Til Grænlands á gamalli eikarskútu

Ittoqqortoormiit á austur­strönd Grænlands er eitt afskekktasta þorp í heimi. Þangað liggja engir vegir og til að komast í þorpið þarf að fljúga með þyrlu eða fara á snjó- eða hunda­sleðum frá flug­vellinum sem er í 60 kílómetra fjarlægð. Yfir hásumarið er hægt að sigla þangað en Ittoqqortoormiit er við mynni Scoresbysunds sem er stærsta fjarða­kerfi í heiminum.

Áhöfnin á Hildi
Áhöfnin á Hildi Fremri röð: Lucia leið­sögu­maður, Jóhannes háseti. Aftari röð: Filip skip­stjóri, Benedikt stýri­maður og Jónas kokkur. Mynd: Jóhannes Kr. Kristjánsson

Áður en við höldum lengra skulum við fara aðeins í gegnum það hvernig á að bera fram nafn þorpsins Ittoqqortoormiit sem þýðir á austur-grænlenskri mállýsku „staðurinn með stóru húsunum“ –IIttok-kor-tor-mit. Þið getið æft ykkur að segja þetta nokkrum sinnum og þá eruð þið búin að ná þessu nafni sem margir eiga erfitt með í byrjun og ég var einn af þeim og nýtti mér styttinguna Itto sem er svona svipað og ef útlendingar hefðu notað Æja sem styttingu fyrir Eyja­fjalla­jökulsgosið. 

Frá því í æsku hefur mig langað til Grænlands. Ég var 9 eða 10 ára þegar pabba langaði að taka mig með í hópferð á vegum Oddfellow til Grænlands. Mamma vildi ekki að ég færi – sagði að ég mætti ekki missa úr skóla. Ég sat því eftir heima með sárt ennið. Pabbi tók mikið af ljós­myndum í ferðinni, sagði mér ferða­söguna og færði mér grjót frá Grænlandi sem …

Kjósa
34
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár