Vilja auka aðhaldshlutverk loftslagsráðs

Tíu þing­menn leggja til að aðhald með aðgerða­á­ætlun stjórn­valda í lofts­lags­málum verði aukið. Lagt er til að aðgerða­á­ætl­unin verði end­ur­skoðuð á tveggja ára fresti í stað fjög­urra og að aðhalds­hlut­verk loft­lags­ráðs verði aukið.

Andrés Ingi Jónsson, þingmaður utan þingflokka, er fyrsti flutningsmaður frumvarpsins.
Andrés Ingi Jónsson, þing­maður utan þing­flokka, er fyrsti flutn­ings­maður frum­varps­ins. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Tíu þing­menn úr fjórum flokkum Sam­fylk­ing­unni, Pírötum, VG og Viðreisn, auk Andrésar Inga Jónssyni þing­manni utan þing­flokka, hafa lagt fram frum­varp þess efnis að auka aðhalds­hlut­verk lofts­lags­ráðs.

Þing­menn­irnir leggja til að að ráðið leggi reglu­lega fram álits­gerð um hvort aðgerða­á­ætlun stjórn­valda í lofts­lags­málum upp­fylli yfir­lýst mark­mið stjórn­valda og alþjóð­legar skuld­bind­ingar. Slík álits­gerð yrði síðan birt opin­ber­lega sem sjálf­stæð og hlut­læg rýni á fyr­ir­hug­aðar aðgerðir stjórn­valda.

Rýna í áætlanir stjórnvalda á undirbúningsstigi

Vorið 2018 komu stjórn­völd á fót svoköll­uðu lofts­lags­ráði sem veita á stjórn­völdum aðhald og ráð­gjöf um stefnu­mark­andi ákvarð­anir sem tengj­ast lofts­lags­málum. Lofts­lags­ráð er sjálf­stætt í sínum störfum og í ráð­inu eiga sæti full­trúar atvinnu­lífs­ins, háskóla­sam­fé­lags­ins, sveit­ar­fé­laga og umhverf­is­vernd­ar­sam­taka auk ann­arra full­trúa. Halldór Þor­geirs­son er for­maður ráðs­ins.

Verkefni ráðs­ins eru meðal ann­ars að veita ráð­gjöf um sam­drátt í losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda og aðgerðir til að auka kolefn­is­bind­ingu, hafa yfir­sýn yfir miðlun fræðslu og upp­lýs­inga um lofts­lags­mál til almenn­ings, fyr­ir­tækja og stofn­ana.

Auk þess skal ráðið rýna á und­ir­bún­ings­stigi áætl­anir stjórn­valda sem snerta lofts­lags­mála sem og til­lögur sem ber­ast frá fag­stofn­unum um vöktun og rann­sóknir sem tengj­ast lofts­lags­breyt­ingum.

Vilja að aðgerðaáætlun í loftslagsmálum sé endurskoðuð á tveggja ára fresti

Með frum­varpi þing­manna er lagt til að auka aðhald ráðs­ins enn frekar. Í grein­ar­gerð frum­varps­ins segir að þegar kemur að beinni aðkomu að stærri áætl­unum stjórn­valda sé ekki skýrt hvernig eft­ir­lit ráðs­ins skuli fara fram. Því leggja þing­menn­irnir til að ráð­inu sé skylt að rýna aðgerða­á­ætlun stjórn­valda í lofts­lags­málum þegar hún hefur verið lögð fram innan fjög­urra vikna frá fram­lagn­ingu hennar.

Slíkt verk­lag yrði að mörgu leyti hlið­stætt því hlut­verki sem fjár­mála­ráði er falið en það ráð skal meta hvort fjár­mála­stefna og fjár­mála­á­ætlun fylgi þeim grunn­gildum og skil­yrðum sem talin eru í lögum um opin­ber fjár­mál, en nýtur að öðru leyti sjálf­stæðis í því hvernig staðið skuli að því mati.

„Með opin­berri birt­ingu á álits­gerð fjár­mála­ráðs er stuðlað að almennri og hlut­lægri umræðu um stefnu stjórn­valda um opin­ber fjár­mál. Flutn­ings­menn telja að sjálf­stæð og hlut­læg rýni á fyr­ir­hug­uðum aðgerðum stjórn­valda í lofts­lags­málum sé mik­il­vægt grund­vall­ar­at­riði í stefnu­mörkun hins opin­bera og opin­berri umræðu þar um,“ segir í grein­ar­gerð­inni.

Jafn­framt leggja þing­menn­irnir til að aðgerða­á­ætlun stjórn­valda í lofts­lags­málum skuli end­ur­skoðuð eigi sjaldnar en á tveggja ára fresti í stað fjög­urra til að „end­ur­spegla þá brýnu þörf sem er á stig­vax­andi efl­ingu aðgerða gegn lofts­lags­breyt­ingum“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár