Aðili

Tómas Guðbjartsson

Greinar

FréttirPlastbarkamálið

Paolo Macchiarini ekki ákærður í plast­barka­mál­inu

Ítalski skurð­lækn­ir­inn Paolo Macchiarini verður ekki ákærður fyrir mann­dráp af gáleysi vegna plast­barka­að­gerð­anna á þremur ein­stak­lingum sem hann gerði í Svíþjóð á árunum 2011 til 2013. Fyrsti plast­barka­þeg­inn, Andemariam Beyene, var sjúk­lingur á Land­spít­al­anum og sendi sjúkra­húsið hann á Karol­inska-sjúkra­húsið í Stokk­hólmi þar sem hann gekkst undir aðgerð­ina. Rannsókn stendur nú yfir á plast­barka­mál­inu á Íslandi.
FréttirPlastbarkamálið

Macchiarini yfir­heyrður og neitar sök: Land­spít­al­inn sendi gögn

Ítalski skurð­lækn­ir­inn Paulo Macchiarini neitar ásök­unum um mann­dráp af gáleysi í plast­barka­að­gerð­unum. Andemariam Beyene var sendur til Karol­inska-sjúkra­húss­ins af íslenska lækn­inum Tómasi Guð­bjarts­syni í maí 2011 þar sem ákveðið var að græða í hann plast­barka. Enginn starfs­maður Land­spít­ala hefur verið tek­inn í skýrslu hjá ákæru­vald­inu. Tómas var svo með­höf­undur um að vís­inda­grein um aðgerð­ina á Andemariam þar talað var um að hún hefði heppn­ast vel.
FréttirPlastbarkamálið

Sjúkra­trygg­ingar neit­uðu að borga fyrir til­rauna­með­ferð­ina en ekki Karol­inska

Karol­inska-sjúkra­húsið afhendir samn­ing­inn sem Sjúkra­trygg­ingar Íslands gerðu við spít­al­ann um fyrstu plast­barka­að­gerð­ina. Kostn­aður Sjúkra­trygg­inga vegna fyrstu plast­barka­að­gerð­ar­innar á Andemariam Beyene gat mest orðið rúmar 22 millj­ónir króna. Tómas Guð­bjarts­son skurð­læknir bar ábyrgð á eft­ir­með­ferð Andemari­ams sam­kvæmt samn­ingnum.
FréttirPlastbarkamálið

Afhjúp­andi tölvu­póstar í plast­barka­mál­inu: „Ég held að það styðji upp­haf­legt mat okkar“

Tölvu­póstar í Macchiarini-mál­inu, sem aldrei áður hafa verið birtir opin­ber­lega, sýna hvernig reglur voru brotnar í mál­inu. Paulo Macchiarini og yfir­læknir á Karol­inska-sjúkra­hús­inu, Richard Kuy­len­sti­erna, tóku ákvörðun um að gera plast­barka­að­gerð­ina á Andemariam Beyene í sam­ein­ingu og reyndu svo að fá sænsku vís­inda­siða­nefnd­ina og sænska eft­ir­lit­lits­stofnun til að stað­festa aðgerð­ina. Sam­þykkið var aldrei veitt en Kuy­len­sti­erna gaf sér að svo hefði verið.
FréttirPlastbarkamálið

Sænska rann­sókn­ar­nefndin rann­sakar plast­barka­málið á Íslandi í næsta mán­uði

Sænsk rann­sókn­ar­nefnd kemur til Íslands í næsta mán­uði. Kjell Asplund sem leiðir rann­sókn­ina á plast­barka­mál­inu segir að rætt verði við þá aðila sem komu að með­ferð Andemari­ams Beyene. Rann­sóknir sænskra aðila á plast­barka­mál­inu teygja sig til Íslands með beinum hætti en plast­bark­að­gerðir Paulo Macchiarinis geta leitt af sér ákærur í Svíþjóð, meðal ann­ars fyrir mann­dráp.
FréttirPlastbarkamálið

Birgir segir að hann hefði átt að kæra Macchiarini

Birgir Jak­obs­son, land­læknir og fyrr­ver­andi for­stjóri Karol­inska-sjúkra­húss­ins í Stokk­hólmi, skrif­aði undir ráðn­ingu Paulo Macchiarinis til Karol­inska-sjúkra­húss­ins árið 2010. Hann neit­aði hins vegar að end­ur­ráða Macchiarini þar sem plast­barka­að­gerðir hans höfðu ekki virkað vel og hann sinnti ekki sjúk­lingum sínum. Hann segir stærsta lær­dóm­inn í mál­inu að háskólar megi ekki ákveða klínískar með­ferðir á sjúk­lingum.

9 mín. lestur

FréttirPlastbarkamálið

Lækna­deild HÍ ákveður að óþarfi sé að rann­saka plast­barka­málið

Fundaði um málið í síð­ustu viku þar sem skiptar skoð­anir komu fram. Sumir af kenn­urum lækna­deildar vildu rann­saka plast­barka­málið. Deild­ar­for­seti lækna­deildar, Magnús Karl Magn­ús­son flutti erindi um stofn­frumur á mál­þingi um aðgerð­ina og studdi hann það mat að rann­sókn væri óþarf. Háskóli Íslands, tveir íslenskir læknar og Land­spít­al­inn tengj­ast mál­inu sem sætir mörgum rann­sóknum í Svíþjóð.
FréttirPlastbarkamálið

Aðgerðin á Andemariam ákveðin áður en hann var sendur til Stokk­hólms

Tölvu­póstur frá Richard Kuy­len­sti­erna, lækni á Karol­inska-sjúkra­hús­inu, til Paulo Macchiarinis sýnir að byrjað var að skipu­leggja að græða plast­barka í Andemariam Beyene áður en hann var sendur til Sví­þjóðar frá Íslandi. Flugmiði Andemari­ams sýnir hins vegar að hann vissi ekk­ert um það þar sem hann ætl­aði bara að vera í Svíþjóð í fjóra daga. Macchiarini-málið er orðið að alþjóð­legu hneyksl­is­máli sem teng­ist Íslandi náið í gegnum Andemariam og lækni hans Tómas Guð­bjarts­son.

14 mín. lestur

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu