Ráðuneytið hefur engar upplýsingar um níumenningana á „svarta listanum“

Utan­rík­is­ráðu­neytið hefur engar upp­lýs­ingar um níu­menn­ing­ana sem rúss­nesk stjórn­völd hafa sett á svartan lista. „Ef á reynir verður það kannað nánar.“

Engar upplýsingar um gagnaðgerðir Rússa gegn Íslendingunum níu hafa borist utanríkisráðuneytinu.
Engar upp­lýs­ingar um gagn­að­gerðir Rússa gegn Íslend­ing­unum níu hafa borist utan­rík­is­ráðu­neyt­inu. Mynd: Stjórnarráðið

„Utan­rík­is­ráðu­neytið hefur engar upp­lýs­ingar umfram það sem hefur komið fram í fjöl­miðlum. Ef á reynir verður það kannað nánar.“

Þetta segir Sveinn H. Guð­mars­son, upp­lýs­inga­full­trúi utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins í svari við fyr­ir­spurn Kjarnans um þau tíð­indi að rúss­nesk stjórn­völd hafa sett níu Íslend­inga á svartan lista vegna þátt­töku Íslands í refsi­að­gerðum Evr­ópu­sam­bands­ins vegna inn­rás­ar­innar í Úkraínu.

[adspot]

Sama svar hafa norskir fjöl­miðlar fengið frá utan­rík­is­ráðu­neyt­inu þar í landi en í til­kynn­ingu sem birt­ist á vef rúss­neska utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins í gær segir að „gagn­að­gerðin“ bein­ist einnig gegn sextán Norð­mönnum, þremur Græn­lend­ingum og þremur Fær­ey­ingum. „Þessum ein­stak­lingum er bannað að koma til lands okkar,“ stendur í til­kynn­ing­unni.

Ekki liggur um hvaða ein­stak­linga er þarna um að ræða, en í til­kynn­ingu rúss­neska ráðu­neyt­is­ins er talað um að aðgerð­irnar bein­ist gegn þing­mönnum, ráð­herrum, fólki úr við­skipta­líf­inu, fræði­mönnum, fjöl­miðla­fólki og opin­berum per­sónum sem hafi „kynt undir and-rúss­neskri orð­ræðu“ og skipu­lagt og komið í verk stefnu­málum sem bein­ast gegn Rúss­landi.

[links]Samkvæmt því sem fram kemur í frétt norska rík­is­út­varps­ins (NRK) um málið munu ein­stak­ling­arnir sem aðgerðir Rússa ná til lík­lega ekki kom­ast að því að nöfn þeirra eru á „svarta list­anum“ fyrr en þeir myndu reyna að kom­ast til Rúss­lands. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Norðmenn eru beittir sam­bæri­legum refsi­að­gerðum. Það gerð­ist einnig eftir að Rússar tóku yfir Krím­skaga árið 2014 en þá beittu vest­ur­veldin þá einnig ýmsum þving­unum.

Ísland hefur tekið undir allar þving­un­ar­að­gerðir Evr­ópu­sam­bands­ins gegn Rúss­landi sem gripið hefur verið til í kjöl­far þess að rúss­neski her­inn réðst inn í Úkraínu í lok febr­ú­ar­mán­aðar.

Á vef íslenska utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins má finna yfir­lit yfir þær aðgerðir sem Ísland tekur þátt í. Þar á meðal eru ferða­bönn og fryst­ing fjár­muna til­tek­inna ein­stak­linga. Þessar aðgerðir bein­ast meðal ann­ars að Vladimír Pútín, for­seta Rúss­lands, og Sergei Lavrov utan­rík­is­ráð­herra, en einnig er þeim beint að með­limum þjóðar­ör­ygg­is­ráðs Rúss­lands sem studdu við­ur­kenn­ingu sjálf­stæðis svæð­anna Donetsk og Luhansk í Úkraínu, ein­stak­lingum sem tengj­ast rík­is­reknum fjöl­miðlum og ein­stak­lingum úr fjár­mála­geir­anum.

Þá ná aðgerð­irnar sem Ísland tekur þátt í til flestra þing­manna rúss­neska þings­ins og bein­ast þær einnig að ein­stak­lingum sem sagðir eru stunda áróð­urs­starf­semi fyrir rúss­neska ríkið, lobbí­istum og rúss­neskum auð­mönnum.

„Meira síðar...“

Míkhaíl Noskov, sendi­herra Rúss­lands á Íslandi, var boð­aður á fund í utan­rík­is­ráðu­neyt­inu í gær þar sem honum var til­kynnt að nær­veru hans væri ekki óskað við hátíða­höld 17. júní en sendi­herrum erlendra ríkja er jafnan boðið til þeirra.

Á fund­inum ítrek­uðu íslenskir emb­ætt­is­menn for­dæm­ingu stjórn­valda á inn­rás Rúss­lands í Úkraínu.

Til­kynn­ingin um „gagn­að­gerð­irnar“ á vef rúss­neska utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins í gær er ekki löng. Telur aðeins tvær máls­greinar. En í ensku útgáfu hennar má finna þessa setn­ingu neðst: „Meira síðar...“ (To be continued).

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár