Flokkur

Erlent

Erlent

Tvær konur til viðbótar saka Trump um kynferðis­lega áreitni

Tvær konur, til viðbótar við þær fjórar sem áður höfðu gefið sig fram, hafa stigið fram og saka Donald J. Trump, forseta­fram­bjóðanda Repúblikana­flokksins, um kynferðis­lega áreitni og ósæmilega hegðun í garð þeirra. Trump hefur sjálfur svarað því til að þetta séu „lygarar" og að þær séu „óaðlaðandi", að því er fram kemur í umfjöllun New York Times. Önnur þeirra sem...
Erlent

Sérfræðingar HSBC vara við verðhruni á mörkuðum

Sérfræðingur HSBC bankans í New York, Murray Gunn, segir að líkur á verulegu falli hluta­bréfa á mörkuðum séu núna tölu­verðar. Margt bendi til þess að fjár­festar, ekki síst sjóðir og stærri fjár­festar, muni selja bréf á næstu misserum með tilheyrandi verðfalls­áhrifum. Í bréfi sem hann sendi á viðskipta­vini bankans 11. október síðastliðinn, og vitnað er til á vef Bloomberg, kemur...
Erlent

Ný þjóðar­atkvæða­greiðsla um sjálf­stæði Skotlands boðuð

Ríkis­stjórn Skotlands ætlar að leggja fram nýtt frumvarp um þjóðar­atkvæða­greiðslu um sjálf­stæði landsins í næstu viku. Nicola Sturgeon, fyrsti ráðherra Skotlands og formaður Skoska þjóðar­flokksins, greindi frá þessu í ræðu sem hún hélt á flokks­þingi hans í dag og The Guardian greinir frá. Þar sagði Sturgeon að hún sé ákveðin í því að Skotland fái tækifæri til að endurmeta spurninguna...
Erlent

Bob Dylan hlýtur Nóbels­verðlaun í bókmenntum

Bandaríski tónlistar­maðurinn Bob Dylan hlýtur bókmennta­verðlaun Nóbels árið 2016. Þetta var tilkynnt fyrir skömmu. Hinn 75 ára gamli Dylan hlýtur verð­launin fyrir að hafa skapað nýja ljóðræna tjáningu innan bandarískrar tónlistar­hefðar. Sara Danils hjá sænsku Nóbels­nefndinni tilkynnti um verðlauna­hafann og sagði Dylan hafa verið að í 54 ár og á þeim tíma sé hann sífellt að gera nýja hluti. Mögulega...
Erlent

Formanns­fram­bjóðandi UKIP alvarlega slasaður eftir slagsmál á þing­flokksfundi

Steven Woolfe, Evrópuþing­maður fyrir Breska sjálfstæðis­flokkinn UKIP og fram­bjóðandi til formanns flokksins, er nú alvarlega slasaður á spítala. Hann hné niður í Evópuþinginu í Strasbourg í morgun eftir að hafa lent í slags­málum við annan Evrópuþing­mann flokksins. Nigel Farage, sem tíma­bundið er formaður flokksins, segir að Woolfe hafi lent í átökum á þing­flokksfundi Evrópuþing­manna UKIP í morgun. Í kjölfarið hafi...

Mest lesið undanfarið ár