Flokkur

Erlent

Erlent

Persónu­upplýsingar milljóna Dana í höndum Kínverja

Sumarið 2015 varð uppi fótur og fit þegar bandaríska rannsóknar­lögreglan (FBI) komst að því að kínverskir tölvu­þrjótar höfðu komist yfir persónu­upplýsingar fjögurra milljóna opinberra starfs­manna í Banda­ríkjunum. Upplýs­ing­arnar vörðuðu heilsufar,fjárhags­lega stöðu, hjúskaparmál og ýmislegt fleira sem flokkast undir viðkvæmar persónulegar upplýsingar. Rannsóknar­lögreglan leit þetta mjög alvarlegum augum og benti á að erlendir aðilar gætu notað slíkar upplýsingar í margskonar tilgangi....
Erlent

Wikileaks birtir vandræða­lega pósta Demókrata

Wikileaks birtu um tuttugu þúsund tölvupósts­samskipti innan flokks­stjórnar Demókrata­flokksins í Banda­ríkjunum í gærkvöld. Málið þykir hið vand­ræða­leg­asta fyrir flokkinn, sérstak­lega þar sem póstarnir voru birtir á sama tíma og Hillary Clinton, forseta­efni Demókrata­flokksins, tilkynnti vara­forsetaefni sitt, Tim Kaine. Í póstunum er meðal annars rætt um Bernie Sanders, sem tapaði í forvali fyrir Clinton, og samskipti flokk­stjórnarinnar við fjölmiðla­menn vestanhafs. Póstar...
Erlent

Danski pósturinn breytir um lit

Fyrir um það bil ári gerði eitt dönsku dagblað­anna könnun þar sem landsmenn voru beðnir að nefna tíu atriði sem einkenna Danmörku, landið og fólkið. Og, hvað það væri sem útlendingar tækju sérstak­lega eftir þegar þeir heimsæktu Danmörku. Einsog vænta mátti kenndi í svörunum margra grasa. Næstum allir nefndu þjóð­fánann, Dannebrog, en annars var listinn fjöl­breyttur. Reið­hjólin og rauðar pylsur,...
Erlent

Fjöl­miðlar segja sex látna eftir skotárás í München

Samkvæmt upplýsingum frá innan­ríks­ráðu­neyti Þýsklands eru minnst þrír látnir eftir skotárás á minnsta kosti þremur stöðum í München. Fjöldi manns eru særðir. Fjöl­miðlar í München segja að sex manns séu látnir. Talið er að fleiri en einn byssu­maður hafi verið að verki, hugsanlega þrír. Þeir komust undan og leitar lögregla þeirra núna. Fjöldi misvísandi upplýsinga hafa komið fram síðan fyrstu...
Erlent

Rússland hugsanlega bannað á Ólympíu­leikum

Sérstakur gerðar­dómur fyrir íþróttir hafnaði áfríunar­kröfu rússnesku ólympíu­nefndarinnar um að öllu rússnesku frjáls­íþrótta­fólki verði bannað að keppa á Ólympíu­leikunum í Río sem hefjast í byrjun ágúst. Alþjóða ólympíu­nefndin mun kynna ákvörðun sína um hvort bannið muni taka til allra rússneskra íþrótta­manna á leikunum um helgina. Tvær sérstakar rann­sóknar­nefndir sem könnuðu lyfja­misferli rússneskra íþrótta­manna hafa komið upp um stórfellt lyfja­svindl á...
Erlent

Júní aldrei hlýrri en í ár

Meðalhiti í júní í ár var sá hæsti sem mælst hefur síðan mælingar hófust árið 1880. Júní var jafnframt fjórtándi mánuðurinn í röð sem bætir hitamet í skrám bandarísku geimferða­stofnunarinnar (NASA) og bandarísku haf- og loftslags­stofnunarinnar. Frá þessu er meðal annars greint á vef breska dagblaðsins The Guardian. Meðalhiti á jörðinni hefur hækkað stöðugt undan­farna mánuði. Mælingarnar taka til meðal­hitastigs...

Mest lesið undanfarið ár