Brexit eykur halla á breska lífeyriskerfinu

Nigel Farage, þáverandi formaður UKIP, barðist hart fyrir úrsögn úr ESB.
Nigel Farage, þáver­andi for­maður UKIP, barð­ist hart fyrir úrsögn úr ESB. Mynd: EPA

Halli á líf­eyr­is­skuld­bind­ingum breska rík­is­ins jókst í 935 millj­arða punda í kjöl­far Brexit-þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­unnar og áhrifa nið­ur­stöð­unnar á breskt efna­hags­líf. Ávöxt­un­ar­krafa á skulda­bréf útgefin af breska rík­inu, og önnur bresk fyr­ir­tækja­skulda­bréf, hefur hríð­fallið í kjöl­far atkvæða­greiðsl­unnar. Bloomberg greinir frá þessu.

Í þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­unni valdi meiri­hluti kjós­enda að Bretland skyldi segja sig úr Evr­ópu­sam­band­inu. Samkvæmt útgöngu­spám var það helst eldra fólk sem kaus að yfir­gefa sam­bandið; 60 pró­sent fólks eldra en 65 ára kaus að slíta sam­starf­inu. Líf­eyr­is­aldur í Bret­landi er 65 ár.

[adspot]

Í kjöl­far nið­ur­stöð­unar 23. júní féll gengi breska punds­ins gagn­vart banda­ríkja­dal, og hefur ekki verið lægra í ára­tugi. Fyrstu efna­hags­grein­ingar sem gerðar hafa verið eftir þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­una benda til þess að sam­dráttur breska hag­kerf­is­ins hafi ekki verið meiri og hrað­ari síðan í kjöl­far efna­hags­hruns­ins 2008.

Halli á líf­eyr­is­skuld­bind­ingum breska rík­is­ins hækk­aði um 80 millj­arða punda á einum sól­ar­hring eftir að nið­ur­staða Brexit-atkvæða­greiðsl­unnar urðu ljósar; fóru úr 820 millj­örðum í 900 millj­arða. Áður en júní­mán­uður var úti hafði hall­inn auk­ist í 935 millj­arða punda og hefur aldrei verið meiri.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár