Vextir ættu að lækka en hafa ekki gert það ennþá

Sé mið tekið af ávöxt­un­ar­kröfu á skulda­bréfa­mark­aði, þá má búast við tölu­verðum vaxta­lækk­unum á óverð­tryggðum og verð­tryggðum hús­næð­is­lánum á næst­unni, það er þeim sem eru með breyti­lega vexti. Í kjöl­far lækk­unar á meg­in­vöxtum Seðla­banka Íslands, úr 5,75 pró­sent í 5,25 pró­sent, og síðan hækkun á láns­hæf­is­ein­kunn, þá hefur vaxta­á­lag lækkað á mark­aði.

Mikil vaxtalækkun og lægri greiðslubyrði

Sé mið tekið af algengu við­miði líf­eyr­is­sjóða, þegar kemur að hús­næð­is­lánum með breyti­lega vexti á óverð­tryggðum lánum, þá gætu vextir farið niður í 5,75 pró­sent en þeir eru nú 6,75 pró­sent, sé miðað við stöðu mála og við­mið hjá Líf­eyr­is­sjóði verzlunarmanna.

Sama má segja um breyti­lega vexti verð­tryggðra lána, en þeir gætu lækkað niður fyrir þrjú pró­sent, ef miðað er við stöðu mála á skulda­bréfa­mark­aði nú. Breyti­legir vextir á verð­tryggðum lánum eru víð­ast hvar svip­aðir, á bil­inu 3,65 til 3,9 pró­sent. Sé miðað við Líf­eyr­is­sóð verzlunarmanna, þá eru breyti­legir vextir nú 3,86 pró­sent, sam­kvæmt vef sjóðs­ins, en eins og áður segir þá gætu vext­irnir lækkað tölu­vert á næst­unni.

Þetta skiptir almenn­ing miklu máli, en þýða betri vaxta­kjör lægri greiðslu­byrði á lánum, sem þýðir að meira verður eftir í vasa lands­manna um hver mán­að­ar­mót.

Góðar verðbólguhorfur

Verð­bólgu­horfur eru góðar í augna­blik­inu, en verð­bólga mælist nú 0,9 pró­sent. Í meira en tvö ár hefur verð­bólga verið undir 2,5 pró­sent og hefur kaup­máttur launa auk­ist veru­lega, einkum á und­an­förnu ári. Samtals nemur aukn­ingin yfir 11 pró­sentum, sem er með hröð­ustu aukn­ingu kaup­máttar frá því mæl­ingar hófust.

Hvað gera bankarnir?

Bank­arnir, sem eru með lang­sam­lega mestu mark­aðs­hlut­deild á íbúða­lána­mark­aði, hafa ekki ennþá lækkað vexti á íbúða­lánum. Lands­bank­inn og Íslands­banki eru í eigu rík­is­ins, og eru með sam­bæri­lega vexti á hús­næð­is­lánum, og það sama má segja um Arion banka. Vextir bank­anna eru þó umtals­vert hærri en líf­eyr­is­sjóð­irnir bjóða.

Lands­bank­inn býður 3,65 pró­sent breyti­lega vexti á verð­tryggðum lánum, en 6,75 pró­sent á breyti­legum óverð­tryggðum lánum.

Íslands­banki býður 6,75 pró­sent breyti­lega vexti á óverð­tryggðum lánum, en bestu vextir á verð­tryggðum lánum eru 3,85 pró­sent. Arion banki býður svo lægst 7,05 pró­sent vexti á óverð­tryggðum lánum, og 3,65 pró­sent á verð­tryggðum lánum.

Líf­eyr­is­sjóð­irnir hafa að und­an­förnu aukið mark­aðs­hlut­deild sína á íbúða­lána­mark­aði, enda virð­ast nýir lán­takar horfa meira til þeirra vegna hag­stæðra vaxta­kjara.

Líf­eyr­is­sjóð­irn­ir lán­uðu rúm­lega 38 millj­arða króna til íslenskra heim­ila á fyrri helm­ing­i árs­ins, sam­kvæmt tölum frá Seðla­banka Íslands­ sem birt­ust í fyrri hluta ágúst­mán­aðar. Líf­eyr­is­sjóð­irnir hafa aukið hlut­deild sína á íbúða­lána­mark­að­i veru­lega und­an­farin miss­eri, eftir að nokkrir stórir líf­eyr­is­sjóðir hófu að bjóða allt að 75% íbúða­lán og óverð­tryggð lán.

Til sam­an­burðar námu lán líf­eyr­is­sjóð­anna til heim­ila rétt tæp­lega fimm millj­örðum króna á sama tíma­bili í fyrra, áður en líf­eyr­is­sjóð­irnir hófu í raun þessa inn­reið sína á íbúða­lána­mark­að­inn. Á seinni helm­ingi árs­ins 2015 voru veitt lán fyrir 16,7 millj­arða króna, og útlánin hafa hækkað jafnt og þétt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár