Þórhildur segir uppi rökstuddan grun um margvísleg brot ráðamanna

Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir þing­maður Pírata segir reglur í íslensku sam­fé­lagi ekki gilda um æðstu lög sam­fé­lags­ins og æðstu vald­hafa á Íslandi. Þetta sagði Þór­hildur í Silfrinu á RÚV í dag.

Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir þing­maður Pírata sagði reglur í íslensku sam­fé­lagi ekki gilda um æðstu lög sam­fé­lags­ins og æðstu vald­hafa á Íslandi. Þetta sagði Þór­hildur í Silfrinu á RÚV í dag.

Hún vís­aði í nýbirtar nið­ur­stöður Transparency International þar sem Ísland er spilltasta ríki Norð­ur­land­anna og sagði nið­ur­stöð­una meðal ann­ars skýr­ast af því að ráð­herrar þjóð­ar­innar séu aldrei látnir sæta afleið­ingum né heldur þing­menn.

„Nú er rök­studdur grunur uppi um það að Ásmundur Frið­riks­son hafi dregið að sér fé, almannafé. Og við erum ekki að sjá við­brögð þess efnis að það sé verið að setja á fót rann­sókn í þeim efnum,“ sagði Þór­hildur og bætti við að hún myndi aðeins eftir einu til­felli þar sem rann­sókn hafi verið sett af stað á spill­ing­ar­máli stjórn­mála­manns á Íslandi og það hafi verið mál Árna Johnsen en hann var árið 2003 dæmdur í tveggja ára fang­elsi fyrir fjár­drátt og umboðs­svik í opin­beru starfi, mútu­þægni og rangar skýrslur til yfir­valda.

„Við erum samt með fjár­mála­ráð­herra sem var í Panama­skjöl­unum og höfum rök­studdan grun til þess að hugsa það að hann hafi ekki gefið rétt upp til skatts. Við höfum líka uppi rök­studdan grun uppi um það að hann hafi mis­beitt opin­beru valdi til eigin hags­muna, til þess að hagn­ast sínum flokki með því að stinga skýrslum sem voru óþægi­legar fyrir kosn­ingar undir stól, til þess að hagn­ast sinni eigni fjöl­skyldu með því að hafa bein áhrif á skatt­rann­sókn­ar­stjóra þegar hún var að reyna að kaupa gögn, sömu gögn og Panama­skjölin bara rétt fyrir það, sagði Þór­hildur og sagði þannig uppi rök­studdur grunur um að Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála­ráð­herra og fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, hafi framið refsi­vert athæfi en eng­inn taki sig til og rann­saki það.

„Við höfum rök­studdan grun um að dóms­mála­ráð­herr­ann hafi mis­beitt opin­beru valdi fyrir sína eigin hags­muni, í upp­reist æru mál­inu, í Lands­rétt­ar­mál­inu, en það er eng­inn sem tekur sig til og rann­sakar það vegna þess að við­horfið hér er að æðsta lag sam­fé­lags­ins sé hafið yfir lögin sem að við hin erum látin fylgja.“

Þór­hildur sagði almenn­ing lát­inn sæta mjög ströngum reglum, gerðar séu skatt­rann­sóknir á þeirra högum, mál bóta­þega séu rann­sökuð ofan í kjöl­inn þegar ein­hver minnsti grunur sé uppi um að þeir séu að svíkja út opin­bert fé.

„Hvað við gerum þegar kemur að því að við höfum minnstu grun­semd um að hinn almenni borg­ari hafi brotið ein­hverja reglu sem fylgja okkar sam­fé­lags­sátt­mála. En þegar við tölum um æðstu ráða­menn þjóð­ar­innar, þing­menn, ráð­herra, for­stöðu­menn, við sjáum það líka end­ur­tekið að þeir sem eru í æðstu stöðum í stjórn­sýsl­unni þeim er verð­launað líka fyrir það að brjóta reglur, þeir sæta engum afleið­ingum.“ Hún nefndi sem dæmi Braga Guð­brands­son, for­stjóra Barna­vernd­ar­stofu, sem hún sagði hafa setið undir ítrek­uðum kvört­unum frá barna­vernd­ar­nefndum sem undir hann heyra.

„Um ófag­leg vinnu­brögð, um óeðli­leg afskipti, og um bara mjög vand­ræða­leg og erfið mál fyrir hann. Og honum er verð­launað með að senda hann til barna­vernd­ar­nefnda Sam­ein­uðu þjóð­anna og ísland ætlar að fara að leggja pen­inga í kosn­inga­bar­áttu fyrir þennan mann til að taka þátt í barna­rétt­ar­starfi Sam­ein­uðu þjóð­anna sem ég kalla bara verð­laun fyrir vonda hegðun og á sama tíma losa hann út úr þessu vanda­máli.“

Þór­hildur sagði það end­ur­tekið sjást að ef ein­hver brot eigi sér stað þá fylgi því engar afleið­ingar fyrir æðstu lög sam­fé­lags­ins en það gildi ekki um hina.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár