Flokkur

Erlent

Erlent

General Motors innkallar 1,4 milljónir bíla - Geta orðið alelda

Bandaríski bíla­fram­leiðandinn General Motors hefur innkallað 1,4 milljónir bíla vegna galla í vélbúnaði. Gallinn er talinn alvarlegur, en hann tengist olíu­búnaði í bílunum. Leki getur komið upp, sem getur gert bílana alelda á skömmum tíma. Fyrir­tækið hefur áður þurft að innkalla bíla vegna þessa galla, og nær innköllunin nú til bíla sem komu á götuna á árunum 1997 til 2004....
Erlent

Rússnesk glæpa­gengi talin falsa merkingar á innfluttum laxi - Merkja hann sem íslenskan

Yfirmenn í rússnesku toll­gæslunni funduðu með kollegum sínum hjá Evrópu­sambandinu í Brussel í gær. Fundurinn vakti töluverða athygli, enda samskipti Rússlands og Evrópu­sambandsins ekki upp á sitt besta sökum viðskipta­þvinganna sem sambandið hefur beitt Rússa vegna ástandsins í Úkraínu frá því snemma árs 2014. Í frétt Reuters um fundinn kemur hins vegar fram að ástæða hans hafi verið sú að...
Erlent

Unnar kjötvörur sagðar krabbameins­valdandi

Unnar kjötvörur, líkt og beikon og pylsur, eru krabbameins­valdandi, samkvæmt nýrri úttekt Alþjóð­legu krabbameins­rannsóknar­stofnunarinnar, undir­stofnunar Alþjóða heilbrigðis­mála­stofnunarinnar (WHO). The Guardian greindi frá þessu í dag, en skýrslan hefur verið birt á vef stofn­un­ar­innar. Þessa vörur verða framvegis flokkaðar með öðrum vörum sem teljast auka líkur á krabba­meini, þar á meðal tóbaki. Í skýrslunni kemur þó fram skýr fyrirvari um að...
Erlent

Ákvörðun um lækkun vaxta í Kína stað­festir áhyggjur yfirvalda af gangi mála

Ákvörðun Seðla­banka Kína, um að lækka stýri­vexti um 0,25 prósentu­stig niður í 4,35 prósent, hefur verið vel tekið á mörkuðum, ekki síst í Banda­ríkjunum, en þar hefur Nasdaq vísitalan hækkað um tæplega tvö prósent. Þetta er í sjötta skipti síðan í nóvember í fyrra sem vextirnir eru lækkaðir, en að sögn CNBC, þá miðar lækkunin að því að örva kínverska...
Erlent

Starbucks og Fiat skipað að endur­greiða 30 milljónir evra

Evrópu­sambandið hefur fyrir­skipað stjórn­völdum í Hollandi og Lúxemborg að endur­heimta um 30 milljónir evra, tæplega 4,5 milljarða króna, frá alþjóð­legum stór­fyrir­tækjunum Starbucks og Fiat. Ástæðan er sú að fyrir­tækin fengu ólögmæta ríkis­aðstoð frá löndunum tveimur, sem gerði þeim kleift að borga minna í skatt en þau hefðu annars þurft. Starbucks and Fiat ordered by European Union to repay up to...
Erlent

Joe Biden ætlar ekki að bjóða sig fram til forseta Banda­ríkjanna

Joe Biden, vara­forseti Banda­ríkjanna, ætlar ekki að bjóða sig fram sem forseta­fram­bjóðandi demókrata­flokksins í Banda­ríkjunum. Hann tilkynnti þetta á blaðamanna­fundi í Rósa­garðinum í Hvíta húsinu rétt í þessu, ásamt konu sinni Jill og Barack Obama Bandaríkja­forseta. Hann ætlar hins vegar að taka virkan þátt í kosninga­baráttunni með því að láta í sér heyra og reyna að hafa sem mest áhrif,...

Mest lesið undanfarið ár