Fjórðungur Ítala í sóttkví

Fólk í fimmtán hér­uðum Ítalíu er beðið um að ferð­ast ekki að nauð­synja­lausu um og út af svæð­inu og lög­reglan hefur heim­ildir til að stöðva fólk og spyrja hvert för þess sé heitið og af hverju. Til­fellum í Kína fer nú fækk­andi.

Ljósmóðir tekur á móti barni á sjúkrahúsi í Wuhan-borg í Kína. Vegna gruns um að móðirin væri smituð af kórónuveirunni var gripið til mikilla varúðarráðstafana við fæðinguna.
Ljós­móðir tekur á móti barni á sjúkra­húsi í Wuhan-borg í Kína. Vegna gruns um að móð­irin væri smituð af kór­ónu­veirunni var gripið til mik­illa var­úð­ar­ráð­staf­ana við fæð­ing­una. Mynd: EPA

Brúð­kaupum og jarð­ar­förum hefur verið frestað. Sömu­leiðis trú­ar­legum sam­komum og menn­ing­ar­við­burðum. Kvik­mynda­hús eru lokuð sem og næt­ur­klúbbar, lík­ams­rækt­ar­stöðvar, sund­laugar og skíða­svæði. Veitinga- og kaffi­hús mega hafa opið milli 6 að morgni og 18 að kvöldi en gestir verða að sitja í að minnsta kosti eins metra fjar­lægð frá hver öðrum.

Stjórn­völd á Ítalíu hafa sett allt að sextán millj­ónir manna í sótt­kví til að reyna að hefta útbreiðslu nýju kór­ónu­veirunnar sem veldur COVID-19. Fólk er beðið að vera sem mest heima hjá sér og þeir sem fylgja ekki sótt­varn­ar­regl­unum geta átt allt að þriggja mán­aða fang­els­is­dóm yfir höfði sér.

Ströng­ustu aðgerð­irnar ná til fimmtán hér­aða í norð­ur­hluta lands­ins. Innan þess svæðis eru bæði Feneyjar og Mílanó. Skólar, söfn og aðrir sam­komu­staðir eru hins vegar lok­aðir í öllu land­inu. Þær aðgerðir gilda til að minnsta kosti 3. apríl.

Tæplega 6.000 til­felli kór­ónu­veirunnar hafa verið stað­fest í land­inu og yfir 230 manns hafa lát­ist vegna sýk­ing­ar­innar. Ítalía sker sig veru­lega úr hvað varðar útbreiðsl­una í Evrópu.

„Við viljum tryggja heilsu borg­ar­anna. Við skiljum að þessar aðgerðir kalla á fórnir, stundum litlar en stundum mjög stórar,“ sagði Giuseppe Conte, for­sæt­is­ráð­herra Ítalíu, í morgun. „Runnin er upp sú stund sem við verðum að taka ábyrgð á okkur sjálfum.“

Ítölsk stjórn­völd höfðu til­kynnti í síð­ustu viku að öllum skólum yrði lokað í tíu daga. Til fleiri strangra aðgerða var gripið. Vonast var til að með þessu yrði hægt að hefta útbreiðsl­una en nú virð­ist ljóst að það varð ekki raunin. Fjöldi smit­aðra hefur haldið áfram að vaxa hratt og sömu­leiðis dauðs­föll af völdum veirunnar.

Því ákváðu stjórn­völd nú um helg­ina að grípa til hert­ari ráð­staf­anna. Fólk er beðið um að ferð­ast ekki að nauð­synja­lausu um og út úr hinum fimmtán hér­uðum og lög­reglan hefur heim­ildir til að stöðva fólk og spyrja hvert för þess sé heitið og af hverju.

Of seint?

For­sæt­is­ráð­herr­ann sagði í morgun að fólk ætti ekki að ferð­ast um þessi skil­greindu hættu­svæði eða frá þeim nema að brýna nauð­syn bæri til. „Við stöndum frammi fyrir neyð. Við verðum að tak­marka útbreiðslu veirunnar og koma í veg fyrir að sjúkra­húsin okkar verði yfir­full.“

Spurn­ingin er hins vegar hvort að þessar aðgerðir komi of seint til sög­unnar. Talið er að veiran hafi búið um sig í ítölsku sam­fé­lagi í margar vikur áður en að það upp­götv­að­ist. Nú hefur hún greinst í 22 hér­uðum lands­ins.

Um 106 þús­und manns víðs­vegar um heim­inn hafa greinst með veiruna. Af þeim hafa tæp­lega 3.600 lát­ist. Lang­flest til­fellin hafa greinst í Kína þar sem veiran er upp­runnin. Ástandið er einnig slæmt í Íran og Suður-Kóreu þar sem yfir 7.000 eru smit­aðir.

Ekki hafa færri til­felli greinst í Kína í dag frá því í jan­úar. 27 dauðs­föll vegna veirunnar hafa verið stað­fest í land­inu nú um helg­ina, öll í Wuhan-borg þar sem veiran greind­ist fyrst í des­em­ber.

Neyðarstigi lýst yfir á Íslandi

Fimmtíu smit hafa greinst hér á landi. Lang­flestir hinna smit­uðu voru að koma frá Ítalíu og Aust­ur­ríki en nokkrir hafa smit­ast inn­an­lands. Yfir 400 manns eru í sótt­kví.

[links]Rík­is­lög­reglu­stjóri hefur lýst yfir neyð­ar­stigi almanna­varna í sam­ráði við sótt­varna­lækni vegna COVID-19. Fyrstu smit inn­an­lands voru stað­fest fyrir helgi. Í kjöl­farið var ákveðið að lýsa yfir neyð­ar­stigi almanna­varna. Það er gert m.a. á grunni þess að sýk­ingin er nú farin að breið­ast út inn­an­lands.

Virkjun neyð­ar­stigs hefur ekki telj­andi áhrif á almenn­ing umfram hættu­stig sem varað hefur frá 28. febr­úar. Ekki hefur verið lagt á sam­komu­bann en for­svars­menn almanna­varna hafa sagt að slíkar aðgerðir séu óum­flýj­an­legar.

Stjórn­völd og við­bragðs­að­ilar hafa und­an­farið unnið að miklu leyti eins og um neyð­ar­stig væri að ræða og því hafa ýmsar ráð­staf­anir sem neyð­ar­stig kveður á um þegar verið gerðar. Þar má nefna áætl­anir um vöktun og far­sótta­grein­ingu ásamt því að tryggja að sótt­varna­ráð­stöf­unum sé beitt.

Sótt­varna­læknir beinir því sér­stak­lega til þeirra sem telj­ast til við­kvæmra hópa, einkum þá sem eru með und­ir­liggj­andi sjúk­dóma og eldri ein­stak­linga að huga vel að hrein­læt­is­að­gerðum og forð­ast manna­mót að óþörfu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár