag sitt í formi skulda­bréfa sem voru sér­stak­lega gefin út í því skyni að fjár­magna bank­anna og fékk í stað­inn Lands­bank­ann að fullu, 13 pró­sent hlut í Arion banka og fimm pró­sent hlut í Íslands­banka. Auð auki eign­að­ist ríkið víkj­andi kröfur á tvo síð­ar­nefndu bank­anna. Í skýrsl­unni segir: „Fyrir utan stofn­hlutafé að fjár­hæð 2,25 millj­arðar króna í árs­lok 2008 hefur rík­is­sjóður ekki enn greitt stofn­féð í reiðufé og fram­lög til bank­anna í reiðufé hafa tak­markast við fyrr­nefnt stofn­hlutafé og vaxta­greiðslur af skulda­bréf­inu“. Í stað­inn hefur rík­is­sjóður haft tekjur af stofn­fénu í formi arð­greiðslna, vaxta­greiðslna og end­ur­greiðslna höf­uð­stóls víkj­andi lán­anna.

Þá skil­uðu sér­stakir banka­skattar á slitabú fall­inna fjár­mála­fyr­ir­tækja rík­is­sjóði 89 millj­örðum króna í tekjur og gjald­eyr­is­við­skipti Seðla­bank­ans 17 millj­örðum króna.

Alls eru end­ur­heimtir rík­is­sjóðs vegna falls við­skipta­bank­anna því sam­tals 630 millj­arðar króna á verð­lagi hvers árs 625 millj­arðar króna á verð­lagi árs­ins 2015. Hreinn ábati íslenska rík­is­ins af banka­hrun­inu er því 286 millj­arðar króna á verð­lagi hvers árs en 76 millj­arðar króna á verð­lagi árs­ins 2015.

Erfitt að meta óbeinan kostnað

Í nið­ur­stöðu­hluta skýrsl­unnar segja höf­undar hennar að ein­ungis hafi verið reynt að meta beinan kostnað rík­is­sjóðs vegna falls bank­anna, svo sem vegna eig­in­fjár­fram­laga, lán­veit­inga, ábyrgða o.s.frv. „Ekki er hins vegar tekið til­lit til óbeins kostn­aðar, s.s. vegna tap­aðra skatt­tekna og auk­inna almennra rík­is­út­gjalda vegna þess skarpa efna­hags­sam­dráttar sem sigldi í kjöl­far hruns­ins. Ljóst er að ákaf­lega erfitt er að festa hendur nákvæm­lega á því hvað telst raun­veru­lega vera óbeinn kostn­aður vegna falls bank­anna – enda er nið­ur­staða fjár­laga hvort tveggja í senn, afleið­ing af póli­tískum ákvörðum á Alþingi sem og árferði í efna­hags­málum. Þannig eru til­raunir til þess að meta óbeinan kostnað rík­is­sjóðs að miklu leyti ágisk­anir um hvað hefði gerst og hvað ekki, hefði hrunið ekki orðið. Skal öðrum fróð­ari rann­sak­endum látið það verk­efni eftir.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár