28 hafa sótt um leyfisnúmer fyrir heimagistingu

Örfáir hafa til­kynnt um heimagist­ingu sína til stjórn­valda eftir að ný lög tóku gildi. 28 hafa sótt um leyf­is­númer. 2.662 íslenskar skrán­ingar er að finna á Airbnb síð­ustu 30 daga.

Aðeins fáeinar eignir hafa verið skráðar til skammtímaleigu eftir að ný lög tóku gildi um áramótin.
Aðeins fáeinar eignir hafa verið skráðar til skamm­tíma­leigu eftir að ný lög tóku gildi um ára­mótin. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Aðeins 28 hafa sótt um leyf­is­númer fyrir sölu á heimagist­ingu eftir að ný lög um skamm­tíma­leigu á hús­næði gengu í gildi um ára­mótin. Síðast þegar leigu­vef­ur­inn Airbnb gaf upp tölur um fjölda íslenskra skrán­inga á vefnum voru þær nærri fjögur þús­und í jan­úar í fyrra. Síðasta mán­uð­inn hafa 2.662 skrán­ingar verið virkar á vefnum. Frá þessu er greint á vefnum Túristi.is.

Sýslu­mað­ur­inn á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sér um skrán­ingu leyf­is­núm­era. Samkvæmt upp­lýs­ingum Túrista.is hefur verið sótt um leyf­is­númer fyrir aðeins 28 eignir. Í lög­gjöf­inni um tak­mark­anir á útleigu heim­ila og fast­eigna sem tók gildi um ára­mótin er fjöldi þeirra daga sem fast­eign getur verið í útleigu tak­mark­aður við 90 daga á ári, nema sótt sé um sér­stakt rekstr­ar­leyfi. Allir sem hyggj­ast leigja út hús­næði sitt á skamm­tíma­leigu verða hins vegar að sækja um skrán­ing­ar­númer og birta það með aug­lýs­ingu hús­næð­is­ins á vefnum.

Í laus­legri könnun Túrista á íslenskum skrán­ingum á Airbnb fannst ekk­ert skrán­ing­ar­númer með aug­lýs­ingum. Sýslu­mað­ur­inn á höf­uð­borg­ar­svæð­inu mun halda úti könnun á leigu­vefjum og ganga þannig úr skugga um að skrán­ing­ar­núm­erin séu sýni­leg. Sé skrán­ing­ar­núm­erið ekki sýni­legt geta stjórn­völd lagt stjórn­valds­sektir á eig­anda hús­næð­is­ins. Nánar er fjallað um skil­yrði heimagist­ingar á vefnum gestur.is.

Fjöldi gisti­rýma í útleigu hér á landi hefur marg­fald­ast á síð­ustu árum og þá gildir einu um hvort það eru heilar íbúðir eða afmörkuð her­bergi sem eru í boði. Á Air­bn­b.com hefur verið hægt að finna 3.104 skráð gisti­rými síð­ustu 30 daga í Reykja­vík. Þessi fjöldi var að jafn­aði um 1.700 gisti­rými árið 2015 og rúm­lega 700 árið 2014. 73,2 pró­sent þeirra sem bjóða upp á leigu í Reykja­vík á vef Air­BnB bjóða heila íbúð til leigu. Í 59 pró­sent til­vika voru eignir í Reykja­vík sam­tals í útleigu í minna en þrjá mán­uði und­an­farið ár.

Kjarninn fjall­aði um tak­mark­anir á skamm­tíma­leigu hús­næðis í Reykja­vík og víðar í byrjun des­em­ber í fyrra.

Til þess að fá skrán­ing­ar­númer verða ein­stak­lingar sem ætla að leigja út íbúð­ina sína eða hluta af heim­ili sínu að upp­fylla ákveðnar kröfur um bruna­varn­ir, ástand og húsa­kynnin verða að vera sam­þykkt sem íbúð. Sér­stakt árgjald að upp­hæð 8.000 krónur þarf einnig að greiða fyrir skrán­ing­una. Allar þessar kröfur eru gerðar til þess að ein­falda og bæta eft­ir­lit með leyf­is­lausri starf­semi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár