Bensínlítrinn hækkar um þrjár krónur og kostar 190,3 krónur

Fjár­laga­frum­varpið gerir ráð fyrir hækkun bens­ín­gjalds­ins á næsta ári. Einnig má búast við hækkun elds­neyt­is­verðs vegna ákvörð­unar OPEC-ríkj­anna um að tak­marka fram­leiðslu sína.

Algengt bens­ín­verð á Íslandi hefur hækkað um þrjár krónur síðan í nóv­em­ber og er nú 190,30 krónur á hvern lítra. Í nóv­em­ber var algengt bens­ín­verð 187,30 krónur á hvern lítra. Samkvæmt sund­ur­liðun Kjarnans á elds­neyt­is­verði þá virð­ast hækk­unin milli mán­aða aðal­lega vera á hlut olíu­fé­lag­anna. Gert er ráð fyrir hækkun krónu­gjalda á bensín í fjár­laga­frum­varp­inu sem nú er til umræðu fyrir Alþingi.

Bens­ín­verð á Íslandi skipt­ist í þrjá meg­in­liði. Það er algengt inn­kaupa­verð, opin­ber gjöld sem ríkið leggur á elds­neyt­is­verð og hlutur olíu­fé­laga. Opinberu gjöldin breyt­ast lítið á milli mán­aða; það er raunar aðeins virð­is­auka­skatt­ur­inn sem getur breyst nema með sér­stökum laga­breyt­ingum frá Alþingi. Virð­is­auka­skatt­ur­inn er hlut­falls­legur skattur á elds­neyt­is­verð en önnur opin­ber gjöld sem leggj­ast á lítra­verðið eru föst krónu­tala sem ákvörðuð er í fjár­lögum. Krónu­gjöldin á bens­ín­verð eru almenn vöru­gjöld, sér­stök vöru­gjöld og kolefn­is­gjald.

Algengt inn­kaupa­verð getur vit­an­lega sveifl­ast á milli mán­aða. Í bens­ín­vakt Kjarnans er inn­kaupa­verðið reiknað út frá verði á bens­íni til afhend­ingar í New York-höfn í upp­hafi mán­aðar frá banda­rískum yfir­völdum og mið­gengi doll­ars gagn­vart íslenskri krónu í yfir­stand­andi mán­uði. Nánar má lesa um for­sendur bens­ín­vakt­ar­innar hér.

Á árinu 2016 náði bens­ín­verðið hámarki í júní þegar algengt verð á bens­ín­lítra var 204,40 krónur. Lægst var verðið í febr­úar þegar lítr­inn kostn­aði að víð­ast hvar 186,50 krónur.

Verðið hækkar líklega á næsta ári

Tveir þættir gætu haft ráð­andi áhrif á elds­neyt­is­verð á næsta ári. Um mán­aða­mótin tóku sam­tök olíu­fram­leiðslu­ríkja, OPEC-ríkin svoköll­uðu, ákvörðun um að tak­marka olíu­fram­leiðslu sína á næst­unni til þess að hækka heims­mark­aðs­verð á olíu. Þessi ákvörðun hefur þegar haft áhrif á heims­mark­aðs­verðið; nú kostar fatið af hrá­olíu nærri 52 doll­ara en um mán­aða­mótin var verðið um 45 doll­arar.

Heims­mark­aðs­verð á olíu ræðst hins vegar af fjöl­mörgum flóknum þáttum og þess vegna er erfitt að gera lang­tíma­verð­spár. Sem dæmi um hugs­an­legt mót­vægi við ákvörðun OPEC-ríkj­anna er aukin olíu­fram­leiðsla Banda­ríkj­anna. Ef fram­boðið helst jafn mikið eða jafn­vel meira en það hefur verið mun verðið hugs­an­lega ekki hækka jafn ört og nú er gert ráð fyrir.

Eftir stendur hins vegar sú stað­reynd að und­an­farið ár hefur heims­mark­aðs­verð á hrá­olíu hækkað um um það bil 19 pró­sent.

Fylgstu með bens­ín­verð­inu á Bens­ín­vakt Kjarnans
Kannaðu verðið

Gert er ráð fyrir 2,5 pró­sent hækkun á almenn og sér­stök vöru­gjöld á bensín og kolefn­is­gjald umfram 2,2 pró­sent verð­lags­upp­færslu í fjár­laga­frum­varp­inu sem nú er til umræðu á Alþingi. Þess vegna munu krónu­tölu­gjöldin svoköll­uðu hækka um ára­mótin um 4,7 pró­sent ef frum­varpið fer óbreytt í gegnum þingið. Allir þessir þrír liðir hafa tölu­verð áhrif á elds­neyt­is­verð hér á landi. Hægt er að sjá sund­ur­liðun elds­neyt­is­verðs­ins á vefnum gogn.kjarn­inn.is. Auk þess­ara þriggja gjalda þá telj­ast áfeng­is­gjald, tóbaks­gjald, bif­reiða­gjald og kíló­metra­gjald einnig til krónu­tölu­gjalda.

Almennt bens­ín­gjald er föst krónu­tala sem leggst á hvern bens­ín­lítra og rennur í rík­is­sjóð. Í dag nemur þetta gjald 25,6 krónum á hvern lítra. Sömu sögu er að segja um sér­stakt vöru­gjald á bens­ín­lítr­ann. 41,3 krónur leggj­ast á lítra­verð á bens­íni í dag. Munurinn á þessum tveimur gjöldum – almennum og sér­stökum vöru­gjöldum á bensín – er að almenna gjaldið rennur óskipt í rík­is­sjóð en sér­staka gjaldið rennur óskipt til Vega­gerð­ar­innar, að frá­dregnu inn­heimtu­gjaldi rík­is­sjóðs.

Kolefn­is­gjald á hvern bens­ín­lítra er einnig ákvarðað með lögum. Það mun hækka að sama skapi um 2,5 pró­sent umfram verð­lags­upp­færslu ef fjár­laga­frum­varpið fer óbreytt í gegnum þingið. Í dag er gjaldið föst krónu­tala að upp­hæð 5,25 krónur sem leggj­ast á hvern seldan lítra af bens­íni.

Í fjár­laga­frum­varp­inu er gert ráð fyrir að elds­neyt­is­gjöldin muni skila sam­an­lagt 26,9 millj­örðum króna í rík­is­sjóð á næsta ári. Þar er einnig gert ráð fyrir aukn­ingu í sölu elds­neytis um þrjú pró­sent. Á sama og fólk muni aka meira á næsta ári þá fer floti spar­neytn­ari bíla stækk­andi sem vegur upp á móti aukn­ingu í elds­neyt­is­sölu.

Samtök iðn­að­ar­ins (SI) hafa gagn­rýnt þennan lið fjár­laga­frum­varps­ins og segja þessa hækkun á elds­neyt­is­gjöldum munu fara „beint út í verð­lag“. „Reikna má með að vísi­tala neyslu­verðs hækki um 0,2 pró­sent bara vegna þess­arar hækk­unar og eykur þannig verð­bólgu sem því nemur og dregur úr kaup­mætti,“ er haft eftir Almari Guð­munds­syni, fram­kvæmda­stjóra SI, í frétta­til­kynn­ingu sam­tak­anna sem barst fjöl­miðlum á fimmtu­dag. Hann bendir einnig á að hér sé um að ræða við­bót­ar­skatta­hækkun á „vörur sem þegar bera mjög háa skatta“.

Ástæða þess að gert er ráð fyrir umfram­hækkun krónu­tölu­gjalda í nýjum fjár­lögum er til þess að „slá á þau þenslu­á­hrif sem látið hafa á sér kræla und­an­farna mán­uði“, svo vitnað sé beint í ræðu Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála­ráð­herra á Alþingi þegar hann mælti fyrir frum­varp­inu 8. des­em­ber síð­ast­lið­inn. „Gert er ráð fyrir að þessi hækkun skili rík­is­sjóði sam­an­lagt 3,2 millj­örðum króna á ári að með­töldum hlið­ar­á­hrifum á virð­is­auka­skatt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

bensínvaktin

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár