Rafskútur geti skýrt aukinn fjölda alvarlegra slysa meðal barna í umferðinni

Algeng­asta orsök slysa meðal hjólandi barna er sú að bif­reið aki á þann sem er hjólandi, sam­kvæmt nýrri skýrslu um börn og sam­göngur. Hægt sé að stuðla að breyttum ferða­venjum allra með því að hlúa að ferða­mynstri barna og ung­menna.

Samkvæmt samantekt bráðamóttöku Landspítalans voru 45 prósent þeirra sem leituðu til bráðamóttöku sumarið 2020 eftir byltu á rafhljópahjóli yngri en 18 ára.
Samkvæmt sam­an­tekt bráða­mót­töku Land­spít­al­ans voru 45 pró­sent þeirra sem leit­uðu til bráða­mót­töku sum­arið 2020 eftir byltu á raf­hljópa­hjóli yngri en 18 ára. Mynd: EPA

Árið 2020 var það versta með til­liti til þess hversu mörg börn slös­uð­ust alvar­lega í umferð­inni en alvar­leg slys geta falið í sér bein­brot og álíka meiðsli og eru ekki endi­lega lífs­hættu­leg. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu frá sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráðu­neyt­inu sem ber heitið Börn og sam­göngur. Þar segir að aukn­ing­una megi „að lík­indum að megn­inu til skýra með til­komu raf­knú­inna hlaupa­hjóla (raf­skúta) og raf­magns­vespa.“

„Á ára­bil­inu 2011-2020 slös­uð­ust árlega á milli 80 og 130 börn undir 14 ára aldri. Þegar rýnt er í töl­urnar sést að fleiri börn á aldr­inum 7-14 ára slasast en þau sem yngri eru. Hlut­fallið hefur hald­ist nokkuð stöðugt und­an­farin ár,“ segir um fjölda slysa óháð alvar­leika. Þessi tala nær yfir þau slys sem rata inn í gagna­grunn Sam­göngu­stofu og því hægt að gera ráð fyrir að mörg minni óhöpp rati ekki þangað.

Að meðaltali 1,6 á bráðamóttöku á hverjum degi vegna rafskúta

Í kafla skýrsl­unnar sem snýr að slysa­töl­fræði barna og ung­menna er sér­stak­lega farið nið­ur­stöður sam­an­tektar bráða­mót­töku Land­spít­al­ans um töl­fræði yfir ein­stak­linga sem leit­uðu til þangað sum­arið 2020 vegna slysa á raf­hlaupa­hjóli.

„Nið­ur­stöður voru þær að á rann­sókn­ar­tíma­bil­inu leit­uðu 149 ein­stak­lingar aðstoðar vegna slíkra slysa, að með­al­tali 1,6 á dag. Ald­urs­bilið var frá 8 árum upp í 77 ár; 45% voru yngri en 18 ára og 58% voru karl­kyns. Í 60% til­vika reynd­ist orsök slyss vera að farið hafi verið of hratt, við­kom­andi misst jafn­vægi eða ójafna í götu. Reyndust 79% barna hafa notað hjálm en ein­ungis 17% full­orð­inna.“

Af þeim sem voru eldri en 18 ára og leit­uðu til bráða­mót­töku vegna slyss á raf­hlaupa­hjóli reynd­ust 40 pró­sent hafa verið undir áhrifum áfengis þegar slysið átti sér stað. Engin börn voru undir áfengis eða vímu­efna. Alls voru 38 pró­sent með bein­brot og sex pró­sent þurftu inn­lögn á sjúkra­húsið til eft­ir­lits eða með­ferðar. Enginn var alvar­lega slas­aður sam­kvæmt AIS flokkun.

Algeng­asta orsök hjólaslysa meðal barna er engu að síður sú að bif­reið aki á hjól­reiða­mann. Um fjórð­ungur slysa meðal hjólandi barna er vegna falls af hjóli. „Þetta hlut­fall er svipað og verið hefur að jafn­aði síð­ast­liðin 10 ár.“

Horfa þurfi til þarfa barna við stefnumótun

„Ljóst má vera að staða barna og ung­menna í sam­göngum er sér­stök og full ástæða til þess að stefnu­mótun í mála­flokknum taki sér­stak­lega á henni,“ segir í nið­ur­stöðukafla skýrsl­unnar. Ferða­venjur barna og ung­menna séu fjöl­breytt­ari en þeirra sem eldri eru, þrátt fyrir að þau ferð­ist „jafn­vel ívið fleiri ferðir á degi hverjum að jafn­aði.“

Þá nota börn og ung­menni virka ferða­máta og almenn­ings­sam­göngur mun meira en aðrir en ferð­ast síður með inn­an­lands­flugi en hinir eldri. „Bestu sókn­ar­færi til þess að stuðla að breyttum ferða­venjum allra fel­ast í því að hlúa betur að þessu ferða­mynstri barna og ung­menna, enda eru þau ekki með sama fast­mót­aða ferða­venju­mynstur og þeir sem eldri eru.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár