Gatan rudd fyrir Uber og Lyft

Drög að frum­varpi til laga um leigu­bif­reiðar hefur verið birt á sam­ráðs­gátt stjórn­valda og til stendur að leggja það fram í fjórða sinn. Nokkrar breyt­ingar hafa verið gerðar á frum­varp­inu sem munu auð­velda far­veitum að bjóða þjón­ustu sína hér á landi.

Vonir standa til að frumvarpið, verði það samþykkt, muni opna dyrnar fyrir farveitur á leigubílamarkaði.
Vonir standa til að frum­varpið, verði það sam­þykkt, muni opna dyrnar fyrir far­veitur á leigu­bíla­mark­aði. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Til stendur að leggja fram að nýju stjórn­ar­frum­varp inn­við­a­ráð­herra, Sigurðar Inga Jóhanns­sonar, um leigu­bif­reiða­akstur. Þetta er í fjórða sinn sem frum­varpið er lagt fram en það tekur í þetta sinn nokkrum breyt­ingum. Málið gekk til umhverfis- og sam­göngu­nefndar eftir fyrstu umræðu í þing­inu og skil­aði nefndin áliti með breyt­ing­ar­til­lögum þann 14. júní. Málið gekk á end­anum ekki til ann­arrar umræðu og þar við sat. Frum­varpið sem nú hefur verið birt í sam­ráðs­gátt stjórn­valda tekur til­lit til nefnd­ar­á­lits­ins og breyt­ing­ar­til­lögum nefnd­ar­innar.

Skilyrði um starfs­stöð hér á landi til að geta fengið útgefið rekstrar- eða starfs­leyfi leigu­bif­reiða­stöðvar hér á landi hefur verið fellt brott úr frum­varp­inu. Þar að auki verður hægt að veita bæði ein­stak­lingum og lög­að­ilum rekstr­ar­leyfi, nái frum­varpið fram að ganga.

„Sér­stak­lega er nú tekið fram að sé samið fyrir fram um gjald fyrir ekna ferð megi gjaldið vera ýmist áætlað eða end­an­legt. Eftir sem áður skal verð­skrá og þær for­sendur sem umsamið gjald bygg­ist á vera aðgengi­legar við­skipta­vini,“ segir á vef stjórn­ar­ráðs­ins um breyt­ingar sem gerðar hafa verið á frum­varp­inu. Líkt og í fyrri frum­vörpum er kveðið á um að lög­giltir gjald­mælar skuli vera í öllum leigu­bílum sem rukka gjald sem tekur mið af ekinni vega­lengd eða þeim tíma sem ferðin tekur, nema ef ferð er seld fyrir fyrir fram umsamið áætlað eða end­an­legt heild­ar­gjald.

Þurfa að fullnægja sömu skilyrðum og leigubifreiðastöðvar

Vonir standa til að far­veitur á borð við Uber og Lyft muni geta haslað sér völl hér á landi, nái frum­varpið fram að ganga. Í drög­unum segir: „Vonast er til að með afnámi fjölda­tak­mark­ana á tak­mörk­un­ar­svæðum og ítar­legra kvaða um nýt­ingu leyfis, auk und­an­þágu frá skyldu til að vera með gjald­mæli þegar þjón­usta er seld gegn fyrir fram umsömdu föstu gjaldi, skap­ist skil­yrði til að veita fjöl­breytt­ari þjón­ustu með leigu­bif­reiðum, þar á meðal þjón­ustu á borð við þá sem veitt er af þekktum far­veitum erlendis.“

Til þess að svo megi verða þurfa far­veit­urnar engu að síður að full­nægja öllum skil­yrðum sem leigu­bif­reiða­stöðvum er gert að full­nægja hér á landi. Til þess þurfa þær að hafa fyr­ir­svars­mann sem hefur lög­heim­ili á evr­ópska efna­hags­svæð­inu, við­eig­andi starfs­hæfni og gott orð­spor. Þar að auki þurfa leigu­bif­reiða­stöðvar að hafa full­nægj­andi fjár­hags­stöðu en það atriði er nánar skil­greint í reglu­gerð.

Með „sama hætti þurfa bíl­stjórar sem bjóða þjón­ustu sína hjá far­veitum að upp­fylla skil­yrði leigu­bif­reiða­lög­gjaf­ar­innar og hafa gilt rekstr­ar­leyfi og eftir atvikum atvinnu­leyfi,“ segir í drög­unum.

Stöðvarskylda og fjöldatakmarkanir munu heyra sögunni til

Ein af þeim breyt­ingum sem boðuð er í frum­varp­inu, líkt og í eldri gerðum þess, er afnám fjölda­tak­mark­ana á leigu­bif­reiðum. Eins og staðan er í dag eru tak­mörk sett á fjölda leigu­bíla­leyfa á þremur tak­mörk­un­ar­svæðum. Það fyrsta nær til höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins og Suð­ur­nesja, annað er á Akureyri og það þriðja í Árborg. Á þessum svæðum eru leigu­bíl­stjórar skyldugir til þess að starfa fyrir leigu­bif­reiða­stöð og tak­mörk eru sett á hversu margir leigu­bílar mega keyra á svæð­unum. Til stendur að afnema bæði stöðv­ar­skyldu og fjölda­tak­mörk­un­ina en leigu­bíl­stjórum mun þó ekki verða meinað að aka fyrir til­tekna leigu­bif­reiða­stöð, nái frum­varpið fram að ganga.

Á vef stjórn­ar­ráðs­ins segir að mark­mið frum­varps­ins sé „að tryggja gott aðgengi að hag­kvæmri, skil­virkri og öruggri leigu­bif­reiða­þjón­ustu, neyt­endum og þjón­ustu­veit­endum til hags­bóta. Þá er frum­varp­inu ætlað að tryggja að íslenska ríkið upp­fylli þær þjóð­rétt­ar­legu skuld­bind­ingar sem það hefur und­ir­geng­ist sam­kvæmt samn­ingnum um evr­ópska efna­hags­svæðið, auk þess að færa lög og reglur um leigu­bif­reiðar til nútíma­legra horfs með öruggar og tryggar sam­göngur að leið­ar­ljósi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár