Svæði

Danmörk

Skýring

Hvað slær klukkan? Hún slær þrjú!

Það þekkja sjálfsagt flestir, ef ekki allir, (frönsku) barna­gæluna um meistara Jakob sem vildi fá að vita hvað klukkan slægi þegar hann rumskaði. Og hún sló, sem kunnugt er, þrjú. Ef þetta hefði verið aðfara­nótt síðasta sunnudags í október (síðastliðna nótt) hefði Jakob getað lúrt áfram í klukku­tíma og vaknað þegar klukkan slægi aftur þrjú, búinn að „græða“ klukku­tíma. Vel...
Skýring

Reyna að semja um Europol

Danska ríkis­stjórnin reynir nú hvað hún getur að ná samkomu­lagi við Evrópu­sambandið um einhvers konar auka aðild Dana að Evrópu­lögreglunni, Europol eftir að þátttöku Dana í lögreglu­samstarfinu lýkur 30. apríl á næsta ári. Stjórn­endur ESB eru hinsvegar tregir í taumi og lítt fúsir til samninga. Samkvæmt Maastricht samningnum frá árinu 1993 voru Danir undan­þegnir fjórum ákvæðum samningsins, þar á meðal...
Skýring

Vilja fleiri ferðamenn til Danmerkur

Dönsk stjórn­völd hafa lagt fram áætlun sem miðar að því að auka straum ferða­manna til Danmerkur. Þótt ferða­mönnum sem koma til landsins hafi fjölgað á undan­förnum árum þykir stjórn­völdum að betur megi gera, sérstak­lega á svæðum við hafið. Áætlun stjórn­ar­innar „Danmark i vækst - Den nationale strategi for dansk turisme“ var birt fyrir nokkrum dögum. Troels Lund Poulsen ráðherra atvinnu­mála...
Skýring

Kristjanía á tímamótum

Íbúar Kristjaníu í Kaupmanna­höfn óttast um framtíð svæðisins eftir að fíkniefna­sali skaut og særði tvo lögreglu­menn sem voru þar á eftirlits­ferð sl. miðvikudags­kvöld. Annar þeirra liggur milli heims og helju á sjúkra­húsi. Ennfremur varð erlendur ferða­maður fyrir skoti. Fíkniefna­salinn særðist lífs­hættulega þegar hann reyndi að flýja, eftir að lögregla hafði umkringt hús þar sem hann hélt sig, og lést síðar...

Mest lesið undanfarið ár