Íslendingar áttu 32 milljarða á Tortóla...en eiga núna ekkert

Erlend fjár­muna­eign Íslend­inga dróst saman um þriðj­ung á síð­asta ári. Sú þróun er að hluta til vegna styrk­ingu krón­unnar, en alls ekki að öllu leiti. Svo virð­ist sem að eignir Íslend­inga á Bresku Jóm­frú­areyj­unum hafi allar verið færðar annað.

Íslend­ingar áttu 32,2 millj­arða króna í beinni fjár­muna­eign á hinu þekkta lág­skatta­svæði Bresku Jóm­frú­areyj­unum í lok árs 2015. Um síð­ustu ára­mót var eign þeirra þar krónur núll. Þetta kemur fram í nýjum tölum Seðla­banka Íslands um beina fjár­muna­eign Íslend­inga erlendis.

Í töl­unum kemur fram að eignir Íslend­inga utan heima­lands­ins hafi dreg­ist mikið saman á árinu 2016. Þar leikur mikil styrk­ing krón­unnar gagn­vart helstu gjald­miðlum ákveðið hlut­verki en króna styrkt­ist um 12 pró­sent gagn­vart Banda­ríkja­dal, um 16 pró­sent gagn­vart evru og heil 27 pró­sent gagn­vart breska pund­inu á árinu 2016. Geng­is­styrk­ingin útskýrir þó ekki sam­drátt á beinni fjár­muna­eign Íslend­inga erlendis að næstum því öllu leyti því hún dróst saman um þriðj­ung í fyrra og fór úr 990 millj­örðum króna í 664 millj­arða króna. Það bendir til þess að Íslend­ingar hafi verið að flytja fé heim á árinu 2016 sam­hliða því að fjár­magns­höft sem höfðu verið í gildi frá árinu 2008 voru losuð umtals­vert.

Íslend­ingar hafa ekki átt jafn lítið af fjár­muna­eignum, í krónum talið, í útlöndum frá árinu 2005. Fjár­muna­eign Íslend­inga erlendis hefur raunar verið að drag­ast saman á und­an­förnum árum í krónum talið. Þar hefur áhrif að fallandi gengi krónu eftir banka­hrunið 2008 hafði mikið áhrif á eign­ina til hækk­unar. Mestar voru þær tæp­lega 1.600 millj­arðar króna í lok árs 2012 þegar krónan var enn afar veik. Umfang beinnar fjár­muna­eignar Íslend­inga erlendis hafði þá 6,5 fald­ast í krónum talið frá árinu 2004, þegar þjóðin átti um 245 millj­arða króna af beinum eignum í öðrum löndum.

14 prósent eigna „óflokkaðar“

Skrán­ingu á erlendri fjár­muna­eign Íslend­inga var breytt fyr­ir­ nokkrum árum síð­an. Nú eru gefnar upp­lýs­ingar um eign í færri löndum en áður en ­flokk­ur­inn „óflokk­að“ hefur stækk­að. Áður var hægt að sjá til að mynda hver bein fjár­muna­eign Íslend­inga er á Cayman-eyjum, Mön, Jersey, Guernsey og Má­ri­tí­us. Það er ekki hægt leng­ur. Alls áttu Íslend­ing­ar „óflokk­að­ar“ eignir upp á 91,8 millj­arða króna um síð­ustu ára­mót. Það þýðir að um 14 pró­sent af öllum eignum Íslend­inga erlendis voru „óflokk­aðar“.

Sem fyrr er mest af íslenskum eignum vistaðar í Hollandi, eða 282, 8 millj­arðar króna. 105 millj­arðar króna voru í Bret­landi en eignir Íslend­inga þar helm­ing­uð­ust á milli ára í krónum talið. Þar skiptir ugg­laust mestu máli að krónan hefur styrkst mikið á sama tíma og breska pundið hefur veikst. Þá eru 62 millj­arðar króna vistaðir á Kýpur og 32,7 millj­arðar króna í Lúx­em­borg.

Íslendingar stórtækir í aflandsfélagaeign

Erlend fjár­muna­eign Íslend­inga var mjög í kast­ljósi heims­ins í fyrra í kjöl­far frétta úr gagna­leka frá panömsku lög­fræði­stof­unni Mossack Fonseca sem gerður var opin­ber í apríl 2016. Í þeim kom fram að um 600 Íslend­ingar teng­ist um 800 aflands­fé­lögum sem koma fram í skjöl­unum. Fyrir liggur að mestu er um að ræða við­skipta­vini Lands­banka Íslands sem stund­uðu aflands­við­skipti. Ekki liggur fyrir hvaða milli­göngu­liði Kaupþing og Glitnir not­uðu, en sam­kvæmt við­mæl­endum Kjarnans sem þekktu vel til í starf­semi íslensku bank­anna fyrir hrun er ljóst að fjöldi aflands­fé­laga sem stofnuð voru fyrir íslenska við­skipta­vini eru mörg þús­und tals­ins.

Á meðal þeirra Íslend­inga sem koma fram í gögn­un­um, og eru með tengsl við aflands­fé­lög, eru Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, Bjarni Bene­dikts­son, núver­andi for­sæt­is­ráð­herra , Ólöf Nordal heitin og nokkrir stjórn­mála­menn af sveit­ar­stjórn­ar­stig­inu.

Í Panama­skjöl­unum var einnig að finna stjórn­endur úr líf­eyr­is­sjóða­kerf­inu og fjöl­marga ein­stak­linga sem hafa verið áber­andi í íslensku við­skipta­lífi á und­an­förnum árum. Þar á meðal voru Jón Ásgeir Jóhann­es­son, Ingi­björg Pálma­dótt­ir, Lýður og Ágúst Guð­munds­syn­ir, Finnur Ing­ólfs­son, Sig­urður Bolla­son, Hannes Smára­son, Björgólfur Thor Björg­ólfs­son ofl. Hluti þessa hóps er skráður með lög­heim­ili erlend­is.

Eignir útlendinga á Íslandi vaxa

Bein fjár­muna­eign erlendra aðila á Íslandi vex milli ára og er nú 1.099 millj­arðar króna. Hún hefur ekki verið hærri síðan árið 2012, þegar íslenska krónan var mjög veik.

Eign­ar­haldið á þeim eignum er nær ein­vörð­ungu í gegnum Lúx­em­borg þar sem 920 millj­arðar króna eru skráðir. Um 113 millj­arðar króna eignir hér­lendis eru skráðir í eigu hol­lenskra aðila og 85 millj­arðar eru skráðir í eigu sviss­neskra aðila. Öll þessi þrjú lönd hafa verið mikið nýtt af íslenskum fjár­festum vegna skatta­hag­ræðis og banka­leyndar og því er hægt að slá því föstu að hluti þess­ara eigna séu raun­veru­lega í eigu í eigu íslenskra fjár­festa, ekki erlendra.

móti er eign banda­rískra fjár­festa hér­lendis nei­kvæð um 316 millj­arða króna. Þar er um að ræða skuld íslenskra dótt­ur­fé­laga við banda­rísk móð­ur­fé­lög.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár