Fórnarlömbin á aldrinum 12 til 27 ára

Tveir eru látnir og hátt í 20 særðir eftir skotárás á næt­ur­klúbbi í Flórída í nótt. Þrír eru í haldi lög­reglu. Stað­ur­inn var að halda við­burð fyrir ung­linga.

Skotárásin var gerð á skemmtistað sem var að halda viðburð fyrir unglinga á ZombieCon tónlistarhátíðinni.
Skotárásin var gerð á skemmti­stað sem var að halda við­burð fyrir ung­linga á ZombieCon tón­list­ar­há­tíð­inni. Mynd: EPA

Að minnsta kosti tveir eru látnir og hátt í tutt­ugu særðir eftir skotárás á næt­ur­klúbbi í Fort Myers í Flórída í Banda­ríkj­unum í nótt. Verið var að halda við­burð fyrir ung­linga og voru flestir gest­anna á aldr­inum 12 til 17 ára. Banda­rískir fjöl­miðlar greina frá því að þrír séu í haldi lög­reglu í tengslum við málið. Ein­hverjir eru í líf­hættu.

Árásin var gerð um klukkan eitt um nótt að stað­ar­tíma, eða um fimm í morgun að íslenskum tíma. AP frétta­stofan greinir frá því að um klukkan 10 í morgun að íslenskum tíma hafi svæðið við klúbb­inn verið úrskurðað öruggt, en gatan verði lokuð á meðan rann­sókn stendur yfir.

[adspot]

Þetta er í annað sinn á rúmum mán­uði sem fjöldamorð er framið á næt­ur­klúbbi í Flórída, en í júní voru 50 manns myrtir í skotárás á skemmti­stað fyrir hinsegin fólk í Orlando. Það var mann­skæð­asta skotárás í sögu Banda­ríkj­anna. Árásin var rann­sökuð sem hryðju­verk og árás­armað­ur­inn, Omar Saddiqui Mateen, 29 ára gam­all Flór­ídabúi, var skot­inn til bana í áhlaupi lög­reglu.

Hér er hægt að fylgj­ast með Twitterfærslum um málið.

Uppfært klukkan 15:20

AP frétta­stofan greinir frá því að fjórir séu á sjúkra­húsi eftir árás­ina, en tveir voru skotnir til bana. Talið er að 17 manns hafi særst í árásinni. Fórn­ar­lömbin eru á aldr­inum 12 til 27 ára. Haft er eftir for­svars­mönnum Club Blu, þar sem árásin var framin, að skot­hríðin hafi byrjað á svip­uðum tíma og for­eldrar komu að sækja börn sín.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár