Raunverð fjölbýlis hefur hækkað um 50% á fimm árum

Raunverð fjöl­býlis hefur hækkað um 50 pró­sent frá upp­hafi árs­ins 2011, og raun­verð sér­býlis um 30 pró­sent. Ef aðeins er horft á síð­ast­liðið ár hefur raun­verð fjöl­býlis hækkað um 14,2 pró­sent og raun­verð sér­býlis um 14,7 pró­sent. Þetta kemur fram í nýrri hag­sjá Lands­bank­ans. Raunverð fast­eigna hefur hækkað mun meira en ann­ars hefði orðið vegna þess að verð­bólga hefur verið lág og stöðug um langt skeið.

Fast­eigna­verð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hækk­aði um tvö pró­sent milli mán­aða í októ­ber síð­ast­liðnum. Verð á fjöl­býli hækk­aði um 1,8 pró­sent en á sér­býli um 2,2 pró­sent. Þegar horft er 12 mán­uði aftur í tím­ann hefur fjöl­býl­is­verð hækkað um 13,6 pró­sent og sér­býli um 14,2 pró­sent, en þetta eru mestu árs­hækk­anir sem sést hafa frá árinu 2007.

Annan mán­uð­inn í röð eru hækk­anir á sér­býlum meiri en á fjöl­býlum, en því hefur verið öfugt farið und­an­farin ár og frá vor­inu 2012 hefur hækkun í fjöl­býli verið meiri á hverju ári. Und­an­farna mán­uði hefur hækkun á sér­býlum hins vegar tekið við sér og tekið fram út fjöl­býl­is­hækk­unum. Breyt­ingar á verði sér­býlis eru iðu­lega sveiflu­kennd­ari en á fjöl­býli, en hag­fræði­deild Lands­bank­ans segir að núver­andi fer­ill á hækk­unum á sér­býli hafi bæði verið óvenju­lega langur og hækk­unin hafi verið óvenju­lega mikil. Við­skipti með sér­býli hafa líka verið mun líf­legri á þessu ári en í fyrra, á meðan við­skipti með fjöl­býli eru svipuð.

Lands­bank­inn segir að eftir mikla aukn­ingu fast­eigna­við­skipta í fyrra líti nú út fyrir að mark­að­ur­inn sé að falla í svipað horf og á árunum 2011 til 2014, með hóf­legri aukn­ingu. Eft­ir­spurn­inni eftir hús­næði, sér­stak­lega litlum íbúðum, hefur hins vegar ekki verið mætt og almenn sé skort­ur­inn á fram­boði ásamt mik­illi kaup­mátt­ar­aukn­ingu stærsti skýr­ing­ar­þáttur í miklum verð­hækk­unum.

Þá bendir bank­inn á að sam­kvæmt gögnum um þing­lýsta kaup­samn­inga hafa ein­ungis þús­und íbúðir á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, sem byggðar hafa verið 2012 og síðar, verið seldar. Þetta eru tæp­lega átta pró­sent af við­skipt­unum á tíma­bil­inu. Því sé varla hægt að halda því fram að dýr­ari nýbygg­ingar séu ráð­andi í verð­þróun síð­ustu miss­era. Hlutfall nýrra íbúða er lang­lægst í Reykja­vík, þrjú pró­sent síð­ustu fjögur ár og tvö pró­sent und­an­farið ár, en lang­hæst í Garðabæ, rúm­lega 40 pró­sent í ár og 26% að með­al­tali síð­ustu fjögur ár.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár