Öfgar í veðri orðnar nánast daglegt brauð á Indlandi

Þrumu­veður, úrhellis­rign­ingar, aur­skriður, flóð, kulda­köst, hita­bylgjur, hvirf­il­byljir, þurrkar, sand­stormar, stór­hríð. Á fyrstu níu mán­uðum árs­ins hafa veð­ur­öfgar átt sér stað á Indlandi allt að því dag­lega.

Flóð hafa verið tíð víða á Indlandi í ár.
Flóð hafa verið tíð víða á Indlandi í ár. Mynd: EPA

Á nán­ast hverjum degi fyrstu níu mán­uði árs­ins hafa öfga­full veður geisað á Indlandi. Við erum að tala um hita­bylgjur, kulda­köst, hvirf­il­bylji, þrumu- og eld­inga­veður, úrhelli, flóð og aur­skriður.

Umhverfis- og vís­inda­stofnun Indlands (CSE) segir í nýút­gef­inni skýrslu sinni að öfgar í veðri hafi átt sér stað 241 dag af fyrstu 273 dögum árs­ins. Á 88 pró­sentum tíma­bils­ins. Stofn­unin segir enn­fremur að vegna þess­ara öfga hafi 2.755 manns týnt lífi, 1,8 millj­ónir hekt­ara rækt­ar­lands orðið fyrir tjóni, um 415 þús­und hús eyði­lagst og tæp­lega 70 þús­und dýr sem ræktuð eru til mann­eldis fallið.

[adspot]

Sér­fræð­inga­hópur milli­ríkja­nefndar Sam­ein­uðu þjóð­anna um lofts­lags­breyt­ingar (IPCC) skil­greinir veð­ur­öfgar sem atburði sem ger­ast oftar eða á öðrum stöðum og á öðrum tímum en að með­al­tali síð­ustu ára­tugi.

Skýrslan sýnir það sem vís­inda­menn svo sem vissu. Að Ind­verjar eru meðal þeirra jarð­ar­búa sem helst eru farnir að finna fyrir ham­förum vegna lofts­lags­breyt­inga.

„Þetta er til merkis um lofts­lags­breyt­ingar. Þetta snýst ekki um einn atburð heldur aukna tíðni margra atburða – að þær veð­ur­öfgar sem við áður sáum einu sinni á hund­rað árum hafa orðið tíð­ari og verða einu sinni á fimm ára fresti eða oftar,“ segir Sunita Narain, for­stjóri CSE.

Og öfgarnar hafa vissu­lega komið harka­lega niður á efna­hag Indlands. Talið er að í fyrra, þegar gríð­ar­legir hitar hrjáðu Indverja, hafi um 5,4 pró­sent af lands­fram­leiðsl­unni tap­ast.

Einn mæli­kvarði sem bent hefur verið á eru vinnu­stundir. Þær voru 167 millj­örðum færri árið 2021, 39 pró­sentum, en að með­al­tali tíu árin þar á undan.

Sendi­nefnd Indverja á lofts­lags­ráð­stefn­unni (COP27) sem nú stendur yfir í Egypta­landi, hafa vakið athygli á þessu og vilja m.a. tryggja að ekki verði gengið of nærri jarð­efna­elds­neyt­is­vinnslu í land­inu sem skapar gríð­ar­lega mörg störf í landi sem er að reyna að brjót­ast út úr fátækt. Stjórn­völd hafa sett sér mark­mið um að draga úr fram­leiðslu og notkun jarð­efna­elds­neytis á sama tíma og byggt verðir verða upp frek­ari inn­viðir fyrir vinnslu og notkun end­ur­nýj­an­legra orku­gjafa.

[adspot]

Ind­verjar hafa sett sér metn­að­ar­full og að því er talið er raun­hæf lofts­lags­mark­mið. Þannig hafa stjórn­völd ein­sett sér að ná kolefn­is­hlut­leysi fyrir árið 2070. Þá er stefnt að því að draga úr losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda um 45 pró­sent fyrir árið 2030. Á næstu átta árum er enn­fremur stefnt að því að orka frá end­ur­nýj­an­legum orku­gjöfum verði um 50 pró­sent af allri fram­leiðslu fyrir lok ára­tug­ar­ins.

Sér­fræð­ingar benda á að aukin tíðni og ákefð veð­ur­öfga muni halda áfram að aukast með hækk­andi hita­stigi á jörð­inni. Öfgar í veðri eru farnar að bitna á efna­hag Indlands og munu halda áfram að gera það í auknum mæli. Þar sem öfgarnar virð­ast vera að skella á af fullum þunga þessi miss­erin er ekki hægt að bíða eftir að aðgerðir til að vinna gegn hlýnun lofts­lags skili árangri. Ind­verjar verði að hafa ítar­legar áætl­anir um hvernig eigi að aðlag­ast breyttu veð­ur­fari. Til þess verk­efnis þurfa þeir stuðn­ing alþjóða sam­fé­lags­ins.

Um 80 pró­sent Indverja búa á svæðum sem eru við­kvæm fyrir öfgum í veðri, s.s. fyrir flóðum eða hita­bylgjum.

Þróuð hafa verið við­vör­un­ar­kerfi, kerfi sem vara fólk við flóða­hættu og felli­byljum, en þau ná ekki enn til allra. Svo er mis­jafnt hvort að fólk hafi yfir höfuð burði til að bregð­ast við slíkum við­vör­unum. Leita skjóls. Flýja tíma­bundið.

Sér­fræð­ingar segja að afleið­ingar öfga­veð­urs á Indlandi í ár eigi enn eftir að koma fram. Bæði sé um áhrif til styttri og lengri tíma að ræða. „Eftir því sem fleiri gögn koma fram í dags­ljósið þá sjáum við að lofts­lags­breyt­ingar eru að eiga sér sífellt hraðar stað og öfga­fullir veð­ur­at­burðir að ger­ast hver ofan í annan,“ segir Roxy Mathew Koll, lofts­lags­sér­fræð­ingur við Hita­belt­is­stofn­un­ina á Indlandi. „Þetta er að ger­ast hraðar en við áttum von á.“

Hún segir Suður-Asíu vera „tákn­mynd“ lofts­lags­breyt­inga og að í þeim heims­hluta sjá­ist skýr merki um tíð­ari hita­bylgjur, flóð, þurrka og felli­bylji. Allt þetta hafi svo áhrif á orku­ör­yggi, aðgang að hreinu vatni og mat­vælum.

[adspot]

Aðlögun að lofts­lags­breyt­ingum er rán­dýrt fyr­ir­bæri. Efna­meiri þjóðir hétu því á COP15, lofts­lags­ráð­stefnu Sam­ein­uðu þjóð­anna árið 2009, að fjár­magna slíkt, hétu gríð­ar­legum upp­hæðum í þessi þörfu verk­efni hjá fátæk­ari löndum. Löndum sem bera minnsta ábyrgð á lofts­lags­breyt­ingum af manna­völdum en bera hit­ann og þung­ann af afleið­ing­unum.

Stjórn­völd á Indlandi vilja að ríku löndin standi við þessi lof­orð sem ekki hafa verið efnd, tveimur árum eftir þann frest sem þau fengu. Þau hafa enda lagt áherslu á það á COP27 að þessar bætur fáist – og það sem fyrst.

Nýja skýrslan um veð­ur­öfgar árs­ins sýni svart á hvítu hversu brýnt sé að bregð­ast við. Ekki seinna en strax.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár