Frestur til auðveldari breytinga á stjórnarskrá að renna út

Frestur til þess að gera breyt­ingar á stjórn­ar­skránni án þess að rjúfa þing og kjósa aftur rennur út á sunnu­dag­inn, án þess að breyt­ingar hafi verið gerðar.

Jóhanna Sigurðardóttir, fyrrverandi forsætisráðherra.
Jóhanna Sig­urð­ar­dóttir, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra. Mynd: kjarninn_myndir

Bráða­birgða­á­kvæði í stjórn­ar­skránni, sem kveður á um að auð­veld­ara sé að breyta stjórn­ar­skránni en venju­lega, rennur út á sunnu­dag­inn, 30. apríl 2017. Ákvæðið var sam­þykkt sem mála­miðlun í stjórn­ar­skrár­breyt­ingum á Alþingi í júlí árið 2013. Með bráða­birgða­á­kvæð­inu gafst tæp­lega fjög­urra ára frestur til þess að breyta stjórn­ar­skránni án þess að þurfa að rjúfa þing og boða til nýrra kosn­inga.

Bráða­birgða­á­kvæðið var sett fram sem mála­miðlun og til þess að ná sem víð­tæk­astri sátt á Alþingi um fram­hald og lyktir end­ur­skoð­un­ar­innar á stjórn­ar­skránni, sem stóð á árunum eftir hrun og varð að nýrri stjórn­ar­skrá stjórn­laga­ráðs. Haldin var þjóð­ar­at­kvæða­greiðsla um til­lögur stjórn­laga­ráðs, þar sem til­lög­urnar voru sam­þykktar.

Þegar ljóst var undir lok kjör­tíma­bils­ins 2009 til 2013 að ekki myndi takast að koma stjórn­ar­skrár­breyt­ingum í gegn fyrir kosn­ingar var til­lagan um bráða­birgða­á­kvæðið flutt. Í henni kom fram að „sam­þykki Alþingi frum­varp til laga um breyt­ingu á stjórn­ar­skrá með minnst 3/5 hlutum greiddra atkvæða skal það borið undir atkvæði allra kosn­ing­ar­bærra manna í land­inu til sam­þykktar eða synj­unar.“ Ef frum­varpið væri sam­þykkt með 3/5 hlutum greiddra atkvæða í þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­unni ætti for­set­inn að stað­festa frum­varpið innan tveggja vikna og þar með yrði það orðið að gildum stjórn­ar­skip­un­ar­lögum.

Þannig var kom­ist hjá því að rjúfa þyrfti þing til að breyta stjórn­ar­skránni, en í stað­inn var kveðið á um auk­inn meiri­hluta bæði á þingi og meðal þjóð­ar­innar. Samhliða þessu var flutt þings­á­lykt­un­ar­til­laga um að Alþingi fæli fimm manna nefnd að vinna áfram að heild­ar­end­ur­skoðun stjórn­ar­skrár­innar.

Þessi til­laga var lögð fram í tvígang og var sam­þykkt eftir að ný rík­is­stjórn Fram­sókn­ar­flokks og Sjálf­stæð­is­flokks hafði tekið við völdum eftir kosn­ing­arnar 2013. Síðan þá hefur verið unnið að stjórn­ar­skrár­breyt­ingum í stjórn­ar­skrár­nefnd, og Sigurður Ingi Jóhanns­son lagði fram breyt­ing­ar­til­lögur að stjórn­ar­skránni í fyrra, þegar hann var for­sæt­is­ráð­herra. Ekkert hefur hins vegar orðið af breyt­ing­unum, og nú mun frest­ur­inn til að gera breyt­ingar með þessum hætti renna út á sunnu­dag án þess að svo verði.

Jóhanna Sig­urð­ar­dóttir, sem var for­sæt­is­ráð­herra þegar stjórn­laga­ráð starf­aði, gerir þetta mál að umtals­efni á Facebook-síðu sinni. Hún segir þar að Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, eft­ir­maður hennar í for­sæt­is­ráð­herra­emb­ætt­inu, og Bjarni Bene­dikts­son, núver­andi for­sæt­is­ráð­herra, hafi borið mesta ábyrgð á því að ný stjórn­ar­skrá náði ekki fram að ganga. Þess í stað hafi mála­miðl­unin orðið til og nú falli hún úr gildi án þess að nokkuð af viti hafi verið gert í stjórn­ar­skrár­mál­inu.

„Í hvaða lýð­ræð­is­ríki hefði stjórn­völdum lið­ist að gefa þjóð­inni bara langt nef eftir að mik­ill meiri­hluti þátt­tak­enda í þjóð­ar­at­kvæða­griðslu hefði krafið stjórn­völd um nýja stjórn­ar­skrá? Stjórn­ar­skrá sem þjóðin hefur kallað eftir í rúm 70 ár.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár