Samskipti sem fara yfir strikið

Ásta Sól og Benna safna nú fyrir gagn­virkri vef­síðu sem á að hjálpa 13 til 19 ára ung­mennum að læra að þekkja óheil­brigð sam­skipti og ofbeldi með því að auka sjálfs­traust til að bregð­ast við og leita sér hjálpar ef þess ger­ist þörf.

Ásta Sól og Benna.
Ásta Sól og Benna. Mynd: Aðsend mynd

Benna Sörensen, dokt­or­snemi og stofn­andi Ofbeld­is­for­varna­skól­ans hefur lengi brunnið fyrir mál­efnum ungs fólks og er að hefja dokt­ors­rann­sókn á for­vörnum gegn kyn­bundnu ofbeldi meðal íslenskra ung­linga. Hún og Ásta Sól Krist­jáns­dóttir safna nú fyrir verk­efn­inu Yfir Strikið á Karolina Fund en það er hluti af stærra verk­efni Ofbeld­is­for­varna­skól­ans.

Hvernig kvikn­aði hug­myndin?

„Hug­myndin að verk­efn­inu kom upp í tengslum við önnur verk­efni sem við erum að vinna að og fjalla öll á einn eða annan hátt um að auka sjálfs­traust fólks til að takast á við for­varnir gegn kyn­bundnu ofbeldi. Við erum með frá­bært sam­starfs­fólk úr félags­mið­stöðvum úti í Skotlandi og hér heima. Saman höfum við kom­ist að því að það er mik­ill vilji til að efla þessar for­varnir en vantar kannski aðeins upp á að fólk hafi nægan stuðn­ing til þess. Við höfum þess vegna verið til dæmis að vinna að nám­skeiði fyrir kenn­ara og starfs­fólk félags­mið­stöðva til að efla þau í að leiða ung­linga­hópa í for­varn­ar­vinnu. Þetta gátum við gert fyrir styrk frá Erasmus+.

Í þeirri vinnu kom upp að næsta skrefið væri auð­vitað að gera allt sem við getum til að styðja ung­ling­ana sjálfa í að nálg­ast fræðslu þar sem þau sjálf velta fyrir sér og gera upp við sig hvar mörkin liggja í sam­skiptum. Jafn­ingja­fræðsla er ótrú­lega mik­il­vægur partur af menntun ungs fólks og sér­stak­lega þegar kemur að mál­efnum sem snerta þeirra eigin reynslu, enda sjáum við að hver bylt­ingin á fætur er knúin áfram af ungu fólki og það eru þau sem eru að breyta sam­fé­lag­inu okkar til hins betra.“

[adspot]

Segið okkur frá þema verk­efn­is­ins

„Nið­ur­staða okkar var sem sagt þetta þema, Yfir strikið. Sam­skipti sem fara yfir strikið. Vefsíðan er þannig að þar birt­ast örsögur af ofbeldi eða óheil­brigðum sam­skiptum þar sem þau sem skoða hana strika yfir hegðun sem þeim finnst fara yfir strikið. Á síð­unni geta þau svo líka borið sína upp­lifun saman við mat fag­fólks í ofbeld­is­for­vörnum ef þau kjósa að gera það og séð hvar er hægt að leita hjálpar. Aðal­at­riðið er samt alltaf sú hugsun og umræða sem á sér staðar hjá ung­ling­unum sjálfum.“

Á Karolina Fund-síð­unni kemur fram að þessar sögur séu frá mis­mun­andi sjón­ar­hornum, af hverju er það?

„Já, það er rétt. Þarna sjáum við sögur bæði frá sjón­ar­horni ungs fólks sem hefur lent í að þeirra mörk séu ekki virt og líka þeirra sem hafa fattað eftir á að þau sjálf voru ekki að virða mörk ann­arra. Það er vegna þess að það skiptir ótrú­lega miklu máli að geta sett okkur í spor þeirra sem verða fyrir ofbeldi, átta okkur á því hvernig fólki líður og þekkja hegðun sem fer yfir strikið. En svo er líka svo mik­il­vægt að við lærum að spá í því hvort við sjálf höfum gert mis­tök, hvort það geti verið að við höfum farið yfir mörk eða jafn­vel beitt ofbeldi. Með síð­unni ætlum við okkur að styðja við sístækk­andi safn for­varn­ar­efnis um kyn­bundið ofbeldi.“

Hægt er að styðja við verk­efnið hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolinafund

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár