Morðinginn aðhylltist hægri öfgastefnu

Níu eru látnir eftir fjöldamorð í versl­un­ar­mið­stöð í München í gær. Flest fórn­ar­lömbin eru á ung­lings­aldri. Árás­armað­ur­inn lagði áherslu á að myrða jafn­aldra sína. Ódæðinu er líkt við Útey og Columbine.

Þjóðverjar syrgja þá látnu eftir fjöldamorðin í gær. Tíu létust, þar af níu ungmenni, að árásarmanninum meðtöldum.
Þjóð­verjar syrgja þá látnu eftir fjöldamorðin í gær. Tíu lét­ust, þar af níu ung­menni, að árás­armann­inum með­töldum. Mynd: EPA

Tíu eru látnir eftir að 18 ára Þjóð­verji hóf skot­hríð í versl­un­ar­mið­stöð í München í Þýska­landi seinni­part­inn í gær. Árás­armað­ur­inn svipti sig lífi eftir að hafa skotið á mann­fjöld­ann, eftir að hafa skotið níu til bana og sært 21. Þýskir fjöl­miðlar greina frá því að mað­ur­inn hafi aðhyllst hægri öfga­stefnu og litið mjög upp til fjöldamorð­ingj­ans Anders Bering Breivík.

Flestir jafnaldrar morðingjans

Flest þeirra látnu voru ungt fólk. Þrír voru fjórtán ára, tveir fimmtán ára, eitt 17 ára, eitt 19 ára, 20 og 45 ára. Öll voru þýsk og búsett í München. Maðurinn not­aði Glock-skam­byssu til að fremja ódæðið.

The Guardian greinir frá því að árás­armað­ur­inn hafi aflað sér upp­lýs­inga um skotárásir og við­bragðs­tíma lög­reglu. Lög­reglan komst að þessu eftir að hús­leit var gerð heima hjá honum í morgun. Ekkert benti til þess að hann hefði tengsl við hryðju­verka­sam­tök, eða hafi stundað öfga­trú, en hann var af írönsku bergi brot­inn. Ekkert liggur fyrir um ástæður verkn­að­ar­ins. Lög­reglan óskar eftir því að fá mynd­skeið send frá almenn­ingi, sem og ljós­myndir og hljóð­upp­tökur sem teknar voru á meðan á árásinni stóð.

Lokkaði skólafélaga í gegn um Facebook

Greint var frá því í þýskum fjöl­miðlum í morgun að árás­armað­ur­inn virð­ist hafa lokkað ung­menni í versl­un­ar­mið­stöð­ina í gegn um Facebook áður en hann réð­ist til atlögu. Hann á að hafa boðið þar ókeypis varn­ing til að fá sem flest ungt fólk. Hann þótt­ist þar vera ung kona. Hann lagði áherslu á að hafa sam­band við skóla­systk­ini sín.

Líkt við Columbine og Útey

Maðurinn átti erf­iða skóla­göngu og hafði þjáðst af þung­lyndi. Þýskir fjöl­miðlar slá því upp að teng­ing sé á milli hans og Anders Bering Breivík, sem myrti 77 í Útey þann 22. júlí 2011, en árásin í München var framin þegar fimm ár voru liðin síðan Breivík framdi fjöldamorðin. Þá er árásinni líkt við skor­árás­ina í fram­halds­skól­anum Columbine í Banda­ríkj­unum árið 1999 þegar tveir nem­endur skól­ans skutu 12 sam­nem­endur sína til bana og einn kenn­ara.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár