Flokkur

Erlent

Erlent

Trump kallar Clinton djöful og segist hræddur um kosninga­svindl

Donald Trump, forseta­efni Repúblikana­flokksins, segir að það sé möguleiki á því að kosninga­svindl verði stundað í forseta­kosningunum í Banda­ríkjunum í nóvember. Hann segist óttast að svo verði og hvatti repúblikana til að vera vel á verði, „annars verður þetta tekið frá okkur.“ Trump sagði þetta á kosninga­fundi í Columbus í Ohio og endurtók þetta svo í viðtali á Fox News...
Erlent

Þrír létust í kjölfar sprengingar talíbana

Talíbanar hafa lýst yfir ábyrgð á sprengju­árás í Kabúl í nótt. Árásin var gerð við Northgate-hótelið í borginni, sem hýsir iðulega fjölmarga erlenda starfs­menn, bæði tengdum hernaði og ýmsum stofnunum. Sprengjan sprakk rétt fyrir klukkan hálftvö í nótt að afgönskum tíma. Hún var gríðar­mikil og heyrðist um nánast alla borg. Reuters greinir frá því að sprengjan hafi verið bíla­sprengja og...
Erlent

Erdogan boðar stjórnar­skrár­breytingar til að auka völd sín

Herskólum verður lokað og herinn verður settur beint undir varnarmála­ráðherra Tyrklands. Þetta tilkynnti forseti landsins, Recep Tayyip Erdogan, í gær. Þá hefur 1.700 starfs­mönnum tyrkneska hersins verið vikið úr honum í þessari viku. Fikri Isik, varnarmála­ráðherra landsins, segir að hreinsunum innan hersins sé ekki enn lokið eftir misheppnaða valda­ránstilraun um miðjan júlí. Meðal þeirra sem hafa verið látnir fara frá...
Erlent

Hreyfingar­leysi kostar átta þúsund milljarða á ári

Heilbrigðis­vandamál sem verða til vegna hreyfingar­leysis kosta heiminn að minnsta kosta 67,5 milljarða Bandaríkja­dala á ári, eða sem samsvarar rúmlega átta þúsund milljörðum íslenskra króna. Þetta er niður­staða nýrrar rann­sóknar sem birtist í hinu virta Lancet lækna­tímariti í gær. Tímaritið gefur nú út sérstaka greinaröð um hreyfingu og hreyfingar­leysi til þess meðal annars að hvetja ráðamenn til þess að gera...
Erlent

Brexit eykur halla á breska lífeyris­kerfinu

Halli á lífeyris­skuld­bindingum breska ríkisins jókst í 935 milljarða punda í kjölfar Brexit-þjóðar­atkvæða­greiðslunnar og áhrifa niður­stöðunnar á breskt efnahagslíf. Ávöxtunar­krafa á skulda­bréf útgefin af breska ríkinu, og önnur bresk fyrirtækja­skuldabréf, hefur hríð­fallið í kjölfar atkvæða­greiðslunnar. Bloomberg greinir frá þessu. Í þjóðar­atkvæða­greiðslunni valdi meirihluti kjósenda að Bretland skyldi segja sig úr Evrópu­sambandinu. Samkvæmt útgöngu­spám var það helst eldra fólk sem kaus...
Skýring

Phillip Green ætti að skrifa ávísun upp á rúma 90 milljarða króna

Sir Phillip Green ætti að skrifa ávísun upp á að minnsta kosti 571 milljón pund, 91,5 milljarð króna, og afhenda starfs­mönnum bresku verslunar­keðjunnar BHS, eða British Home Store, sem horfa fram á að þá upphæð vanti til að hægt verði að standa við áunnar lífeyris­skuld­bindingar þeirra. Þetta sagði þing­maðurinn Frank Field, sem stýrði rannsókn breskrar þing­nefndar á greiðslu­stöðvun BHS, þegar...

Mest lesið undanfarið ár