Konur aðeins þriðjungur viðmælanda íslenskra fjölmiðla

Hlutur kvenna í fréttum hér á landi er rýr­ari en ann­ars staðar á Norð­ur­löndum. Ekki er afger­andi kynja­skipt­ing eftir mál­efna­sviðum í íslenskum fréttum, ólíkt því sem tíðkast víð­ast hvar ann­ars staðar.

Valgerður Jóhannsdóttir og Finnborg Salome Steinþórsdóttir eru höfundar greinarinnar Kynjaslagsíða í fréttum: Um fjölbreytni og lýðræðishlutverk fjölmiðla.
Val­gerður Jóhanns­dóttir og Finnborg Salome Stein­þórs­dóttir eru höf­undar grein­ar­innar Kynjaslag­síða í fréttum: Um fjöl­breytni og lýð­ræð­is­hlut­verk fjöl­miðla. Mynd: Aðsendar myndir

Kynjaslag­síðu körlum í vil gætir í frétta­flutn­ingi íslenskra fjöl­miðla og er þessi slag­síða meiri en ætla mætti miðað við stöðu kvenna innan íslensks sam­fé­lags almennt. Þetta er meðal nið­ur­staða Val­gerðar Jóhanns­dóttur, lekt­ors í blaða- og frétta­mennsku við stjórn­mála­fræði­deild Háskóla Íslands og Finn­borgar Salome Stein­þórs­dóttur, nýdokt­ors í kynja­fræði við sömu deild. Nið­ur­stöður sam­an­burð­ar­rann­sóknar Val­gerðar og Finn­borgar má finna í grein­inni Kynjaslag­síða í fréttum: Um fjöl­breytni og lýð­ræð­is­hlut­verk fjöl­miðla sem er birt í nýjasta tölu­blaði rit­rýnda tíma­rits­ins Stjórn­mál og stjórn­sýsla.

Fram kemur í grein þeirra Val­gerðar og Finn­borgar að aðeins þriðj­ungur við­mæl­enda í fréttum séu konur og að hlutur kvenna í fréttum hér­lendis sé rýr­ari en ann­ars staðar á Norð­ur­lönd­unum. Samt sem áður virð­ist ekki vera afger­andi kynja­skipt­ing eftir mál­efna­sviðum í fréttum þó víða ann­ars staðar megi greina slíkan mun. „Rann­sóknir hafa sýnt fram á kynjuð mál­efna­svið í fréttum, þar sem karlar eru í meiri­hluti við­mæl­enda í „hörðum“ fréttum og konur koma oft­ast fram í tengslum við „mjúkar“ fréttir,“ segir í skýrsl­unni en til „harðra“ frétta telj­ast fréttir sem tengj­ast stjórn­málum, alþjóða­málum og efna­hags­málum. Hinar svoköll­uðu „mjúku“ fréttir tengj­ast aftur á móti félags­málum, lífs­stíl, heilsu og menntun.

„Fáar konur eru í hlut­verki sér­fræð­inga og álits­gjafa í fréttum, sem er ekki í sam­ræmi við stöðu kvenna í sam­fé­lag­inu. Nið­ur­stöð­urnar benda til þess að ráð­ast þurfi í aðgerðir til að stuðla að jafn­rétti og fjöl­breytni í fjöl­miðlum ef fjöl­miðlar eiga að sinna lýð­ræð­is­hlut­verki sínu sem skyldi,“ segir í grein­inni.

Þörf á verklagsreglum og leiðbeiningum fyrir fjölmiðlafólk

Val­gerður og Finnborg segja að nauð­syn­legt sé þetta vanda­mál með heild­rænum hætti, meðal ann­ars „út frá lagaum­hverf­inu, kerf­is­lægum þáttum og menn­ing­ar­legum þáttum. Stjórn­völd þurfi að setja sér stefnur sem ávarpa áskor­an­irnar sér­stak­lega og fjöl­miðlar þurfi að inn­leiða verk­lags­reglur og leið­bein­ingar fyrir starfs­fólk.“

Rann­sóknin er hluti af alþjóð­legri vötkun sem nefn­ist Gender and Media Mon­itor­ing Project (GMMP) en hún er lang­lífasta og umfangs­mesta rann­sókn á hlut og birt­ing­ar­mynd kvenna og karla í frétta­miðlum. Fyrsta rann­sóknin var gerð árið 1995 í 71 landi og hefur verið end­ur­tekin á fimm ára fresti síðan. Ísland hefur tekið þátt í rann­sókn­inni frá upp­hafi er frá er skilið árið 2005. Í síð­ustu rann­sókn sem fram­kvæmd var árið 2020 voru frétta­miðlar í 116 löndum vaktaðir.

„Vöktunin felst í að greina umfjöllun í helstu frétta­miðlum þátt­töku­landa einn til­tek­inn dag og draga þannig upp „dæmi­gerða“ mynd af hlut og birt­ing­ar­mynd kynj­anna,“ segir í grein­inni um fram­kvæmd­ina. Rann­sóknin náði til tveggja prent­miðla; Frétta­blaðs­ins og Morg­un­blaðs­ins, tveggja ljós­vaka­miðla sem halda úti frétta­stofum; RÚV ann­ars vegar og Stöð 2 og Bylgj­unnar hins vegar, og sjö vin­sæl­ustu vef­miðla lands­ins en þeir eru dv.is, fretta­bla­did.is, kjarn­inn.is, mbl.is, ruv.is, stundin.is og visir.is.

Konur eru 57 prósent viðmælenda í innlendum fréttum

Meðal nið­ur­staðna vökt­un­ar­innar var að þriðj­ungur frétt­anna í íslenskum frétta­miðlum þann dag sem vökt­unin náði til (29. sept­em­ber 2020) var skrif­aður eða fluttur af konum. Þetta hlut­fall er mun lægra hér á landi en víð­ast hvar ann­ars staðar. Með­al­talið á heims­vísu er 37 pró­sent og í Evrópu er hlut­fallið 41 pró­sent. Í nor­rænum sam­an­burði kom Ísland verst út ásamt Danmörku.

Líkt og áður segir er hlut­fall við­mæl­enda einnig þriðj­ungur en annað er uppi á ten­ingnum þegar litið er til við­mæl­enda í inn­lendum fréttum, þar mælist hlut­fallið 57 pró­sent. Vera kann að stærsta frétta­mál vökt­un­ar­dags­ins setji strik í reikn­ing­inn og hafi áhrif á þetta hlut­fall til hækk­unar. „Hvort nið­ur­stöð­urnar bendi til þátta­skila hér á landi eða hvort þetta sé til­fallandi, og þá til­komið vegna þess að vökt­un­ar­dag­inn voru kynntar Covid-19-aðgerðir þar sem for­sæt­is­ráð­herra og ráð­herra ferða­mála voru áber­andi í fréttum, á eftir að koma í ljós,“ segir í grein­inni. Á þessum tíma var Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra, Lilja D. Alfreðs­dóttir var ráð­herra ferða­mála og að auki má nefna að Svandís Svav­ars­dóttir var heil­brigð­is­ráð­herra.

Hlutfall kvenna í erlendum fréttum er aftur á móti áhyggju­efni að mati grein­ar­höf­unda, það mæld­ist ein­ungis sex pró­sent í vökt­un­inni.

„Afgerandi fáar“ konur í hlutverki sérfræðinga og álitsgjafa

Í lokakafla grein­ar­innar segir að á Íslandi starfi hlut­falls­lega fleiri konur við fjöl­miðla en eru í fréttum „og end­ur­speglar það, líkt og fyrri rann­sóknir, að ekki eru bein tengsl á milli hlutar kvenna í blaða- og frétta­mennsku og fjölda og birt­ing­ar­mynda kvenna í fjöl­miðlum.“

Þar segir einnig að nið­ur­stöð­urnar bendi til þess að meiri kynjaslag­síða sé í íslenskum frétta­miðlum en ætla mætti miðað við stöðu kvenna í íslensku sam­fé­lagi. Þannig eru „afger­andi fáar“ konur í hlut­verki sér­fræð­inga og álits­gjafa í fréttum. Þrátt fyrir að það sé í takt við erlendar rann­sóknir. Það er engu að síður áhyggju­efni en líkt og höf­undar benda á hafa konur verið meiri­hluti háskóla­nema í tæp­lega fjóra ára­tugi, þeim hefur farið fjölg­andi í hópi sér­fræð­inga auk þess sem konur gegna leið­andi stöðum í opin­bera geir­anum og í fjölda­hreyf­ingum launa­fólks.

Val­gerður og Finnborg benda á að kynja­mun­ur­inn rími við hug­myndir Lynn Weber um kynjuð valda­tengsl „og hvernig ráð­andi hóp­ur­inn, í þessu til­felli karlar, hefur greið­ari aðgang póli­tískum og hug­mynda­fræði­legum auði sam­fé­lags­ins. Fjarvera kvenna í hlut­verki sér­fræð­inga og álits­gjafa í fréttum, þrátt fyrir að fjöldi þeirra búi yfir mik­illi þekk­ingu og reynslu, getur end­ur­speglað hvernig ósýni­leg við­mið fyrir það hlut­verk eru sniðin að ráð­andi hópi karla. Full ástæða er til að skoða sér­stak­lega hvað veldur því að sér­fræði­þekk­ing kvenna virð­ist ekki skila sér í fjöl­miðla í sama mæli og þekk­ing og álit karla.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár