Norður-Kórea sýnir nýjar langdrægar skotflaugar og Bandaríkjaher nálgast

Grunur leikur á að Norður-Kórea ætli að gera frek­ari til­raunir með kjarna­vopn á næst­unni. Kyrra­hafs­floti Banda­ríkja­hers nálg­ast Kóreu­skaga og Kín­verjar vara við ástand­inu.

Fjölmenn hersýning var haldin í Pjongjang í dag þar sem talið er að ný skotflaug hafi verið til sýnis.
Fjölmenn her­sýn­ing var haldin í Pjongj­ang í dag þar sem talið er að ný skot­flaug hafi verið til sýnis. Mynd: EPA

Stór her­sýn­ing var haldin í Pjongj­ang, höf­uð­borg Norður-Kóreu í dag, í til­efni afmælis fyrsta leið­toga komm­ún­íska alræð­is­rík­is­ins Kim Il-Sung og afa núver­andi leið­toga Kim Jong-un.

[links]Á her­sýn­ing­unni er talið að norð­ur­kóresk stjórn­völd hafi sýnt nýja gerð lang­drægra sprengju­flauga sem ekki hafa litið dags­ins ljóss áður. Þetta hafa suð­ur­kóreskir frétta­miðlar eftir þar­lendum stjórn­völdum sem fylgj­ast náið með fram­vindu mála norðan landamær­anna á Kóreu­skag­anum.

Reuters frétta­stofan greinir frá eld­flaug­unum og grun­semdum um að nú séu í und­ir­bún­ingi frek­ari til­raunir með kjarna­vopn í fjall­lendi Norður-Kóreu.

Enginn kín­verskur ráða­maður er tal­inn hafa verið við­staddur skrúð­göngu og her­sýn­ing­una í dag en Kína hefur lengi verið eitt fárra ríkja sem heldur stjórn­mála­sam­bandi við Norður-Kóreu. Kín­verjar hafa jafn­framt varað við ástand­inu sem ríkir í sam­skiptum Norður-Kóreu við aðrar þjóðir og bent á að það verði að finn­ast lausn áður en hörm­ungum verði ekki hægt að afstýra.

Á sama tíma og þetta er að ger­ast í höf­uð­borg­inni Pjongj­ang er floti banda­ríska her­skipa á leið yfir Kyrra­hafið og kom­inn nærri Kóreu­skag­anum. Er það gert til þess að sýna stjórn­völdum í Norður-Kóreu til hvaða aðgerða Banda­ríkin og banda­menn þeirra eru til­búin að grípa til ef Norður-Kórea fylgir ekki alþjóða­lögum og skuld­bind­ingum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár