Hlutur ríkisins í bensínverði aldrei stærri

Bens­ín­verð hefur hækkað um 4,10 krónu á hvern lítra síðan í des­em­ber 2016. Búast má við að bens­ín­verð hækki enn frekar á næstu miss­erum.

Hlutur ríkisins í bensínverði á Íslandi er nú 58,22 prósent og hefur aldrei verið hærri.
Hlutur rík­is­ins í bens­ín­verði á Íslandi er nú 58,22 pró­sent og hefur aldrei verið hærri. Mynd: Anton Brink

Bens­ín­verð á Íslandi er fjórum krónum hærra núna, um miðjan jan­úar, en það var í des­em­ber. Þetta sést í bens­ín­vakt Kjarnans þar sem skoða má sund­ur­liðað bens­ín­verð og þá kostn­að­ar­liði sem mynda bens­ín­verð hér á landi. Skýra má stærstan hluta hækk­un­ar­innar með hækk­unum opin­berra gjalda en hlutur rík­is­ins í bens­ín­verði hefur aldrei verið meiri en hann er nú 58,22 pró­sent. Sá stóri hlutur verður að öllum lík­indum aðeins tíma­bund­inn ef heims­mark­aðs­verð á olíu heldur áfram að hækka og krónan að veikj­ast.

Hækkunin nemur 4,10 krónum á hvern lítra í við­mið­un­ar­verð­inu sem stuðst er við í bens­ín­vakt­inni og kostar bens­ín­lítr­inn nú 194,40 krónur. Mest munar um hækkun opin­berra gjalda sem hækk­uðu um ára­mótin í takt við fjár­lög árs­ins 2017, og Kjarninn fjall­aði um í des­em­ber.

Þrír liðir opin­berra gjalda sem falla á bens­ín­verð hækk­uðu um ára­mótin. Það voru almennt bens­ín­gjald sem hækk­aði úr 25,6 krónum á lítr­ann í 26,60 krónur eða um 4,69 pró­sent, sér­stakt bens­ín­gjald sem hækk­aði úr 41,30 krónum á hvern lítra í 43,25 krónur á hvern lítra eða um 4,72 pró­sent og svo kolefn­is­gjaldið sem hækk­aði um 25 aura og er nú 5,50 krónur á hvern lítra. Hlut­falls­leg hækkun kolefn­is­gjalds­ins er 4,76 pró­sent.

Hægt er að skýra stærstan hluta hækk­unar lítra­verðs á bens­íni með þessum hækk­unum. Í öllum þremur til­vikum er um fasta krónu­tölu að ræða en ekki hlut­fall af öðrum lið bens­ín­verðs­ins. Samtals nam hækkun þess­ara þriggja opin­beru gjalda sem hér hafa verið taldir upp 3,4 krónum. Enn vantar 0,7 krónur til þess að skýra alla verð­hækk­un­ina á milli mán­aða.

Fylgstu með bens­ín­verð­inu á Bens­ín­vakt Kjarnans
Kannaðu verðið

Bens­ín­verð á Íslandi skipt­ist í þrjá meg­in­liði. Það er algengt inn­kaupa­verð, opin­ber gjöld sem ríkið leggur á elds­neyt­is­verð og hlutur olíu­fé­laga. Opin­beru gjöldin breyt­ast lítið á milli mán­aða; það er raunar aðeins virð­is­auka­skatt­ur­inn sem getur breyst nema með sér­stökum laga­breyt­ingum frá Alþingi. Virð­is­auka­skatt­ur­inn er hlut­falls­legur skattur á elds­neyt­is­verð en önnur opin­ber gjöld sem leggj­ast á lítra­verðið eru föst krónu­tala sem ákvörðuð er í fjár­lög­um. Krónu­gjöldin á bens­ín­verð eru almenn vöru­gjöld, sér­stök vöru­gjöld og kolefn­is­gjald.

Bensíngjöldin óhreyfð í tvö ár

Bens­ín­gjöld­unum hefur reyndar ekki verið breytt í tvö ár, og verð­lag á þeim tíma (des­em­ber 2014-des­em­ber 2016) hefur hækkað um 3,95 pró­sent. Þetta er ekki mikil hækkun að raun­virði miðað við upp­haf tíma­bils­ins, en hækkun samt, og kemur beint inn í bens­ín­verðið sem hefur bein áhrif á vísi­tölu neyslu­verðs.

Kolefn­is­gjaldið var hækkað í fjár­lögum árs­ins 2016 úr 5,10 krónum á hvern lítra í 5,25 krónur. Kolefn­is­gjaldið er nú 5,50 krónur á hvern lítra. Það hefur þess vegna hækkað um 7,84 pró­sent á meðan almennt verð­lag hefur hækkað um 3,95 pró­sent.

Á þeim tíma sem útreikn­ingar bens­ín­vakt­ar­innar ná til hefur hlutur rík­is­ins í verði bens­ín­lítrans aldrei verið stærri, eða 58,22 pró­sent. Upphaf tíma­bils­ins mið­ast við ágúst 2007, þegar bens­ín­lítr­inn kost­aði 123,40 krónur.

Eykst hlutur olíufélaganna á árinu?

Aurarnir 70 sem vantar upp á til þess að skýra 4,10 krónu hækkun á bens­ín­lítra­verði falla á tvo liði. Líklegt inn­kaupa­verð á bens­íni hefur hækkað um nokkrar krónur síðan í des­em­ber. Sú hækkun auk hækk­unar krónu­gjald­anna svoköll­uðu veldur því að krónu­tala virð­is­auka­skatts­ins hækkar. Hlutur olíu­fé­lag­anna minnkar um rúm­lega fimm krónur á hvern bens­ín­lítra og vegur það upp á móti hærra inn­kaupa­verði.

Búast má við að bens­ín­verð muni hækka nokkuð á næst­unni í takt við hærra inn­kaupa­verð og veik­ingu krón­unnar. Viðbúið er að heims­mark­aðs­verð á olíu hækki á næstu miss­erum vegna ákvörð­unar OPEC-ríkj­anna, sam­taka olíu­fram­leiðslu­ríkja, um að tak­marka olíu­fram­leiðslu sína til þess að hækka heims­mark­aðs­verðið. Fatið af hrá­olíu kostar nú um 53,14 doll­ara. Á sama tíma í fyrra kost­aði fatið 36,41 doll­ara.

Lesa má nánar um sund­ur­liðun bens­ín­verðs­ins á vef bens­ín­vakt­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

bensínvaktin

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár