Fjórðungur smitaðra í fjórðu bylgjunni óbólusettur

Fimmtán sjúk­lingar liggja á Land­spít­al­anum með COVID-19, þar af tveir á gjör­gæslu og annar í önd­un­ar­vél. Að minnsta kosti 265 manns yfir sex­tugu eru með sjúk­dóm­inn og 187 börn.

Fimmtán liggja inni á Landspítala með COVID-19.
Fimmtán liggja inni á Land­spít­ala með COVID-19. Mynd: Þorkell Þorkelsson

Í júlí greindust 1.311 ein­stak­lingar með kór­ónu­veiruna inn­an­lands. Sund­ur­liðun á því hvort smit­aðir eru bólu­settir hófst 9. júlí. Frá þeim degi og til loka júlí hafa rúm­lega 70 pró­sent smit­aðra verið full­bólu­settir. Alls greindust 326 óbólu­settir ein­stak­lingar með COVID-19 á þessu sama tíma­bili eða fjórð­ungur allra sem greindust. 41 smit var hjá fólki sem hafði fengið annan skammt bólu­efnis. Nær alla daga júlí­mán­aðar hefur meiri­hluti smit­aðra verið utan sótt­kvíar við grein­ingu. Þannig var það líka í í gær, 1. ágúst þegar að minnsta kosti 67 smit voru greind inn­an­lands og um rúm­lega helm­ingur utan sótt­kvíar.

Á COVID.is, þar sem töl­fræði far­ald­urs­ins er birt dag­lega, kemur fram að 1.244 séu í ein­angrun vegna sjúk­dóms­ins. Fimmtán liggja á Land­spít­al­anum, þar af tveir á gjör­gæslu og er annar þeirra í önd­un­ar­vél.

Fimm voru lagðir inn á sjúkra­húsið gær vegna COVID og tvær útskriftir voru síð­ast­lið­inn sól­ar­hring. Af þeim 1.232 sem eru í eft­ir­liti á COVID-göngu­deild, eru tveir á „rauðu“, þ.e. alvar­lega veikir og gætu þurft á sjúkra­húsinn­lögn að halda, 28 ein­stak­lingar flokk­ast „gulir“ og munu ein­hverjir þeirra koma til skoð­unar og frekara mats í dag, segir í til­kynn­ingu frá far­sótt­ar­nefnd.

COVID-19 leggst verst á þá sem eldri eru og aðra við­kvæma hópa, s.s. fólk með und­ir­liggj­andi sjúk­dóma. Nú eru 265 sex­tíu ára eða eldri með sjúk­dóm­inn. Rúm 95 pró­sent fólks á þeim aldri sem hér búa er full­bólu­sett. Um þús­und manns yfir sex­tugu eru það hins vegar ekki.

Þá fjölgar smitum áfram hjá börnum en 187 börn eru í ein­angrun með COVID-19, þar af ell­efu yngri en eins árs og átta­tíu á aldr­inum 6-12 ára. Skóla­setn­ingar nálg­ast óðfluga en flestir grunn­skólar lands­ins hefja starfið á síð­ustu dögum ágúst­mán­aðar. Kennarar og aðrir starfs­menn skóla sem fengu Jenssen-bólu­efnið hafa verið boð­aðir í end­ur­bólu­setn­ingu nú í vik­unni. Örv­un­ar­skammt­ur­inn sem þeir fá verður annað hvort bólu­efni Pfizer eða Moderna.

[adspot]

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár