500 fleiri komur á bráðadeild Landspítala

Komum á bráða­mót­töku Land­spít­al­ans í jan­úar og febr­úar á þessu ári fjölg­aði um rúm­lega 500 eða 4,6 pró­sent frá síð­asta ári. Spít­al­inn í vanda vegna skorts á hjúkr­un­ar­fræð­ingum.

Komum á bráða­mót­töku Land­spít­al­ans í jan­úar og febr­úar á þessu ári fjölg­aði um rúm­lega 500 eða 4,6 pró­sent frá síð­asta ári. Alvarleg staða Land­spít­al­ans og bráða­mót­tök­unnar var rædd á rík­is­stjórn­ar­fundi í síð­ustu viku.

Álagið var svo mikið um miðjan febr­úar að upp­lýsa þurfti heil­brigð­is­ráð­herra um alvar­lega stöðu bráða­mót­tök­unnar sem síðan upp­lýsti Embætti land­læknis. Þannig voru aðfar­ar­mótt 13. febr­úar 63 sjúk­lingar á bráða­mót­tök­unni, en rúm­stæði þar eru fyrir 32 sjúk­linga. Bið eftir lækn­is­skoðun var þá allt að sex klukku­stundir. Í minn­is­blaði sem ráð­herra lagði fyrir rík­is­stjórn­ina segir að það sé mat starfs­fólks bráða­mót­töku að við slíkar aðstæður sé ekki mögu­legt að ábyrgj­ast öryggi allra þeirra sjúk­linga sem þangað leita og aukin hætta verði á alvar­legum atvikum. „Bið eftir við­eig­andi leg­u­rými hefur aldrei verið lengri heldur en þennan dag og hafa sjúk­lingar þurft að bíða í allt að fimm sól­ar­hringa á bráða­mót­töku eftir við­eig­andi leg­u­rými á almennri deild. Vegna skorts á hjúkr­un­ar­fræð­ingum voru um 35 rými lokuð á spít­al­anum. Einnig hefur nýlega þurft að loka tveimur gjör­gæslu­rýmum af sömu ástæðum.“

Hærra hlut­fall þeirra sem leita á bráða­mót­töku þurfa að leggj­ast inn, það er 11,3 pró­sent nú miðað við 10,7 pró­sent á sama tíma á síð­asta ári. Þeir sem þurftu að leggj­ast inn á legu­deild dvöldu að jafn­aði 16 til 17 klukku­stundir á bráða­deild eftir að inn­lögn hafði verið ákveðin en þessi bið var 13 til 14 klukku­stundir í fyrra. Ástæða tafa á inn­lögn á almenna deild er skortur á rýmum.

Á fundi ráðu­neyt­is­ins með Land­spít­ala í febr­úar var farið yfir stöð­una og mögu­leg við­brögð og aðgerðir til að bregð­ast við vand­anum. Það er mat spít­al­ans að vand­ann megi helst rekja til tveggja þátta, skorts á hjúkr­un­ar­fræð­ingum og skorts á úrræðum fyrir sjúk­linga með gilt færni- og heilsu­mat sem geta ekki útskrif­ast af spít­al­anum eftir með­ferð. Erf­ið­lega hefur gengið að ráða hjúkr­un­ar­fræð­inga til starfa og því hefur þeim fækkað á stofn­un­inni. Helstu ástæð­urnar fyrir því að ekki tekst að manna nægi­lega stöður hjúkr­un­ar­fræð­inga eru taldar vera launa­kjör og vinnu­á­lag.

Á síð­asta ári var gripið til aðgerða til að auð­velda útskrift fólks sem lokið hefur með­ferð, m.a. með opnun bið­deildar á Akranesi og auknum fjár­fram­lögum til heima­hjúkr­unar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Þessi úrræði hafa ekki dugað til að tryggja útskriftir sjúk­linga sem lokið hafa með­ferð en ný hjúkr­un­ar­rými á höf­uð­borg­ar­svæð­inu munu opna í lok árs 2018 og á árinu 2019. Gerir ráðu­neytið ráð fyrir að ætla megi að dragi þá úr útskrift­ar­vanda spít­al­ans.

Það er mat spít­al­ans að einnig sé nauð­syn­legt að huga að því hvort hluti þeirra sjúk­linga sem leita á bráð­mót­töku geti fengið vanda sinn leystan ann­ars staðar, þannig að inn­flæði sjúk­linga á spít­al­ann verði minna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár