Félag Björgólfs Thors setti 920 milljónir í eiganda DV á rúmum tveimur árum

Dals­dalur, félag skráð í eigu Sigurðar G. Guð­jóns­sonar, fékk alls 920 millj­ónir króna lán­aðar frá haustinu 2017 og fram til síð­ustu ára­móta til að borga fyrir tap­rekst­urs útgáfu­fé­lags DV. Eini lán­veit­andi Dalsdals, og helsti bak­hjarl, var Novator.

Björgólfur Thor Björgólfsson.
Björgólfur Thor Björg­ólfs­son. Mynd: Revista Capital

Novator, fjár­fest­inga­fé­lag sem er leitt af Björgólfi Thor Björg­ólfs­syni, lán­aði eig­anda útgáfu­fé­lags DV og tengdra miðla 920 millj­ónir króna á rúm­lega tveggja ára tíma­bili. Lánin, sem eru vaxta­laus og ekki með til­greindan gjald­daga, eru ólík­leg til að inn­heimt­ast í ljósi þess að útgáfu­fé­lagið, sem ber nafnið Frjáls fjöl­miðlun, var rennt inn í Torg, útgáfu­fé­lag Frétta­blaðs­ins, fyrr á þessu ári vegna þess að rekst­ur­inn stóð ekki undir sér og félagið var á fallandi fæti.

Þetta kemur fram í árs­reikn­ingi félags­ins Dalsdals ehf., sem átti útgáfu­fé­lags DV og tengdra aðila frá haustinu 2017 og fram á síð­asta vor. 

Eini lánveitandinn og helsti bakhjarl

Hlutverk Novator sem fjár­magn­anda fjöl­miðla­rekst­urs­ins var ekki opin­beruð fyrr en um miðjan maí 2020, eftir að eig­enda­skipti höfðu orðið á Frjálsri fjöl­miðlun. Það var gert í ákvörðun Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins um að heim­ila sam­runa Frjálsrar fjöl­miðl­unar og Torgs.

[adspot]Í ákvörð­un­ar­skjal­inu sagði að rekstur Frjálsrar fjöl­miðl­unar hefði verið erf­iður og móð­ur­fé­lag þess Dals­dalur hefði þurft að fjár­magna rekst­ur­inn að mestu leyti með lánsfé. „Af þeim sökum óskaði Sam­keppn­is­eft­ir­litið upp­lýs­inga um lán­veit­endur félag­anna. Þann 14. jan­úar 2020 bár­ust Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu samn­ingar frá sam­runa­að­ilum. Þar kom fram að félagið Novator ehf. hefur verið eini lán­veit­andi Dalsdals og Frjálsrar fjöl­miðl­unar og helsti bak­hjarl fjöl­mið­ils­ins frá eig­enda­skiptum árið 2017.“

Skráður eig­andi Frjálsrar fjöl­miðl­unar var hins vegar, líkt og áður sagði, einka­hluta­fé­lagið Dals­dalur sem er í eigu lög­manns­ins Sigurðar G. Guð­jóns­sonar. Hann var þrá­spurður um fjár­mögnun félags­ins í fjöl­miðlum en neit­aði alltaf að svara því hvaðan rekstr­arfé Frjálsrar fjöl­miðl­unar kæmi.

Hlutirnir í útgáfufélaginu metnir á 340 milljónir

Í árs­reikn­ingi Dalsdals segir að lang­tíma­skuldir félags­ins séu 920 millj­ónir króna. Þær hækk­uðu um 175 millj­ónir króna á árinu 2019. Árið áður höfðu þær hækkað um 270 millj­ónir króna.

[links]Eignir Dalsdals eru sagðar vera 900 milljón króna virði. Þar af eru hlut­irnir í Frjálsri fjöl­miðlun, sem var í miklum tap­rekstri og rekstr­ar­vanda um síð­ustu ára­mót, metnir á 340 millj­ónir króna. Auk þess átti Dals­dalur skulda­bréf upp á 560 millj­ónir króna sem eru til­komin vegna lána til Frjálsrar fjöl­miðl­unar. Ekki er til­greint hvenær skuldin er á gjald­daga, að öðru leyti en að það er að minnsta kosti ekki fyrr en eftir að árið 2022 er liðið.

Með kaup­unum á DV og tengdum miðlum er Torg, sem tók líka yfir sjón­varps­stöð­ina Hring­braut og tengda miðla í fyrra, orðið að einu stærsta einka­rekna fjöl­miðla­­­fyr­ir­tæki lands­ins.

Torg tap­aði 212 millj­­ónum króna á síð­­asta ári eftir að hafa skilað 39 millj­­óna króna hagn­aði árið 2018. ­Stærsti eig­andi Torgs er Helgi Magn­ús­son fjár­fest­ir, sem á 82 pró­sent í sam­stæð­unn­i.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár