Tíu athyglisverðir hlutir á fjáraukalögum

Það kostar skildinginn að skipta um forseta.
Það kostar skild­ing­inn að skipta um for­seta. Mynd: Birgir Þór Harðarson

1. Utan­rík­is­ráðu­neytið fær tíu millj­ónir króna á næstu tveimur árum úr rík­is­sjóði svo hægt sé að greiða fyrir starfs­mann sem mun þjón­usta og sinna ýmsum verk­efnum fyrir Ólaf Ragnar Grímsson, fyrr­ver­andi for­seta Íslands. Þetta kemur fram í frum­varpi til fjár­auka­laga vegna fjár­laga­árs­ins 2016.

2. Þar kemur einnig fram að rann­sókn á þátt­töku þýska bank­ans Hauck & Auf­häuser Pri­vat­banki­ers KGaA í kaupum á 45,8% eign­ar­hlut rík­is­ins í Bún­að­ar­banka Íslands hf. o.fl. árið 2003, sem nú stendur yfir, sé áætl­aður 30 millj­ónir króna. Rann­sókn­inni á að ljúka fyrir kom­andi ára­mót.

3. Sótt er um 74 millj­óna króna hækkun á fram­lagi til rík­is­stjórnar Íslands. Um er að ræða við­bót­ar­út­gjöld vegna bið­launa frá­far­andi ráð­herra og aðstoð­ar­manna eftir alþing­is­kosn­ing­arnar sem fyr­ir­hug­aðar eru í lok októ­ber. Þegar fjár­lög voru sam­þykkt í fyrra var ekki reiknað með að kosið yrði fyrr en í aprí 2017.

4. Húsa­meist­ari rík­is­ins fær 15 millj­ónir króna í við­bót­ar­fram­lag til að mæta kostn­aði sem fellur meðal ann­ars til vegna for­seta­skipta, en Guðni Th. Jóhann­es­son tók við emb­ætt­inu fyrr á þessu ári. Í fjár­auka­lögum segir að um sé að ræða „kostnað vegna flutn­inga og örygg­is­mála ásamt inn­rétt­ingum og end­ur­bótum á inn­an­stokks­munum á Bessa­stöðum, þ.m.t. í Bessa­staða­stofu, bók­hlöðu og mót­töku­sal.“

5. Heild­ar­breyt­ingar á fjár­heim­ildum sem beðið er um með fjár­auka­lögum eru 88 millj­arðar króna. Langstærsti hluti þeirrar upp­hæðar, 83,5 millj­arða króna, vegna ein­skipt­is­upp­gjörs vegna A-deildar Líf­eyr­is­sjóðs starfs­manna rík­is­ins (LSR). Sá kostn­aður fellur til vegna sam­komu­lags um breyt­ingar á opin­bera líf­eyr­is­sjóða­kerf­inu þannig að það verði eins og það almenna að mestu. Sam­komu­lagið var kynnt í upp­hafi viku.

6. Þá er sótt um tíu millj­óna króna fram­lag í tengslum við og í fram­haldi af emb­ætt­is­töku nýs for­seta. Sá kostn­aður er vegna þess að talið er nauð­syn­legt að ráða starfs­mann til að sinna almennum verk­efnum á Bessa­stöðum og vegna þess að brott­hvarf fyrri for­seta úr emb­ætti og emb­ætt­is­taka nýs hafði í för með sér „marg­vís­leg útgjöld“. Þá hefur heima­síða for­seta­emb­ætt­is­ins verið óbreytt í sextán ár og stefnt er að því að efna til útboðs um nýja slíka fari fram í haust. Áætlaður kostn­aður er fimm millj­ónir króna og vef­ur­inn á að opna fyrir lok þessa árs.

7. 800 millj­ónir króna munu fara í fram­lög vegna mik­illar fjölg­unar flótta­manna umfram for­sendur fjár­laga árs­ins 2016.

8. 216 millj­ónir króna fara í að bæta öryggi ferða­manna.

9. Upptaka á nýjum S-merktum lyfjum mun kosta rík­is­sjóð 427 millj­ónir króna umfram það sem áætlað var á fjár­lögum þessa árs.

10. Og síð­ast, en ekki síst, þá munu bið­laun og annar þing­fara­kostn­aður vegna frá­far­andi þing­manna sem reiknað er með að muni falla til eftir kosn­ing­arnar í októ­ber kosta um 121 millj­ónir króna. Áætlun um útgjöld vegna kosn­ing­anna mið­ast við hlið­stæðan kostnað eftir kosn­ing­arnar árið 2013 en að teknu til­liti til þess að nú gefa fleiri þing­menn ekki kost á sér til end­ur­kjörs. Um er að ræða áætl­aðan heild­ar­kostnað við þessa útgjalda­þætti en reiknað er með að rúm­lega helm­ingur bið­laun­anna muni þó ekki koma til útborg­unar fyrr en á árinu 2017. Er því gert ráð fyrir að afgangur á þess­ari fjár­heim­ild í árs­lok verði fluttur yfir til árs­ins 2017. Til við­bótar þá er farið fram á 47 millj­ónir króna vegna ýmissa útgjalda sem reiknað er með að muni falla til eftir alþing­is­kosn­ing­arnar. Um er að ræða kaup á tækjum og bún­aði fyrir nýja alþing­is­menn, stand­setn­ingu á hús­næði, flutn­ings­kostnað og útgáfu á kynn­ing­ar­efni fyrir nýja þing­menn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár