Uber haslar sér völl í heilbrigðisþjónustu

Ástr­alskir læknar geta nú bókað akstur fyrir sjúk­linga sína á lækna­stofur og sjúkra­hús hjá far­veit­unni Uber. Margir hafa lýst yfir efa­semdum um að fyr­ir­tæk­inu sé treystandi fyrir heil­brigð­is­upp­lýs­ingum fólks.

Sjúklingar þurfa ekki að eiga snjallsíma til að nýta sér þjónustu Uber Health.
Sjúk­lingar þurfa ekki að eiga snjall­síma til að nýta sér þjón­ustu Uber Health. Mynd: Pexels

Velkomin í Uber Health! Nýja þjón­ustu far­veit­unnar Uber sem frá og með deg­inum í dag verður í boði fyrir lækna í Ástralíu. Það eru þó ekki læknar sem þjón­ustan bein­ist fyrst og fremst að heldur sjúk­lingar þeirra.

Með Uber Health, sem þegar er í boði í Banda­ríkj­unum, er hægt að „skipu­leggja, stjórna og borga fyrir akstur sjúk­linga og heil­brigð­is­starfs­manna á einum staf­rænum stað og tryggja þannig hrað­ari og straum­línu­lag­aðri þjón­ustu,“ segir í til­kynn­ingu frá Uber um starf­sem­ina.

[adspot]

Þetta hljómar eflaust vel. Lækn­ir­inn getur pant­aðan far fyrir sjúk­ling sinn fram í tím­ann svo hann kom­ist örugg­lega í bók­aðan tíma. Sjúk­lingar sem eru ekki færir um að aka sjálfir og treysta sér ekki í almenn­ings­sam­göngur, m.a. vegna smitótta, geta beðið rólegir eftir að Uber-bíl­stjóri keyri þá milli staða.

Sjúk­lingar þurfa ekki Uber-appið, ef þeir hafa ekki snjall­sím­tæki, heldur geta fylgst með öllu í gegnum SMS-skila­boð. Þannig er ljóst að þessi nýja þjón­usta bein­ist ekki síst að eldra fólki – fólki sem á ekki bíl, getur ein­hverra hluta vegna ekki ekið bíl og er ekki með nýj­ustu gerð af síma.

[links]Margir sér­fræð­ingar í tækni­geir­anum hafa lyft brúnum yfir þess­ari nýju þjón­ustu í Ástralíu. Þeir efast um að Uber sé treystandi fyrir heil­brigð­is­upp­lýs­ingum vænt­an­legra far­þega sinna. Læknar hafa einnig lagt orð í belg í þessum efnum. Einn þeirra, sem einnig er sér­fræð­ingur í með­ferð per­sónu­upp­lýs­inga, segir við dag­blaðið Sydney Morning Herald að lög um geymslu og öryggi sjúkra­gagna séu almennt veik­ari í Ástralíu en í t.d. Evrópu. „Það er þess vegna sem mörg fyr­ir­tæki eru að reyna að kom­ast inn í heil­brigð­is­þjón­ustu þar sem það er mjög arð­væn­legt.“

Hylmdu yfir stórum gagnaleka

Talsmenn Uber segj­ast lofa því að öll gögn um sjúk­linga sem þeir munu fá vegna þjón­ust­unnar verði geymd með öruggum hætti. En það róar ekki taugar allra því fyr­ir­tækið hefur í gegnum tíð­ina orðið upp­víst að ósann­indum og belli­brögðum. Árið 2016 varð umfangs­mik­ill gagna­leki hjá Uber sem stjórn­endur fyr­ir­tæk­is­ins reyndu með ýmsum ráðum að hylma yfir. Hakkarar komust yfir gögn um 57 millj­ónir not­enda far­þjón­ustu Uber. Í þeim hópi voru m.a. Ástralar. Ekki komst upp um gagna­lek­ann fyrr en ári seinna.

Tals­maður Uber í Ástralíu segir að með Uber Health muni skap­ast mörg atvinnu­tæki­færi. Ráðnir verði fleiri bíl­stjórar í sam­ræmi við eft­ir­spurn. Uber seg­ist hafa ákveðið að bjóða þjón­ust­una þar sem vöntun væri á tækni­lausnum á þessu sviði.

[adspot]

Fyrir nokkrum árum voru sjúkra­skrár gerðar raf­rænar í Ástralíu. Til­gang­ur­inn var að treysta stoðir heil­brigð­is­þjón­ust­unnar svo að heil­brigð­is­starfs­menn á hvaða stofnun sem er, hvar sem er í land­inu, gætu nálg­ast upp­lýs­ingar um sjúk­linga sína.

En einn af hverjum tíu Áströlum treystir ekki yfir­völdum fyrir heil­brigð­is­upp­lýs­ingum sínum og fór fram á að þær yrðu ekki settar í hinn raf­ræna gagna­grunn.

Munu þeir treysta Uber?

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

uber

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár